Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
31.10.2020 | 22:05
Dæmigert fyrir sóttólfana
Það er auðvitað alveg dæmigert fyrir þetta drasl að banna fólki að klippa hvert annað en leyfa því að svíkja fé af hvert öðru.
Hvenær ætlar almenningur að rísa upp gegn þessum vanhæfu fáráðlingum?
Þetta er okkur óskiljanlegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.10.2020 | 21:27
Er einhver að hugsa um loftslagsbreytingar ...
... þegar verið er að gera alvarlegustu árás sögunnar á lífskjör, líf og heilsu lægstu stétta samfélagsins?
Sjálfbær þróun sé í hættu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.10.2020 | 20:56
Skiptið um forstjóra
Það er nóg pláss á þessum spítala. Það eina sem vantar er almennileg skipulagning. Reka lygalaupinn og ráða alvöru forstjóra.
Þetta er einfaldlega sprunginn spítali | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.10.2020 | 16:12
Of margir í barnaafmæli!
Nú eru sóttólfarnir endanlega búnir að missa vitið. Börnum er nákvæmlega engin hætta búin af kórónaveirunni. En það breytir auðvitað engu, ekkert frekar en aðrar staðreyndir.
Nú má búast við að lögregla verði framvegis send á staðinn til að leysa upp barnaafmæli!
Fólk verður að fara að rísa upp gegn þessu fáránlega, röklausa ofríki. Engum ber skylda til að hlýða ólögmætum tilskipunum.
Tilkynnt um 11 brot á sóttvarnalögum í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.10.2020 | 12:31
Meðalhófs er ekki gætt
Það er augljóst að sú fjölgun smita sem við sjáum nú er einvörðungu vegna slóðaháttar stjórnenda Landspítalans.
Þessar hertu reglur sem nú hafa verið kynntar eiga sér því ekki nokkrar einustu forsendur. Þær ganga langt fram úr öllu meðalhófi.
Af þessum sökum eru reglurnar í reynd ólögmætar.
Nýjasta fréttin er nú sú að skylda eigi fólk til að bera grímur í verslunum. Nú er spurning hvaða lögmenn eru tilbúnir að stíga fram fyrir skjöldu og bjóðast til að verja þá sem kunna að neita að borga sektina, á grundvelli þess að meðalhófs er ekki gætt?
Fyrri aðgerðir ekki gagnslausar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.10.2020 | 10:57
Það er til skynsamlegri leið
Aðgerðirnar sem kynntar voru í gær voru eitt það alheimskulegasta sem hefur komið frá orðuhöfunum þremur.
Það er dapurlegt að haldið sé áfram með blóðtöku samfélagsins og árásir á afkomu og framtíð þeirra sem minnst mega sín, þegar til er skynsamleg leið grundvölluð á meginviðmiðum lýðheilsufræða og yfirburða þekkingu á hegðun veirusjúkdóma. Hér má heyra athyglivert viðtal við Martin Kulldorff prófessor við Harvard.
Hvaða reglur tóku gildi á miðnætti? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.10.2020 | 20:49
Heyr, heyr!
Sigríður Andersen er ábyrgur stjórnmálamaður, því miður ein af ótrúlega fáum.
Gagnrýni hennar er byggð á sterkum rökum og afstaða hennar sýnir að ólíkt mörgum kollegum hennar á þingi er henni ekki sama um hagsmuni almennings.
Sigríður sér heildarmyndina, þar sem flestir sjá því miður aðeins gegnum örmjótt rör.
Stefna stjórnvalda að opna og loka ekki sjálfbær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2020 | 19:50
Hver stjórnar mönnuninni?
Mönnun er ekki náttúrulögmál. Mönnun er hlutverk stjórnenda. Það var ámátlegt þegar þessi maður var að reyna að ljúga sig út úr því hvernig smituðum einstaklingum var dreift hingað og þangað frá Landakoti á hans vakt. Og nú reynir hann að afsaka aðgerðaleysi sitt með "mönnun".
Þú berð ábyrgð á mönnuninni Páll Matthíasson. Reyndu að standa undir þeirri ábyrgð!
Mönnun leyfði ekki hólfaskiptingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2020 | 15:35
Nú á að ráðast á börnin - fyrir alvöru
Það er alkunna að börnum er engin hætta búin af kórónaveirunni.
Það er einnig augljóst að engin frekari hætta er á að börn á efri stigum grunnskóla beri smit í viðkvæma hópa en börn á neðri stigum eða í leikskólum. Líkurnar eru raunar meiri á því að yngri börn geri það, því þau eru líklegri til að vera í gæslu hjá öfum og ömmum.
Það eru því engin rök fyrir því að trufla nám grunnskólabarna í efri bekkjum. Sama gildir um framhaldsskólanema. Þeim er heldur engin hætta búin af veirunni og líkurnar á að þeir beri smit í þá sem viðkvæmir eru, eru alveg jafn litlar og varðandi börn í efri bekkjum grunnskóla.
Hvert er markmið menntamálaráðherra? Er markmiðið að skaða námsframvindu barna? Er markmiðið að auka ójöfnuð með því að ráðast gegn þeim börnum sem hafa verstar aðstæður til að bjargast í gegnum ruglið með heimavinnu?
Ég kalla eftir því að menntamálaráðherra svari þessu.
Takmarkanir í efstu stigum grunnskóla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2020 | 13:27
Þýðir lokun fjölda fyrirtækja
Nú hafa stjórnvöld gengið of langt.
Með þessum fáránlegu kröfum er ljóst að fjöldi fyrirtækja verður einfaldlega að hætta starfsemi sinni. Og röksemdirnar að baki kröfu stjórnvalda um lokun þessara fyrirtækja eru nákvæmlega engar.
Hindranir sem valda stórkostlegu tjóni og sem ekki er hægt að réttlæta með brýnni þörf eru einfaldlega ólögmætar. Almenningur á því ekki annars úrkosti en að hætta að fylgja fyrirmælunum.
Aðgerðir hertar tíu mega koma saman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.2.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar