Annað hvort einfalda lögin eða afnema þau

Ef það er virkilega vilji fyrir því að ríkisvaldið stjórni því hvað fólk heitir þá held ég að það sé langbest að hafa bara fyrirframgefinn lista með kannski svona hundrað nöfnum sem eru leyfð. Önnur nöfn séu þá bara einfaldlega bönnuð. Með því móti er engin þörf á að hafa neina nefnd sem vinnur við að velta vöngum yfir nafninu á hverjum einasta Íslendingi sem fæðist hér.

Hin leiðin er að afnema lögin. Og auðvitað á að gera það. Það er fáránlegt að ríkisvaldið sé að hlutast til um nöfn fólks og banna konum að heita Alex þegar þeim er hins vegar í sjálfsvald sett að láta breyta sér í karlmenn (og þurfa væntanlega að gera það til að fá að heita Alex eins og lögin eru núna).

 


mbl.is Lögin ekki barn neins tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stakar sendingar eru dýrar

Stakar sendingar af þessu tagi eru dýrar, ekki aðeins frá Íslandi heldur líka til Íslands. Það er rétt að vefverslanir, til dæmis Amazon, bjóða oft upp á ókeypis sendingu, en það er þá yfirleitt innan sama lands. Amazon sendir ekkert ókeypis til Íslands.

Lausnin fyrir Heiðu og félaga er að koma sér upp dreifingaraðila erlendis, senda vöruna í stærri sendingum þangað og dreifa svo með pósti innan viðkomandi lands. Hvet þau til að gera það og vona að þannig leysist málið.


mbl.is Sendingarkostnaður þröskuldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmm...

Ekki er nú að sjá af myndinni að þessu húsi sé sérstaklega vel við haldið eða hvað? Það er alþekkt að eigendur leika þann leik að láta gömul hús drabbast niður þar til ekki er annað að gera en rífa þau. Í þessu máli held ég að Hjálmar hafi nú ýmislegt til síns máls.


mbl.is Telja ástæðu til að áminna starfsmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður ársins?

Fyrir mörgum árum flýði kýr fyrir norðan og synti ef ég man rétt yfir einhvern fjörð.

Hún var svo kosin maður ársins á Akureyri ef mig misminnir ekki. Hermien verður þá kannski maður ársins í Hollandi.


mbl.is Flóttakýr sem öðlaðist frægð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjálfaleg afskiptasemi

Þetta frumvarp ber vott um þá bjálfalegu afskiptasemi sem virðist æ algengari og orðin einhvers konar mottó illa gefinna Íslendinga. Gyðingar og múslimar hafa stundað umskurn drengja árþúsundum saman. 60% bandarískra drengja eru umskornir, alveg óháð trúarbrögðum. Umskurn veldur börnunum engum skaða. Það væri nær að þetta fólk reyndi að nota tíma sinn til að vinna að þjóðarhag en að sóa honum í að skipta sér af málum sem því koma ekkert við.


mbl.is Vilja stöðva frumvarp Silju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helga Vala Helgadóttir

Þegar ráðherra talar um að það sé nýtt viðfangsefni að taka á málefnum barna á flótta bregst Helga Vala Helgadóttir við með þusi um að það sé "„ótrú­lega sorg­legt“ að hlusta á dóms­málaráðherra tala um fylgd­ar­laus börn á flótta sem viðfangs­efni".

Hversu lágt er eiginlega hægt að leggjast?

En úr þessum ranni kemur svona málflutningur ekki á óvart. 

Þessi manneskja var eitt sinn starfsmaður RÚV og sá þar um þátt sem hét Spegillinn. Þar gekk hagsmunagæslan svo langt að ef gagnrýnisraddir heyrðust í þættinum um pólitíska samherja hennar var þeim boðið að koma í þáttarlok og "leiðrétta" orð viðmælendanna.

Það er eiginlega bara fáránlegt að þessi einstaklingur sé orðinn formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.

 


mbl.is Sjálfsagt að skoða aðferðir við aldursgreiningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytir engu til lengri tíma

Það hvort húsnæðiskostnaður kemur inn í vísitölu byggt á húsnæðisverði eða á leigu breytir auðvitað engu til lengri tíma. Leiga fylgir á endanum húsnæðisverðinu. En þar sem leigumarkaður er lítill hér á landi er fasteignaverðið betri mælikvarði.

Það er eiginlega hálf kjánalegt að það sé sífellt verið að hlaupa fram með svona tillögur um að breyta vísitöluútreikningi eftir hentugleikum einhvers fólks. Fólk æsir sig yfir því að það sé ósanngjarnt að fasteignaverð sé inni í vísitölu þegar það fer hækkandi. En hvað þá þegar það fer að lækka? Á þá að bæta því aftur inn? Og hvað með aðra liði? Setjum sem svo að olíuverð rjúki upp úr öllu valdi. Mun þá ekki byrja sami söngurinn varðandi það, að nú verði að taka olíuverð út úr vísitölunni?

Það er hins vegar ástæða til að hafa áhyggjur af því, í ljósi nýjustu frétta um reiknihæfileika starfsmanna Hagstofu, hvort vísitalan sé yfirleitt rétt reiknuð. En það er önnur umræða.


mbl.is Vilja skoða vísitölu án húsnæðisliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur ekki á óvart

Þessar niðurstöður koma ekki á óvart. En forvígismenn þessa máls munu auðvitað horfa framhjá röksemdunum eins og þeir hafi gert til þessa og úthrópað þá sem leyfa sér að gagnrýna forsendur þeirra sem andstæðinga almenningssamgangna.

Það er stórfurðulegt að öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu skuli hafa látið þessa vitleysinga teyma sig af stað út í þetta fen.

 


mbl.is Segir áhrif borgarlínu ofmetin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Feb. 2018
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28      

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 287361

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband