Furðulegur dómur

Í dómsorði Hæstaréttar segir:

"Samkvæmt 76. gr. laga nr. 2/1995 er stjórn hlutafélags óheimilt að gera neinar þær ráðstafanir, sem bersýnilega eru fallnar til að afla ákveðnum hluthöfum ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað annarra hluthafa eða félagsins. Um gildissvið þessa ákvæðis, sem tekur mið af almennri reglu um að stjórn hlutafélags beri að gæta jafnræðis milli hluthafa, verður að líta til þess að í 55. gr. laganna er hlutafélagi heimilað að eignast með kaupum eigin hluti, sem megi þó ekki vera fleiri en sem svarar 10% af hlutafé þess, en til slíkra ráðstafana þurfi heimild hluthafafundar til félagsstjórnar, sem aðeins megi veita tímabundið. Áskilið er í þessari lagagrein að heimild hluthafafundar þurfi að taka til hámarksfjölda hluta, sem félagið megi eignast, og „lægstu og hæstu fjárhæð“, sem reiða megi fram sem endurgjald."

Og niðurstaðan í stuttu máli: 

"Í þessu felst að hluthafafundur getur að lögum heimilað stjórn að taka ákvörðun um að félag greiði í kaupum á eigin hlutum hærra eða lægra verð en nemur markaðsverði hverju sinni."

 Hæstiréttur kemst í stuttu máli að þeirri niðurstöðu að þótt stjórn sé óheimilt að mismuna hluthöfum megi hún það þegar um hlutafjárkaup er að ræða.

Við þessa niðurstöðu er tvennt að athuga:

Í fyrsta lagi, eins og fram kemur í dómnum, grundvallast 76. gr. laganna á almennri reglu um að stjórn beri að gæta jafnræðis. Það að slík almenn regla sé til og hún liggi lögunum til grundvallar hefði maður ætlað að leiddi af sér að þegar lagagreinar stangast á væri litið til almennu reglunnar. En það er bersýnilega ekki gert hér.

Í öðru lagi er erfitt að sjá hvernig hægt er að túlka skilyrði um hámarksfjölda hluta og hámarksfjárhæð öðruvísi en þannig að heimildin leyfi kaup á ákveðnum fjölda hluta en þó ekki fyrir meira en hámarksfjárhæðina. Með þeirri túlkun væri þessi grein í samræmi við hina almennu reglu um að stjórn sé skyldugt að gæta jafnræðis hluthafa. Það þarf sumsé að seilast ansi langt til að draga þá ályktun að reglan um hámarksfjölda og hámarksfjárhæð leyfi greiðslu yfirverðs.

Ekki verður betur séð en Hæstiréttur telji skyldu til að gæta jafnræðis felast í meginreglu hlutafélagalaganna. Ég hélt satt að segja að þegar bein lagaákvæði stangast á bæri dómara að túlka þau í ljósi meginreglunnar. Þetta er því furðulegur dómur og vekur að óbreyttu spurningu um hæfni (ekki hæfi!) dómaranna sem málið dæmdu!


mbl.is Skelfileg skilaboð frá Hæstarétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Muddur

Það sem ég skil ekki í þessu er að vissulega leyfir 55. greinin það að félag kaupi eigin hluti, að hámarki 10%. En það segir ekkert um það í téðri lagagrein að þessi 10% þurfi að vera frá einum og sama aðilanum, hvað þá ef verð hlutanna er á yfirverði. Ég hefði haldið að gæta þyrfti þess að brjóta ekki 76. gr., þegar svo ber undir að hlutakaup félagsins fara fram á undir- eða yfirverði, þ.e. að öllum hluthöfum skyldi bjóðast að selja 10% af hlutum sínum til félagsins á þessu verði. Ef svo auðvitað einhverjir hluthafar myndu ekki þiggja boðið, þá gæti félagið ráðið af hverjum það keypti þá hluti, sem upp á vantar í þessi 10%, t.d. af Bjarna Ármannssyni.

Sem sagt, lykilatriðið í þessu væri þá það, að fyrst skyldi bjóða öllum hluthöfum sama díl, og ef þeir afþökkuðu, þá fyrst gæti félagið keypt af þeim sem þeir vildu. Þar með væri tryggt jafnræði allra hluthafa.

Muddur, 30.10.2009 kl. 12:48

2 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Hjartanlega sammála þinni gagnrýni: "Ég hélt satt að segja að þegar bein lagaákvæði stangast á bæri dómara að túlka þau í ljósi meginreglunnar. Þetta er því furðulegur dómur og vekur að óbreyttu spurningu um hæfni (ekki hæfi!) dómaranna sem málið dæmdu!"  Ég tel að Hæstiréttur hafi viljandi tekið "þröngt fáranlegt & vitlaust sjónarmið og dæmt svo út frá því = slíkt skilar af sér mjög slæmum & röngum dóm - það kæmi mér ekki á óvart að Jón Steinar hafi verið einn af þessum dómurum...lol....nenni ekki að athuga það - gef mér það bara því dómurinn er svo vitlaus að það hálfa væri nóg = því gef ég mér að fingraför félaga míns Jóns Steinar séu þarna....

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 30.10.2009 kl. 13:16

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Takk fyrir innleggin. Jón Steinar var reyndar ekki í þessum hópi eftir því sem ég kemst næst.

Þorsteinn Siglaugsson, 30.10.2009 kl. 15:01

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Með þessum dómi er Hæstiréttur að kasta sprengju inn í viðkvæmt samfélag. Hlutabréfamarkaður er í upplausn og þessi dómsniðurstaða er ekki hvetjandi. Hyggilegt hefði verið að staðfesta héraðsdóm sem var vel rökstuddur. Málsástæður áfrýjanda og þar með Hæstaréttar eru byggðar á „standard“ ákvæði sem fylgt hefur hluthafafundum lengi. En með hliðsjón af ástandinu í dag, hruninu og öllu því þá mátti þetta ekki gerast.

Það kann vel að vera að þetta sé löglegt en það er með öllu siðlaust.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 30.10.2009 kl. 15:16

5 identicon

Guðjón: Þvílíkt bull, hæstiréttur á að dæma eftir lögunum og ENGU öðru.

kris (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband