Helga Vala Helgadóttir

Þegar ráðherra talar um að það sé nýtt viðfangsefni að taka á málefnum barna á flótta bregst Helga Vala Helgadóttir við með þusi um að það sé "„ótrú­lega sorg­legt“ að hlusta á dóms­málaráðherra tala um fylgd­ar­laus börn á flótta sem viðfangs­efni".

Hversu lágt er eiginlega hægt að leggjast?

En úr þessum ranni kemur svona málflutningur ekki á óvart. 

Þessi manneskja var eitt sinn starfsmaður RÚV og sá þar um þátt sem hét Spegillinn. Þar gekk hagsmunagæslan svo langt að ef gagnrýnisraddir heyrðust í þættinum um pólitíska samherja hennar var þeim boðið að koma í þáttarlok og "leiðrétta" orð viðmælendanna.

Það er eiginlega bara fáránlegt að þessi einstaklingur sé orðinn formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.

 


mbl.is Sjálfsagt að skoða aðferðir við aldursgreiningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytir engu til lengri tíma

Það hvort húsnæðiskostnaður kemur inn í vísitölu byggt á húsnæðisverði eða á leigu breytir auðvitað engu til lengri tíma. Leiga fylgir á endanum húsnæðisverðinu. En þar sem leigumarkaður er lítill hér á landi er fasteignaverðið betri mælikvarði.

Það er eiginlega hálf kjánalegt að það sé sífellt verið að hlaupa fram með svona tillögur um að breyta vísitöluútreikningi eftir hentugleikum einhvers fólks. Fólk æsir sig yfir því að það sé ósanngjarnt að fasteignaverð sé inni í vísitölu þegar það fer hækkandi. En hvað þá þegar það fer að lækka? Á þá að bæta því aftur inn? Og hvað með aðra liði? Setjum sem svo að olíuverð rjúki upp úr öllu valdi. Mun þá ekki byrja sami söngurinn varðandi það, að nú verði að taka olíuverð út úr vísitölunni?

Það er hins vegar ástæða til að hafa áhyggjur af því, í ljósi nýjustu frétta um reiknihæfileika starfsmanna Hagstofu, hvort vísitalan sé yfirleitt rétt reiknuð. En það er önnur umræða.


mbl.is Vilja skoða vísitölu án húsnæðisliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur ekki á óvart

Þessar niðurstöður koma ekki á óvart. En forvígismenn þessa máls munu auðvitað horfa framhjá röksemdunum eins og þeir hafi gert til þessa og úthrópað þá sem leyfa sér að gagnrýna forsendur þeirra sem andstæðinga almenningssamgangna.

Það er stórfurðulegt að öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu skuli hafa látið þessa vitleysinga teyma sig af stað út í þetta fen.

 


mbl.is Segir áhrif borgarlínu ofmetin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. febrúar 2018

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 287306

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband