Hið brenglaða viðhorf í hnotskurn!

„Það get­ur ekki verið að fólki finn­ist það bara í lagi að fólk legg­ist inn á spít­ala. Ef það er afstaða fólks eru þess­ar aðgerðir nátt­úr­lega íþyngj­andi, en þær eru gagn­leg­ar með til­liti til heilsu­vernd­andi sjón­ar­miða og ég styð þær heils­hug­ar,“ seg­ir Már. 

Þetta viðhorf, að það sé með einhverjum hætti óeðlilegt eða ónáttúrulegt að til þess geti komið að fólk þurfi að leggjast inn á spítala, segir meira en mörg orð.

Hversu raunveruleikafirrtur þarf maður að vera til að láta svona lagað út úr sér?


mbl.is Styður aðgerðirnar heilshugar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Lokatakmarkið hlýtur að vera að ríkið gangi frá húsi til húss og fóðri alla með lýsisskeið á hverjum morgni, athuga stöðu hlýs fatnaðar meðal heimilisfólks og hvetur alla til að fara helst ekki út úr húsi. Með tíð og tíma hættir fólk að veikjast og þá er hreinlega hægt að loka spítölunum.

Geir Ágústsson, 2.9.2020 kl. 16:20

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ágætur kunningi minn sem hefur starfað víða um heim og kynnst mörgu sagði mér það í vor að honum þætti sem panikkin út af þessu grundvallaðist á því að á Vesturlöndum væri fólk farið að líta á veikindi og hvað þá dauða sem eitthvað ónáttúrlegt, ekki hluta af lífinu sjálfu. Svo kæmi hann til þróunarlanda og þar væri viðhorfið allt annað og miklu heilbrigðara.

Þorsteinn Siglaugsson, 2.9.2020 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 287357

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband