Áhyggjuefni að þetta sé frétt

Það er mikið áhyggjuefni að afstaða Kára Stefánssonar til þess hvort sóttkví eftir skimun sé skynsamleg ráðstöfun eða ekki skuli vera fréttnæm. Það hvort svo er ræðst af áhrifunum á samfélagið allt. Og ég hef hvergi séð að þessi einstaklingur hafi unnið einhverja heildstæða greiningu á því. Hann veit ósköp einfaldlega ekkert um það. Og staðhæfingar hans um að með þessari seinni skimun verði bara allt eins og venjulega hérlendis eru einfaldlega fáránlegar. Það er algerlega útilokað að hægt sé að koma í veg fyrir útbreiðslu svona veiru.

Allan málflutning Kára Stefánssonar í þessu verður að meta í ljósi þess að nú er hann kominn í vörn fyrir ákvörðun sem tekin var í móðursýkiskasti. Því hefur heyrst fleygt að ástæðan hafi verið hótanir hans sjálfs. Það væri þá ekkert nýtt.

Eftir á að hyggja er raunar öll þessi skimanasaga skólabókardæmi um óstjórn og vanstillingu. Fyrst er ákveðið að opna landið og skima alla, að tillögu Kára Stefánssonar. Opinbera kerfið hefur ekki getu til þess og Kári býðst til að taka það að sér. Engum dettur í hug að ganga þá frá samningi um það verkefni, hversu lengi það eigi að standa, hvað verði greitt fyrir og svo framvegis. Bara vaðið af stað í trausti þess að maður sem í mörg ár hefur gert sér það helst til dundurs að níða niður skóinn af sömu stjórnmálamönnum og hann býðst nú til að hjálpa sjái bara um málið. Nokkrum dögum síðar ákveður hann svo auðvitað fyrirvaralaust að draga sig út úr verkefninu sem hann sjálfur átti frumkvæði að. Ráðherraábyrgð kemur æ oftar upp í hugann.


mbl.is Þrír smitaðir: Seinni skimun „bráðnauðsynleg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Kári kann að spila á þjóðina eins og blokkflautu og þarf engan Hannes til lengur, honum nægir tvöfaldur eyrnapinni.

Magnús Sigurðsson, 30.8.2020 kl. 18:35

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hárrétt Magnús. Þetta er skólabókardæmi um hvernig hægt er að ná völdum og telja fórnarlambinu trú um það um leið að maður sé að gera því greiða.

Þorsteinn Siglaugsson, 30.8.2020 kl. 18:54

3 Smámynd: Jón Magnússon

Góð grein og að mínu mati hárrétt greining Þorsteinn. En í sjálfu sér er ekki við Kára að sakast heldur stjórnmálamennina, sem þora ekki að taka sjálfir ákvarðanir. 

Jón Magnússon, 31.8.2020 kl. 08:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 287336

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband