6.6.2017 | 20:41
Sorgarsaga
Eins og vel hefur tekist til við byggingu Hörpu að mörgu leyti er dapurlegt að horfa upp á leynimakkið í kringum allt þetta mál og hvernig borgaryfirvöldum virðist algerlega fyrirmunað að gera bærilega raunhæfar áætlanir um reksturinn.
Vitanlega er sjálfsagt að bíða með svo mikla aukningu framlaga þar til úttekt hefur verið gerð á rekstrinum og skoða hvort hann megi bæta. Er ekki starfsmannafjöldinn t.d. þrefaldur á við það sem áætlað var?
Að lokum vekur það athygli að svo virðist sem Sjálfstæðismenn eigi nú aðeins einn borgarfulltrúa eftir. Hinir elta bara vitleysuna í Degi B. & Co. Alveg gagnrýnilaust.
![]() |
Stóraukin framlög til Hörpu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.6.2017 | 20:12
Hver er munurinn ...
... á útleigu íbúðar sem eigandinn býr að jafnaði í og útleigu annarrar íbúðar sem hann býr ekki í - hver eru rökin fyrir því að í síðara tilfellinu þurfi að greiða fyrir starfsleyfi og eftirlit en ekki í hinu fyrra? Er einhver eðlismunur á húsnæðinu, sem grundvallast á því hvort einhver býr í því að jafnaði? Er til dæmis aukin þörf fyrir eftirlit með húsnæði sem ekki er búið í að jafnaði og húsnæði sem búið er í að jafnaði? Er ekki nokkuð ljóst að það getur ekki staðist lagalega að leggja þessi gjöld ekki á þann sem á íbúð og sumarhús og flytur í sumarhúsið meðan íbúðin er í útleigu, en leggja þau hins vegar á þann sem á tvær íbúðir, býr í annarri og leigir hina út?
![]() |
Kostnaður lækkar með lagabreytingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.6.2017 | 23:57
Spillingarmálin eru víða
Ísland er því miður eitt spilltasta land heims. Það sannast hér enn og aftur þegar reynt er hvað eftir annað að vaða yfir landeigendur til að troða í gegn háspennulínum fyrir stóriðju, allt til að kaupa atkvæði handa spilltum stjórnmálamönnum af álíka spilltum einstaklingum sem hafa þau til sölu.
Ojbjakk!!
![]() |
Samþykkjum aldrei loftlínu! |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.5.2017 | 14:08
Fólk er fífl ...
... gæti nú einhver sagt um þetta. Að minnsta kosti er það einkennilegt ef fólk hefur meiri áhuga á niðurstöðum vísindamanna eftir því sem það telur þá minna hæfa.
Eða er kannski rannsóknin eitthvað gölluð? Kannski gerði aðlaðandi vísindamaður hana?
![]() |
Áhugasamari um aðlaðandi vísindamenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.5.2017 | 12:10
Hæfni dómara skiptir máli
Hvert er markmiðið með ráðningu dómara?
Er markmiðið að útvega sama hlutfalli karla og kvenna þægileg störf hjá ríkinu? Ef svo er verður auðvitað að líta til kynjasjónarmiða eins og ráðherrann segir.
Eða er markmiðið að tryggja þeim sem leita til dómstóla eða eru dregnir fyrir dóm réttláta málsmeðferð? Ef svo er verður einvörðungu að líta til hæfni viðkomandi umsækjanda til að fella rétta dóma. Í því felst að ekki má líta til neinna annarra sjónarmiða - einungis verður að meta hæfni.
Íslenskir stjórnmálamenn eru auðvitað orðnir svo vanir því að líta á störf hjá ríkinu sem bitlinga að þeim finnst bara sjálfsagt að vera ekkert að velta fyrir sér hagsmunum borgaranna, sem oft á tíðum eiga allt sitt undir hæfni hinna opinberu starfsmanna.
En hér er ekki verið að útvega gömlum félaga stjórnarformennsku í Byggðastofnun eða forstjórastarf hjá Samgöngustofu (raunar getur það samt haft óþægindi í för með sér ef óhæfur stjórnandi er þar eins og dæmin sýna).
Dómstólar skera út í málum sem geta varðað einstaklinga, líf þeirra, frelsi og eignir, ákaflega miklu. Spilling, heimska og kapphlaup eftir vinsældum meðal grunnhyggins fólks mega aldrei ráða þegar dómarar eru valdir.
![]() |
Það hallar verulega á konur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.5.2017 | 15:23
Greining á þjóðhagslegum áhrifum?
Hvers vegna í ósköpunum ætti að þurfa greiningu á þjóðhagslegum áhrifum þess að látið verði af þeim kjánaskap að banna fólki að opna vínbúðir, líkt og um einhverjar meiriháttar efnahagslegar breytingar eða stórfjárfestingar væri að ræða?
Það er nú meiri eljan sem sumt fólk sýnir í baráttu sinni gegn sjálfsögðu frelsi annarra.
![]() |
Áfengisfrumvarpið rifið út úr nefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2017 | 11:46
Fjarstæða að þessi lán verði greidd upp
Það er auðvitað bara fjarstæða að lán ríkisins til þessarar framkvæmdar muni einhvern tíma verða greidd upp. Til þess þyrfti veggjaldið að vera svo hátt að enginn með réttu ráði léti sér detta í hug að greiða það til að spara sér nokkurra mínútna akstur.
Eðlilegast væri að afskrifa bara stærstan hlutann af því sem ríkið hefur lagt í þetta og að ríkið taki síðan verkefnið alfarið yfir enda ljóst að meðeigendurnir eru ekki að fara að fjármagna mismuninn - þeir eru ekki algerir bjánar.
Síðan ætti að stofna rannsóknarnefnd til að fara í saumana á því hvernig þetta spillingarmál varð ríkinu jafn dýrt og raun ber vitni.
![]() |
Ríkið lánveitandi um ófyrirséða framtíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.5.2017 | 00:19
Hryllingur sósíalismans
Ástandið í Venesúela er skýr birtingarmynd þess sem gerist þegar reynt er að koma á sósíalísku stjórnarfari. Úrræðin eru dæmigerð fyrir sósíalista: Barnadauði eykst og þá er heilbrigðisráðherrann rekinn. Matvælaframleiðsla hrynur vegna óstjórnar og þá er reynt að koma á verðlagshömlum - en engar vörur eru til að selja.
Hversu mörg börn eiga að deyja í viðbót í Venesúela í nafni sósíalismans? Það væri áhugavert að fá svar við því frá kjánunum sem nú predika sósíalisma og frelsissviptingu almennings hérlendis.
![]() |
Beittu piparúða á eldri borgara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.5.2017 | 22:30
Idjót
Umdeildur maður, gagnrýnandi íslamstrúar, talaði á fundi í Reykjavík í kvöld. RÚV sendi "fréttamann" til að taka viðtal við manninn. Í stað þess að spyrja manninn út í skoðanir hans lagði "fréttamaðurinn" alla áherslu á að reyna að saka manninn um að vera samábyrgur um hryðjuverkaárás Breiviks í Noregi fyrir nokkrum árum.
Eftirtekjan var heldur rýr, líkt og lesa má á síðu RÚV.
En mér er spurn: Hvers vegna í ósköpunum sendir Ríkisútvarpið idjót til að taka viðtal við þennan umdeilda mann? Hvers vegna var ekki alvöru fréttamanni falið verkið, einhverjum sem var treystandi til að gera sig ekki að fífli? Og hvers vegna í ósköpunum var viðtalið birt í sjónvarpsfréttum? Svona vinnubrögð eru niðurlægjandi fyrir stofnunina.
4.5.2017 | 15:01
Breikkun Miklubrautar?
Þessi fyrirsögn er villandi. Það er ekki verið að breikka götuna, sem sannarlega væri ekki vanþörf á, heldur að bæta við hjólastígum og gangstéttum. Auk þess er verið að tefja enn frekar fyrir umferð, og ekki á það bætandi, með því að hindra að hægt sé að komast inn í Hlíðahverfi gegnum Reykjahlíð.
Það kemur ekki á óvart að núverandi meirihluti standi að slíku. En ég hef tvær spurningar:
1. Hvers vegna setur Morgunblaðið þetta fram með rangri fyrirsögn.
2. Hver er skoðun minnihlutans á þessu máli?
![]() |
Breikkun Miklubrautar að hefjast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
-
agny
-
graenar-lausnir
-
bjarnijonsson
-
bjornalexandermikli
-
gattin
-
dofri
-
contact
-
fhg
-
gretaulfs
-
gudni-is
-
mosi
-
bofs
-
muggi69
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
holi
-
haukurn
-
diva73
-
hlynurh
-
ingibs
-
ingolfursigurdsson
-
fun
-
jennystefania
-
johnnybravo
-
eyfeld
-
jonbergsteinsson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kristjan9
-
loncexter
-
ludvikjuliusson
-
sleggjudomarinn
-
magnuss
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
otti
-
runaro
-
joklamus
-
sigurjons
-
stefanjul
-
summi
-
saemi7
-
samy
-
torfusamtokin
-
vestfirdir
-
thorsteinn
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.8.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 288151
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar