Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
29.3.2021 | 10:54
Enginn á spítala - þarf greinilega ekki mikið til!
Heilbrigðiskerfið á hliðinni og fólk vinnur sleitulaust, en það er enginn á spítala með kóvít.
Hvers konar fréttamennska er þetta eiginlega?
Fólk hefur bara unnið stanslaust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.3.2021 | 23:34
Nú á að taka nasismann á þetta
Nú telur Kári Stefánsson tíma til kominn að ráðast gegn fólki af erlendum uppruna og koma ábyrgðinni á ástandinu yfir á það.
Ástandi sem þetta fyrirbrigði ber sjálft meginábyrgð á.
Ástandi þar sem ríkið er að tapa fjórðungi ársteknanna næstu árin vegna heimsku og skeytingarleysis fyrirbrigðisins og fáránlega heimskra stjórnmálamanna.
Ástandi þar sem sálsýki hefur tekið við sem drifkraftur ákvarðana.
-------------
Og svo auðvitað að níðast á börnum.
Þetta lið verður sífellt geðslegra!
Kári: Annað í þessu sem má ekki ræða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.3.2021 kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.3.2021 | 17:21
Hvers vegna voru allar viðvaranir hunsaðar?
Strax síðastliðið vor spáðu Sameinuðu þjóðirnar fyrir um þær afleiðingar sem lokanir og ferðabönn myndu hafa. Fólki undir hungurmörkum myndi fjölga um helming.
Fyrir lá að árið 2019 létust níu milljón manns úr hungri. Af þessu tvennu mátti ráða að búast mætti við að fjórar og hálf milljón bættist í þennan hóp árlega meðan sálsýkin stæði yfir.
Á þetta var ekki hlustað.
Aðrir vöruðu við heilsufarslegum afleiðingum fjöldaatvinnuleysisins sem leiðir af aðgerðunum. Bent var á að reikna megi með 10-30 ótímabærum dauðsföllum fyrir hvert eitt þúsund sem verður atvinnuleysi að bráð.
Á þetta var ekki hlustað.
Ennfremur var bent á þær geigvænlegu afleiðingar sem lokanir skóla og bönn við tómstundastarfi barna og ungmenna myndu hafa, geðræn áhrif á stóran hluta almennings, og sjálfsvígin og heilsufarsvandamálin sem þessu fylgdu.
Á þetta var ekki hlustað.
Áfram hefur verið haldið með einhverja hættulegustu og afdrifaríkustu tilraun til að stemma stigu við útbreiðslu pestar sem nokkurn tíma hefur verið ráðist í. Ítrekað var varað við því að í lýðræðissamfélögum kæmu slíkar aðgerðir að litlu sem engu gagni.
Á þetta var ekki hlustað. En nú, ári síðar, sjáum við glöggt að aðgerðirnar hafa ekki aðeins hrundið hundruðum milljóna í eymd, fátækt og dauða, heldur hafa þær ekki einu sinni komið að neinu gagni við að tefja fyrir útbreiðslu pestarinnar. Þetta sést glöggt til dæmis þegar þróun sóttarinnar í Svíþjóð er borin saman við önnur Evrópulönd, þegar þróunin í Norður- og Suður-Dakóta í Bandaríkjunum er borin saman, og þegar þróunin á Flórída og í Kaliforníu er borin saman.
En jafnvel þótt allt það sem þeir sem höfðu hugsun á að líta á heildarmynd hlutanna sé komið á daginn er enn ekki hlustað. Áfram er haldið að berja höfðinu við steininn. Því linnir ekki fyrr en fjöldasálsýkinni linnir. En hvenær linnir henni?
Ég á ekki pening fyrir mat | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2021 | 14:18
Á lygaáróðurinn sér engin takmörk?
Hvernig á það að geta staðist að ef hálf milljón af 330 milljónum Bandaríkjamanna hefur dáið úr kóvít eigi þriðji hver Bandaríkjamaður ástvin í þessum hópi?
Stutta svarið er að það stenst auðvitað alls ekki. Til þess þyrfti hver Bandaríkjamaður að eiga rúmlega 200 ástvini.
Eru virkilega engar kröfur gerðar um sannsögli á ritstjórn Morgunblaðsins?
Þriðji hver Bandaríkjamaður misst ástvin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2021 | 16:44
Hamfarablæti Morgunblaðsins
Heil opna lögð undir viðtöl við einstaklinga sem fengu slæma flensu.
En 12.000 manns hafa væntanlega smitast af þessari flensu hér. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra aldrei fundið fyrir einkennum, eða fengið mjög væg einkenni.
Hvers vegna tekur Morgunblaðið ekki viðtöl við eitthvað af því fólki?
Hvers vegna gerir blaðið enga tilraun til að setja hlutina í samhengi?
Er hamfarablætið grundvöllur ritstjórnarstefnu þessa blaðs?
Hænuskref í átt að bata | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2021 | 11:31
Hamfaraklám í boði æsingamanns
"Fimmti hver sem smitast af veirunni veikist illa" staðhæfir þessi einstaklingur, og ekki í fyrsta sinn sem hann fer fram með staðlausa stafi um þessa pest.
Staðreyndin er sú að 95% þeirra sem smitast af kórónaveirunni finna engin eða væg einkenni. Það er því tuttugasti hver, ekki fimmti hver sem veikist, og algengustu veikindin eru sambærileg venjulegri flensu.
"Fjórðungurinn af þeim (sem veikjast) verða fárveikir eða deyja" staðhæfir einstaklingurinn líka. Það væru þá 5% þeirra sem smitast í raun og veru, en 10% af þeim sem æsingamaðurinn segir smitast. Sé byggt á niðurstöðum skimana og ónæmisrannsókn ÍE er raunhæft að áætla að um 12.000 manns hafi smitast af veirunni hérlendis. Innlagnir á sjúkrahús eru samtals 327. Það eru ríflega 2,5% þeirra sem hafa smitast, en auðvitað staðhæfir æsingamaðurinn að talan sé fjórfalt hærri.
Þessi umfjöllum Morgunblaðsins er glöggt dæmi um það sem gerist þegar fjölmiðlar láta staðreyndir og gagnrýna umfjöllun lönd og leið, en dæla þess í stað út ósannindum eins og enginn sé morgundagurinn.
Hvers vegna? Jú, til að þjóna hamfarablætinu sem hefur gripið um sig í samfélaginu. Það er eina skýringin á því að á ársafmæli veirufársins er hvergi minnst á þær tugþúsundir sem lífsviðurværið hefur verið hirt af, hvergi minnst á efnahagslegu skakkaföllin sem munu stórskaða heilbrigðis- og velferðarkerfið til framtíðar, hvergi minnst á unga fólkið sem sér upp til hópa framtíð sína í uppnámi vegna lokana og hindrana. Hvergi minnst á öll dauðsföllin sem af þessu leiða og verða þegar upp er staðið án nokkurs minnsta vafa margfalt fleiri en nokkurn tíma hefðu getað látist úr pestinni.
Vandaður fjölmiðill gætir jafnvægis í umfjöllun sinni, en einblínir ekki aðeins á eina hlið og velur sér ekki heimildarmenn sem hafa sýnt sig að því að vera ekki treystandi.
Ég hef verið áskrifandi að Morgunblaðinu í þrjátíu ár, vegna þess að í megindráttum hefur verið hægt að treysta því að blaðamennskan standist lágmarkskröfur. Ég vona að ég þurfi ekki að fara að hætta því.
Fór fram úr okkar björtustu vonum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.2.2021 | 17:05
Er þetta ekki efnið sem Svíar stöðvuðu notkun á?
Það er auðvitað frábært að fólkið sé svona ánægt og þakklátt fyrir að veikjast. Og frábært hversu vel allir taka því að vera sprautaðir með bóluefni sem hefur svo háa tíðni aukaverkana að annað eins þekkist varla í sögunni. Efni sem sænsk stjórnvöld stöðvuðu notkun á þegar þetta kom í ljós. En á Íslandi fara stjórnvöld auðvitað ekki að taka upp á slíku, enda má ekki skemma gleðina fyrir þeim sem veikjast af því
Meira um aukaverkanir en búist var við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.2.2021 | 18:19
Einkennileg röksemdafærsla - en það kemur nú ekki á óvart
Það er undarleg röksemdafærsla að vegna þess hve fáir eru að smitast hér sé ekki hægt að mæla hvaða áhrif það hefur á smit ef þorri þjóðarinnar verður bólusettur. Verkefnið myndi vitanlega snúast um að bólusetja fólk, létta svo af öllum hömlum, og sjá síðan hvort bólusetningin virkar. Það hvort mörg eða fá smit eru að greinast daglega ætti ekki að skipta neinu máli: Ef bóluefnið virkar verða fá eða engin smit þegar hömlum er létt af. Ef það virkar ekki verða þau mörg. Flóknara er það nú ekki.
En órökvísin kemur ekki á óvart.
Mjög litlar líkur á að verði af þessu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.2.2021 | 13:31
Hvert er samhengið?
Örfá smit greinast. Enginn hefur látist úr veirunni síðan á annan tug aldraðra á Landakoti dó vegna slóðaháttar og þrákelkni gagnvart beitingu hnitmiðaðra aðgerða. En áfram skal haldið að þrengja að almenningi með alls kyns kjánalegum hindrunum, boðum og bönnum. Og áfram skal haldið að meina fólki að vinna fyrir sér.
Atvinnuleysi hér í desember var 10,6%. Á sama tíma ári fyrr var það 4,4%. Með öðrum orðum ganga nú 7.500 manns atvinnulaus vegna aðgerða gegn veirunni. Samkvæmt ágætri greiningu National Bureau of Economic Research í Bandaríkjunum má gera ráð fyrir að á næstu 15 árum verði 20 dauðsföll á hverja þúsund sem misst hafa vinnuna. Ef við setjum þetta í samhengi við Ísland þýðir þetta 150 dauðsföll. Aðeins vegna atvinnuleysis, svo er allt hitt.
Eða er þetta kannski bara "vegna veirunnar" eins og stundum er haldið fram?
Í Svíþjóð fór atvinnuleysi úr 7% í 9,2% á sama tíma. Hver er munurinn? Í Svíþjóð var látið eiga sig að drepa samfélagið í dróma. Atvinnuleysi þar jókst um 23%. Hér var öllu skellt í lás. Atvinnuleysi jókst um 140%.
Það eru aðgerðirnar sem eru sökudólgurinn. Ekki veiran.
Fólk villi vísvitandi um fyrir stjórnvöldum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2021 | 20:20
Raunveruleg drepsótt
Ég var spurður að því um daginn hver skilgreiningin á drepsótt væri. Varð fátt um svör en taldi að sóttin þyrfti í það minnsta að ná að drepa 1% þeirra sem fengju hana.
Ebóla drepur 66% þeirra sem smitast. Það er raunveruleg drepsótt.
En það er enginn að vinna myrkranna á milli að því að finna bóluefni gegn ebólu. Enda eru það bara dökkir útlendingar í heitu löndunum sem deyja úr henni. Og fátækir í þokkabót.
Svo kemur sótt sem drepur 0,1% þeirra sem fá hana, að því gefnu að ekkert sé gert til að verja þá sem eru í raun og veru í hættu.
Og þá er trilljónum eytt í að finna bóluefni - ekki verja þá sem eru í hættu. Og líf hundruða milljóna fólks lagt í rúst í leiðinni.
Ég ætla að leyfa mér að kalla þá sem styðja þetta siðleysingja - jafnvel siðblindingja!
Ebóla greinist á ný í Afríku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar