Líf guðanna

Það var svo sannarlega ógleymanlegt að hlýða á heimsfrumflutning Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Eddu II - Líf guðanna, eftir Jón Leifs í gærkvöldi.

Verkið gerir, líkt og Árni Heimir Ingólfsson nefnir í tónleikaskrá, nær ómannlegar kröfur til flytjenda, en þær kröfur stóðust þeir svo sannarlega í gærkvöldi.

Tónlist Jóns gerir ríkar kröfur til hlustenda ekki síður en til flytjenda, enda er hún ekkert léttmeti. Líkt og Björn Bjarnason nefnir á bloggi sínu átti Jón ekki upp á pallborðið hjá samtíðarmönnum sínum, en hann segir: "Það sannaðist enn á þessu verki að Jón Leifs var langt á undan sinni samtíð. Það er ekki fyrr en nú hálfri öld eftir dauða tónskáldsins og 52 árum eftir að Jón lauk við verkið sem það er flutt í fyrsta sinn, það var samið á árunum 1951 til 1966."

Ég óska Sinfóníuhljómsveitinni, Schola Cantorum, einsöngvurum og stjórnanda innilega til hamingju með þessa frábæru tónleika!

 


Bloggfærslur 24. mars 2018

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 287362

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband