Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
6.9.2020 | 23:38
Hvílíkt þvaður!
Hér má sjá þróun dauðsfalla á Bretlandi frá upphafi faraldursins. Eins og sést eru þau nánast engin nú. Hversu langt ætlar veruleikafirringin að ganga?
Þau hafa misst tökin á faraldrinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.9.2020 | 15:22
Hvað skýrir þennan skyndilega viðsnúning í gögnum?
Fram að 13. ágúst, þegar ákveðið var að loka landinu í raun fyrir ferðamönnum höfðu virk smit að jafnaði verið um 40% þess fjölda smita sem greindist á landamærunum.
En frá og með 13. ágúst eru virk smit skyndilega orðin 80% þeirra smita sem greinast á landamærum.
Þetta sést á myndinni, sem er tekin af Covid.is. Appelsínugulu stöplarnir eru óvirk smit, þeir bláu eru virk smit.
Sú skýring sem gefin hefur verið á þessu, að fjölgun smita erlendis sé svo gríðarleg, er einfaldlega ekki trúverðug. Það er hvergi um að ræða einhverja slíka sprengingu í smitum að það skýri þetta. Neðri myndin sýnir þróun nýrra smita í Þýskalandi, bara dæmi um land sem hefur verið nokkuð stórt í ferðamennsku hér. Er eitthvað að gerast þar undir miðjan ágúst sem gæti skýrt þetta? Bersýnilega ekki neitt.
Maður spyr sig því, hvað breyttist? Urðu einhverjar breytingar á aðferðum við greiningu sýnanna? Varð einhver breyting á því hvaða aðili sér um greininguna?
Það væri altjent áhugavert ef hægt væri að fá óháðan aðila til að yfirfara þessi sýni og sannreyna niðurstöðurnar. Hin skyndilega breyting gefur svo sannarlega meira en fullt tilefni til þess. Hver einasti vísindamaður sem vill láta taka sig alvarlega myndi hafa áhyggjur af svo skyndilegum viðsnúningi í rannsóknargögnum og ekki láta handarbaksskýringar nægja sér.
Segir Jón Ívar snúa hlutum á hvolf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.9.2020 | 21:35
Hárrétt hjá Friðrik
Friðrik hefur mikið til síns máls. Sé markmiðið óljóst eða háð sífelldum ófyrirsjáanlegum breytingum er útilokað að gera sér neina grein fyrir því hverju búast má við. Sé markmiðið hins vegar skýrt er hægt að móta mismunandi sviðsmyndir og bregðast við á grunni þeirra.
Hérlendis virðast stjórnvöld því miður ekki hafa nokkra minnstu hugmynd um markmið sitt. Það setur í rauninni samfélagið allt í uppnám.
Það er lágmarkskrafa að stjórnvöld geri grein fyrir því hvort markmið þeirra er að tryggja afkastagetu heilbrigðiskerfisins, að reyna að koma í veg fyrir að nokkur maður smitist af flensunni, eða reyna að hindra að Kári Stefánsson fari í fýlu. Lægi þetta fyrir væri hægt að vinna eftir því, en meðan það liggur ekki fyrir er óvissan alger.
Stjórnvöld hérlendis hafa í rauninni opinberað algera vangetu sína til að takast á við stöðuna og það er að valda gríðarlegu tjóni.
Segir þörf á skýrri stefnu stjórnvalda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.9.2020 | 08:11
Alltaf batnar það
Nú ræðst taugalæknirinn, sem ríkisstjórnin og allir aðrir virðast farnir að ímynda sér að sé farsóttasérfræðingur, á prófessor sem tjáir sig um málið, og virðist reyna að gera lítið úr skoðunum prófessorsins vegna þess að hann sé ekki farsóttasérfræðingur.
Hvað er annars eiginlega svona "stórhættulegt?" Einhver velt því fyrir sér? Nánast enginn að deyja úr þessum vírus lengur neins staðar þótt smitum fjölgi stöðugt? Hvað er stóra málið?
En, svo aftur sé vikið að rökstuðningnum þarna: Með hvaða hætti er það eitthvað einfaldara að fylgjast með því að fólk haldi sig í sóttkví en að það haldi sig heima án þess að vera í sóttkví? Bíður löggimann fyrir utan hjá þeim sem eru í sóttkví og háfar þá ef þeir sleppa út? Er settur svona gulur borði eins og á glæpavettvangi og íbúðirnar innsiglaðar?
Er ekki kominn tími til að draga djúpt andann, Kári Stefánsson, og slaka á í æsingnum?
Jafnvel þótt þú berir kannski ábyrgðina á vitleysunni þarftu ekki endilega að verja hana fram í rauðan dauðann í stað þess að viðurkenna einfaldlega mistökin?
Stórhættulegt að skipta í heimasmitgát | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.9.2020 | 18:07
Breytist þegar fólk fer að missa húsnæðið
Þessar niðurstöður koma ekki á óvart, enda eru afleiðingar þessara víðáttuheimskulegu og óígrunduðu skemmdarverka ekki farnar að koma í ljós.
Þetta snýst við þegar þúsundir fara að sjá fram á að missa heimili sín og lífsviðurværið.
Almenn ánægja með sóttvarnaaðgerðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.9.2020 | 14:26
Hið brenglaða viðhorf í hnotskurn!
Það getur ekki verið að fólki finnist það bara í lagi að fólk leggist inn á spítala. Ef það er afstaða fólks eru þessar aðgerðir náttúrlega íþyngjandi, en þær eru gagnlegar með tilliti til heilsuverndandi sjónarmiða og ég styð þær heilshugar, segir Már.
Þetta viðhorf, að það sé með einhverjum hætti óeðlilegt eða ónáttúrulegt að til þess geti komið að fólk þurfi að leggjast inn á spítala, segir meira en mörg orð.
Hversu raunveruleikafirrtur þarf maður að vera til að láta svona lagað út úr sér?
Styður aðgerðirnar heilshugar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2020 | 23:25
Farið að seilast ansi langt
Það er undarlegur rökstuðningur að sú niðurstaða að fólk myndi mótefni við veirunni sýni réttmæti þess að loka landamærunum. Eða þá að það, sem löngu var vitað, að aðeins brot af þjóðinni hefur þegar smitast sýni fram á þetta.
Það er bersýnilegt að sá sem líklega er upphafsmaðurinn að þeim stórskaðlegu aðgerðum sem ráðist var í og eru nú að hrekja þúsundir inn í óvissa framtíð atvinnuleysis og fátæktar, með þeim afleiðingum sem það hefur, er kominn í svo örvæntingarfulla vörn fyrir fáránlega og glæpsamlega ákvörðun, að það er engin heil brú í málflutningnum lengur.
Það er ábyrgðarhluti af fjölmiðli að setja svona fréttir fram eins og hér sé um vísindalega niðurstöðu að ræða.
Niðurstöðurnar sanni ágæti tvöfaldrar skimunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.8.2020 | 15:51
Mikilvægt að bíta ekki hendina sem fæðir mann
Fríhöfnin er ríkisfyrirtæki. Vitanlega verða stjórnendur slíkra fyrirtækja að gæta þess að bíta ekki höndina sem fæðir þá. Gagnrýni á heimskulegar stjórnvaldsákvarðanir gæti verið varasöm fyrir fólk í slíkri stöðu.
Segir aðgerðir stjórnvalda ekki aðalatriðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.8.2020 | 20:25
Hvar er nýja stjórnarskráin?
30.8.2020 | 16:33
Áhyggjuefni að þetta sé frétt
Það er mikið áhyggjuefni að afstaða Kára Stefánssonar til þess hvort sóttkví eftir skimun sé skynsamleg ráðstöfun eða ekki skuli vera fréttnæm. Það hvort svo er ræðst af áhrifunum á samfélagið allt. Og ég hef hvergi séð að þessi einstaklingur hafi unnið einhverja heildstæða greiningu á því. Hann veit ósköp einfaldlega ekkert um það. Og staðhæfingar hans um að með þessari seinni skimun verði bara allt eins og venjulega hérlendis eru einfaldlega fáránlegar. Það er algerlega útilokað að hægt sé að koma í veg fyrir útbreiðslu svona veiru.
Allan málflutning Kára Stefánssonar í þessu verður að meta í ljósi þess að nú er hann kominn í vörn fyrir ákvörðun sem tekin var í móðursýkiskasti. Því hefur heyrst fleygt að ástæðan hafi verið hótanir hans sjálfs. Það væri þá ekkert nýtt.
Eftir á að hyggja er raunar öll þessi skimanasaga skólabókardæmi um óstjórn og vanstillingu. Fyrst er ákveðið að opna landið og skima alla, að tillögu Kára Stefánssonar. Opinbera kerfið hefur ekki getu til þess og Kári býðst til að taka það að sér. Engum dettur í hug að ganga þá frá samningi um það verkefni, hversu lengi það eigi að standa, hvað verði greitt fyrir og svo framvegis. Bara vaðið af stað í trausti þess að maður sem í mörg ár hefur gert sér það helst til dundurs að níða niður skóinn af sömu stjórnmálamönnum og hann býðst nú til að hjálpa sjái bara um málið. Nokkrum dögum síðar ákveður hann svo auðvitað fyrirvaralaust að draga sig út úr verkefninu sem hann sjálfur átti frumkvæði að. Ráðherraábyrgð kemur æ oftar upp í hugann.
Þrír smitaðir: Seinni skimun bráðnauðsynleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar