Minnir um sumt á hvalveiðideiluna

Nú eru sterk viðbrögð tekin að berast erlendis frá. Á Vísi er sagt frá bandarískum Gyðingi sem hefur hætt við ferð hingað vegna þessa máls. Það er eflaust bara byrjunin.

Fyrir þá sem muna svo langt aftur er athyglivert að bera þetta saman við hvalveiðideiluna á sínum tíma. Þá vildu Íslendingar halda áfram hvalveiðum þótt búið væri að banna þær. Sterk viðbrögð komu frá öðrum löndum, svo mjög að viðskiptahagsmunum var jafnvel ógnað. En það efldi aðeins baráttuandann. Málið snerist kannski ekki bara um hvalveiðar heldur jafnvel fremur um að "Íslendingar láta ekki einhverja útlendinga segja sér fyrir verkum".

Umræðan á netinu nú er svolítið keimlík þótt nú snúist ekki baráttan um að fá að veiða hvali heldur að berjast gegn aðgerð sem nánast enginn þekkir til hérlendis, er mælt með af samtökum barnalækna í Bandaríkjunum og er, að lokum, lykilatriði í Gyðingdómi.

Í þessu ljósi falla röksemdir flutningsmannanna um barnavernd vitanlega ekki í frjóan jarðveg og útlendingar túlka þetta svo að það snúist um að banna Gyðingum búsetu hér.

Hér eru dæmi um athygliverð skilaboð síðan í morgun, sem væntanlega draga ekki úr áhyggjum erlendra Gyðinga: 

Screen Shot 2018-03-06 at 13.53.01

 

 

 

Screen Shot 2018-03-06 at 13.55.28 

 


mbl.is Óska umsagna um umskurðarfrumvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sæmundur G. Halldórsson

Þegar viðbrögð "virkra í athugasemdum" við þessu frumvarpi eru lesin, fær maður á tilfinninguna að meirihluti Íslendinga samanstandi af nasistum! Ég ætla að vona að þetta sé blekking. En kannski er þetta óhjákvæmileg afleiðing af þrotlausu starfi fjölmiðla, sérstaklega ríkisfjölmiðla, sem árum saman hafa útmálað illsku Ísraelsmanna, án þess að í eitt einasta skipti sé talað við venjulegt fólk í Ísrael eða yfirhöfuð nokkurn Ísraela! Allt sem gæti hugsanlega verið landinu í hag eða látið Ísraela líta vel út er þaggað niður. Umrætt frumvarp snertir reyndar alla Gyðinga hvar sem í veröldinni þeir búa. En rasísku bjánarnir sem hafa verið að tjá sig af tilefni þessa frumvarps í sama tón og þegar Reykjavíkurborg leyfði sér það frumhlaup að ætla að setja viðskiptabann á Ísrael (allt landið vel að merkja, ekki aðeins ákveðin svæði)þekkja auðvitað ekki slík fín blæbrigði. Allt þetta mál lætur Ísland og Íslendinga ekki líta vel út. Við erum neðst í Pisa, þriðjungur fimmtán ára drengja kann ekki að lesa "sér til gagns". Kannski erum við ekki best til þess fallin að setja öðrum þjóðum lífsreglurnar eftir allt!

Sæmundur G. Halldórsson , 6.3.2018 kl. 16:29

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Já Sæmundur. Það er sorglegt að sjá hversu grunnt er á hatrinu, ekki aðeins á Gyðingum heldur einnig múslimum. Það má vissulega gagnrýna Ísrael fyrir ýmislegt, en það merkir ekki að veiðileyfi hafi verið gefið út á Gyðinga.

Og ég tek heilshugar undir þau orð þín að við séum ekki endilega best til þess fallin að leggja öðrum lífsreglurnar. Stundum er gott að svipast um eftir bjálkanum í eigin auga áður en ráðist er á náungann út af flísinni.

Þorsteinn Siglaugsson, 6.3.2018 kl. 20:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 287305

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband