14.3.2018 | 15:06
Hvers vegna sjálfseignarstofnun?
Sjálfseignarstofnanir geta vissulega haft ákveðna kosti en það er ekki endilega víst að það form henti sérstaklega vel fyrir bankarekstur.
Það er svo rangt að fjármálastofnun af þessum toga þurfi endilega að vera hlutafélag. Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að nota sparisjóðaformið.
Samfélagsbanki í gíslingu kerfisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.3.2018 | 13:46
Minnir um sumt á hvalveiðideiluna
Nú eru sterk viðbrögð tekin að berast erlendis frá. Á Vísi er sagt frá bandarískum Gyðingi sem hefur hætt við ferð hingað vegna þessa máls. Það er eflaust bara byrjunin.
Fyrir þá sem muna svo langt aftur er athyglivert að bera þetta saman við hvalveiðideiluna á sínum tíma. Þá vildu Íslendingar halda áfram hvalveiðum þótt búið væri að banna þær. Sterk viðbrögð komu frá öðrum löndum, svo mjög að viðskiptahagsmunum var jafnvel ógnað. En það efldi aðeins baráttuandann. Málið snerist kannski ekki bara um hvalveiðar heldur jafnvel fremur um að "Íslendingar láta ekki einhverja útlendinga segja sér fyrir verkum".
Umræðan á netinu nú er svolítið keimlík þótt nú snúist ekki baráttan um að fá að veiða hvali heldur að berjast gegn aðgerð sem nánast enginn þekkir til hérlendis, er mælt með af samtökum barnalækna í Bandaríkjunum og er, að lokum, lykilatriði í Gyðingdómi.
Í þessu ljósi falla röksemdir flutningsmannanna um barnavernd vitanlega ekki í frjóan jarðveg og útlendingar túlka þetta svo að það snúist um að banna Gyðingum búsetu hér.
Hér eru dæmi um athygliverð skilaboð síðan í morgun, sem væntanlega draga ekki úr áhyggjum erlendra Gyðinga:
Óska umsagna um umskurðarfrumvarp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.3.2018 | 17:26
Sótraftarnir
Nú skal sótröftunum ýtt úr fjörunni í þeirri von að þeir geri gat á ríkisstjórnarfley Katrínar. Það kemur til af því að með áliti Umboðsmanns er nú komið í ljós að allur vaðallinn frá þessum snillingum er froðusnakk eitt og að engu hafandi og því engin efni til að halda áfram að eyða tíma stjórnskipunarnefndar. Þá er ekki annað að gera en kveikja upp í Loga, Þórhildi og Helgu Völu og ýta þeim úr vör ...
Segir dómarana eflaust dæmda vanhæfa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.3.2018 | 15:29
Alveg ótækt auðvitað
Það hlýtur að vera háalvarlegt mál að skrifstofustjórinn hafi einhvern tíma verið í framboði fyrir Samfylkinguna. Svo mun víst konan í mötuneytinu einhvern tíma hafa verið í Heimdalli. Það er augljóst að hér er fjórflokkurinn að verki, með samsæri gegn fjögurra blaða Smáranum eins og vanalega.
Miður sín að dragast inn í umræðuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.3.2018 | 21:03
Logi Einarsson
Maður er alltaf að átta sig betur á því af hverju enginn vildi fara í ríkisstjórn með Loga Einarssyni.
Ekki ráðherra að fara yfir farmskrárnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.3.2018 | 19:24
Aðra tána?
Það er nú eflaust viðurhlutamikið sé önnur táin tekin af þeim sem aðeins hefur tvær.
Annars skora ég á Brynjar að spyrja einhvern umskorinn Bandaríkjamann, með tíu tær, og þeir eru frekar margir, hvort honum þyki skynsamlegt að jafna saman umskurn og því að fjarlægja tá.
Ég hvet Brynjar til að glotta þegar hann spyr að þessu, svo maðurinn haldi ekki að hann sé að tala í alvöru.
Það væri kannski líka sniðugt að báðir væru búnir að fá sér í aðra tána fyrst.
Munur á að taka forhúðina eða tána? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.3.2018 kl. 09:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar