Mikilvægt að horfa raunsætt á málið

Hér er um alveg nýja tegund bóluefnis að ræða, sem aldrei hefur verið notuð á fólk áður. Bóluefnið verkar þannig að það lætur frumur líkamans framleiða samskonar prótín og eru í veirunni. Næsta skref í þessu, eftir þriðja fasa tilraunir, er að rannsaka virkni og lengri tíma aukaverkanir á stórum hópi. Niðurstöður úr þeirri rannsókn koma eftir tvö ár. Fari bólusetningar í gang fljótlega er það á grundvelli undanþágu frá öryggisviðmiðum. Fólk þarf því sjálft að leggja mat á hvort það vill taka áhættuna. Fyrir þá sem eru í raunverulegri hættu vegna covid er það líklega vel þess virði, en fyrir ungt fólk gæti áhættan af lítt prófuðu bóluefni alveg verið umtalsvert meiri en hættan af pestinni, enda er ungt fólk í raun ekki í neinni hættu vegna hennar.

Hér er mjög upplýsandi grein um þetta sem ég hvet fólk til að kynna sér vel: Yes, the vaccine is really on its way


mbl.is „Vel í stakk búnir til að búa til þetta nammi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Er þetta erfðabreytt að einhverju leyti?

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 10.11.2020 kl. 13:45

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ekki hugmynd. En það mun vera svona sem þetta virkar. Skoðaðu endilega þessa grein. Hún er mjög upplýsandi og einnig hlutlaus.

Þorsteinn Siglaugsson, 10.11.2020 kl. 13:56

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Gamlir hvítir hanar sem rótast um í skíthaugnum ætla ekki í bólusetningu fyrsta kastið; „Hraust­ir ung­ir menn eins og ég og þú (blaðamaður) verðum látn­ir mæta af­gangi. En því ber að halda til haga að bólu­setn­ing­in gagn­ast ein­stak­ling­un­um sem fá það en um leið sam­fé­lag­inu í heild. Bólu­setn­ing­in gagn­ast því ein­stak­ling­um núm­er eitt en fyrst og fremst er mik­il­vægt að hún vernd­ar sam­fé­lagið,“ seg­ir Kári.

Magnús Sigurðsson, 10.11.2020 kl. 14:45

4 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Það sem mér finnst undarlegast er að sumir ljá máls á því að fórna lýðræðinu og skylda fólk í bólusetningu. Þessar samsæriskenningar um að breyta fólki í geimverur, sem maður hefur ekki tekið trúanlegar verða sennilegri í slíku ljósi. Nei, ætli þetta sé ekki sama ruglið í góða fólkinu, að svo mörgu megi fórna fyrir markmið þeirra. Það mun þó sennilega aldrei gerast, því vesturlönd byggja á svo góðum lýðræðisgrunni, að fólk myndi væntanlega ekki sætta sig við það.

Annars er það rétt, að margt hefur verið með ólíkindum í þessum faraldri, og hvað hann hefur haft mikil áhrif á stjórnkerfið. Það er vel hægt að bera þetta saman við Svínaflensuna 2009, þar sem viðbrögðin voru miklu minni.

Ingólfur Sigurðsson, 10.11.2020 kl. 21:51

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég efast um að það sé löglegt að ætla að skylda fólk til bólusetningar. Það er ekki einu sinni skylda að fólk láti bólusetja börn sín jafnvel þótt bóluefnin sem þar eru notuð séu margreynd. Og sé það ekki skylda, hvað þá þegar um er að ræða nánast óprófað bóluefni.

En það vekur sannarlega ugg að heilbrigðisráðherra virðist gera sér í hugarlund að þetta sé möguleiki.

Þorsteinn Siglaugsson, 10.11.2020 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 287273

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband