Eina viðhorfið sem mér er unnt að hafa

"Ég get ekki einblínt á eigin hagsmuni þegar ég stend frammi fyrir þeim hörmungum sem þessi röklausi óttafaraldur er að valda heimsbyggðinni."

Ég er rúmlega fimmtugur, rétt svo innan þess aldurshóps sem er í einhverri hættu vegna Covid-19. Ef ég smitast er mögulegt að ég gæti dáið úr pestinni. Líkurnar eru ekki miklar, en þær eru til staðar.

Ég veit að útgöngubönn, samkomubönn, lokanir skóla og fjarlægðarmörk veita mér vernd, sé þeim viðhaldið eins lengi og með þarf. Ég veit að það verða 2-3 ár í það minnsta (ég reyni að forðast óskhyggju, bæði varðandi bóluefni og að tekin verði upp markviss vinnubrögð til að vernda viðkvæma hópa).

Heildarmyndin er ógnvekjandi

En ég veit líka að allar þessar aðgerðir munu án nokkurs minnsta vafa verða miklu fleira fólki að aldurtila en þær bjarga. Ég veit þetta vegna þess að ég fylgist með fréttum, kynni mér rannsóknir og afla mér upplýsinga víðsvegar úr heiminum, beint og óbeint. Og ég leitast við að setja þessar upplýsingar í samhengi.

Ég veit til dæmis að ef fólki undir hungurmörkum fjölgar um helming, líkt og Sameinuðu þjóðirnar spá nú, fyrst og fremst vegna þess að bönn og lokanir koma í veg fyrir að fátækasta fólkið geti séð sér farborða, og ef níu milljón manns dóu úr hungri á síðasta ári, þá megum við búast við að níu milljónir til viðbótar deyi úr hungri á þessu ári og því næsta.

Ég veit líka að það má búast við einhvers staðar á milli fimm og þrjátíu ótímabærum dauðsföllum fyrir hvert þúsund sem missir vinnuna. Það merkir að fyrir hverjar 100 milljónir sem verða atvinnuleysi að bráð vegna lokana og hindrana gætu hálf til þrjár milljónir manns dáið. Ég veit að menntun barna og ungmenna bíður mikinn skaða, sérstaklega þeirra sem standa höllustum fæti, að við dæmum mörg börn til óhamingju og sköðum heilsu þeirra - það vekur mér óhug að sjá ung börn þvinguð til að bera daglangt grímur sem hefta andardrátt þeirra. Og ungt fólk fær ekki störf, gefst upp á námi, glatar voninni. Og það að glata voninni dregur marga til dauða.

Samfélagsgæðum fórnað til að fresta því óumflýjanlega

Ég veit líka að þau grunnkerfi sem halda velferð okkar uppi skaðast varanlega. Við sjáum nú þegar áhrifin á heilsugæsluna, bólusetningar barna, greiningar alvarlegra sjúkdóma. Og þegar fjármagnið fer í alvöru að þverra hættum við að geta meðhöndlað fólk sem við hefðum annars getað meðhöndlað. Þannig munu milljónir deyja.

Ég veit líka að ríflega milljón manns hafa dáið úr Covid-19, og ef miðað er við nýjustu tölur um dánartíðni má búast við að 3-5 milljónir gætu dáið úr pestinni áður en yfir lýkur, að því gefnu að bóluefni stöðvi hana ekki - því pestin lýkur sínu verki, hún breiðist út, sama hvað reynt er til að tefja fyrir. En þetta verða alltaf langtum færri en þeir sem verða faraldri hins röklausa ótta að bráð á endanum.

Eina viðhorfið sem mér er unnt að hafa

Ég veit að allar þessar aðgerðir sem fylgja óttanum við pestina draga úr líkunum á að ég smitist. En þegar ég spyr mig þeirrar spurningar, vitandi það sem ég veit nú þegar, hvort ég geti yfirleitt samþykkt að allt sem hægt er sé gert til að vernda mig, er niðurstaðan sú að mér er það ómögulegt. Það er ekki vegna þess að ég sé leiður á lífinu, fjarri því. Og ég er einn þeirra heppnu. Ég er ekki meðal þeirra tugþúsunda sem misst hafa vinnuna hérlendis. Ég er ekki einn þeirra hundrað milljón jarðarbúa sem hvergi eiga heima. Ég get sinnt verkefnum mínum í fjarvinnu, og verkefnunum hefur bara fjölgað í þessu ástandi.

Vitanlega reyni ég að gæta mín eftir bestu getu.  En ég get einfaldlega ekki krafist þess að unga kynslóðin og það fólk sem stendur höllustum fæti þurfi að glata lífsviðurværinu, voninni, og jafnvel lífinu, aðeins til að vernda mig. Ég get ekki einblínt á eigin hagsmuni þegar ég stend frammi fyrir þeim hörmungum sem þessi röklausi óttafaraldur er að valda heimsbyggðinni.

Þetta er ekki vegna þess að ég sé eitthvert sérstakt góðmenni eða eitthvað sérstaklega fórnfús. Ég er ekkert betri manneskja en hver annar. En fyrir mér er þetta viðhorf einfaldlega svo eðlilegt að ég hugsa ekki einu sinni út í það: Þegar maður stendur frammi fyrir ógn við mannkynið hlýtur maður að bregðast við á grundvelli hagsmuna mannkynsins alls. Hagsmuna hinna ungu. Hagsmuna framtíðarinnar. Annað er einfaldlega óhugsandi. Það er eina skýringin sem ég hef.

Er það rétt af mér að hafa þetta viðhorf? Ég veit það ekki. En þetta er eina viðhorfið sem mér er unnt að hafa.

(Morgunblaðið 7. nóvember 2020)

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Flott grein. Takk fyrir.

Benedikt Halldórsson, 7.11.2020 kl. 11:32

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Takk Benedikt.

Þorsteinn Siglaugsson, 7.11.2020 kl. 11:37

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Þorsteinn og þakka þér fyrir að deila góðri grein. Það getur líka verið affarasælt að leggja mat á stöðuna út frá eigin reynsluheimi, frekar en þeim sem upplýsingasamfélagið básúnar. Til þess getur þurft að slökkva á símanum og sjónvarpinu og bregða sér hinu merginn við skjáinn. 

Hvað mig varðar þá er ég sennilega um 10 árum eldri en þú og ætti því samkvæmt ritúaliniu að vera í meiri áhættu. Ég á auk þess við það að stríða að dæligeta hjartans út í líkamann skertist í 40% við hjartaáfall fyrir nokkrum árum. Var sagt að þar væri um viðvarandi skerðingu að ræða sem kallast hjartabilun, -sem hefur jú vissulega reynst mér erfið.

Mér hefur samt ekki dottið eitt augnablik í hug að aðrir ættu að skerða sitt líf vegna þess að ég sé skertur. Ef hjartaáfallið kenndi mér eitthvað, sem ég vissi ekki fyrir, þá er það að lífsgæði eru eftirsóknarverðari en lífslengd. Kóvítið er eitthvað það alleiðinlegasta tímabil sem ég hef upplifað.

Magnús Sigurðsson, 7.11.2020 kl. 11:55

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þetta er einmitt, held ég, hin heilbrigða afstaða, Magnús. Ég held að auk óttans sé vandamálið skefjalaus sérhyggja. Það má allt fara fjandans til, bara svo lengi sem ég er í skjóli. Ég held að þessari sérhyggju hafi alvarlega farið að vaxa fiskur um hrygg um og upp úr miðri síðustu öld. Í heimstyrjöldunum streymdu ungir menn út á vígvöllinn til að verja land sitt og þjóð. Þeir vissu auðvitað hvernig gæti farið, en þeir vissu af sér ekki aðeins sem einstaklingum, heldur sem hluta samfélags sem var stærra en þeir sjálfir. "Ekki spyrja hvað land þitt getur gert fyrir þig, spyrðu hvað þú getur gert fyrir land þitt" sagði Kennedy. Þetta var viðhorfið. En það hefur breyst. Kannski er það að hluta okkur frjálshyggjumönnum að kenna. Og nú súpum við kannski seyðið af því - sérhyggjan hirðir í einu vetfangi af okkur frelsið sem tók aldir að öðlast.

Þorsteinn Siglaugsson, 7.11.2020 kl. 12:35

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Þorsteinn.

Við erum  vissulega ekki sammála, en mér finnst þetta góð grein, vel rituð.

Kemur sjónarmiðum þínum vel til skila.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 7.11.2020 kl. 13:58

6 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Takk Ómar.

Þorsteinn Siglaugsson, 7.11.2020 kl. 14:24

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Gott innlegg í helgina.

Ragnhildur Kolka, 7.11.2020 kl. 15:29

8 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þakka þér Ragnhildur.

Þorsteinn Siglaugsson, 7.11.2020 kl. 15:32

9 Smámynd: Geir Ágústsson

Frábær grein og einlæg og ég velti því fyrir mér hvað stórt hlutfall "viðkvæmra hópa" eru sammála en þora ekki að tjá sig. 

Rambaði á þessa frétta frá USA:

https://www.foxnews.com/us/colorado-seniors-protest-coronavirus-restrictions-we-want-to-see-our-families

“We want to see our families,”

Geir Ágústsson, 9.11.2020 kl. 12:11

10 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Takk Geir. Áhugaverður linkur. Ég gæti trúað að margt gamalt fólk hér hugsi á svipaðan hátt. 

Þorsteinn Siglaugsson, 10.11.2020 kl. 09:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 287360

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband