Sameiningartákn þjóðarinnar?

Í þingsetningarræðu þann 23. nóvember gaf Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands til kynna að fólk sem ekki þægi bólusetningu gegn kórónaveirunni væri með því að krefjast sjálfu sér til handa „réttar til að smita aðra“. Nú er það svo að þótt bólusetningar geti að einhverju leyti og tímabundið dregið úr líkum á því að einstaklingur smitist eða smiti aðra[1], hefur samanburður milli landa og svæða ekki leitt í ljós að munur sé á útbreiðslu smita eftir hlutfalli bólusettra.[2] Auk þess liggur fyrir að þau bóluefni sem notuð eru geta reynst hættuleg, og í tilfelli yngra fólks jafnvel hættulegri en sjúkdómurinn sem bólusett er gegn, auk þess sem langtímaáhrif eru óþekkt. Þetta hefur komið fram bæði hjá nefnd breskra stjórnvalda um öryggi bóluefna og hjá frönsku læknaakademíunni, en báðar þessar stofnanir hafa mælt gegn bólusetningu heilbrigðra barna og ungmenna[3].

Með orðum sínum sendi forseti Íslands fordæmalausa hvatningu til sundrungar og fordóma út í samfélagið. Slík orð hafa afleiðingar. Ýmsir hafa því vitanlega fylgt í kjölfarið með ákall um mismunun, aðrir með útilokun og grimmd gagnvart þeim sem síst skyldi[4]. Nú síðast hefur Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, lagt til að allir þeir sem ekki láta bólusetja sig með efnum sem hindra smit lítið sem ekkert, gegn sjúkdómi sem hérlendis hefur um 0,2% dánarhlutfall, og flestallir í áhættuhópum eru þegar varðir fyrir, sæti sóttkví „til eilífðar“[5]. Þetta er í raun tillaga um lífstíðarfangelsi tugþúsunda fólks án dóms og laga og þar með afnám réttarríkisins.

Í því eitraða andrúmslofti ótta og taugaveiklunar sem ríkt hefur í bráðum tvö ár er lykilatriði að forystumenn samfélagsins leitist við að sameina fremur en sundra, ýta undir umburðarlyndi fremur en fordóma, og rísi undir þeirri skyldu að grundvalla skilaboð sín á traustri þekkingu, en ekki yfirborðsvitneskju, sögusögnum og æsifréttum. Það er grafalvarlegt mál þegar forseti landsins, sameiningartákn þjóðarinnar, hvetur til sundrungar, fordóma og ofsókna gegn tilteknum hópi fólks í samfélaginu, og ýtir undir kröfur um tilefnislaust afnám almennra mannréttinda.

Guðna Th. Jóhannessyni ber ótvíræð skylda til að biðjast í einlægni afsökunar á herhvöt sinni og reyna þannig að forða frekara tjóni en hann hefur þegar valdið. Hann ætti einnig að íhuga í fullri alvöru hvort hann skorti kannski þá skynsemi, yfirvegun og siðferðisþroska sem embætti hans krefst.

-------------------------

[1] Kampf: „The epidemiological relevance of the COVID-19-vaccinated population is increasing“, The Lancet Regional Health – Europe, 2021. Sýnir að vernd bóluefna gegn smiti fer síminnkandi. Einnig: Nordström, Ballin: „Effectiveness of Covid-19 Vaccination Against Risk of Symptomatic Infection, Hospitalization, and Death Up to 9 Months: A Swedish Total-Population Cohort Study“, The Lancet (preprint), 2021. Sýnir að vernd bóluefna hverfur nær alveg á fáeinum mánuðum.

[2] Subramanian, Kumar: „Increases in COVID-19 are unrelated to levels of vaccination across 68 countries and 2947 counties in the United States“, European Journal of Epidemology, 2021. Rannsóknin sýnir enga fylgni milli smita og hlutfalls bólusettra.

[3] Le Monde og BFMTV, 17. nóvember 2021: „Les vaccins anti-Covid ne doivent pas être donnés à tous les enfants mais certains d'entre eux devraient en bénéficier, a estimé mercredi l'Académie française de médecine, prenant une position médiane face à un regain de polémiques sur le sujet.“ Mælt er með því að bólusetja einungis börn í áhættuhópum og þau sem búa með fólki í áhættuhópum.

Sjá einnig: „JCVI statement on Covid vaccination of children and young people, aged 12-17 years: August 4th 2021“ á https://www.gov.uk/government/publications/

[4] RÚV, 24. nóvember 2021: „Þurfa að sýna bólusetningarvottorð við matarúthlutun.“ Einnig Fréttin, 26. nóvember 2021: „Ungt par sem er statt núna á fæðingadeild Landspítalans hefur sætt mikilli óvild og hótunum þar sem parið hefur hafnað örvunarskammti af Covid bóluefni.“ Fram kemur að fóstrið greindist með hjartagalla eftir bólusetningu móður og það er ástæða þess að örvunarskammti var hafnað.

[5] Kári Stefánsson, Morgunblaðið, 26. nóvember 2021: „Svo það má færa rök fyr­ir því að koma eigi þeirri skyldu á að þeir ein­stak­ling­ar sem ekki vilja láta bólu­setja sig verði skikkaðir í sótt­kví að ei­lífu.“

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hver stór % treystir  Guðna í dag; =Gvernig myndi hans vinsælda-SKÍFURIT  líta út ef að slik könnun væri gerð ?

Jón Þórhallsson, 27.11.2021 kl. 16:02

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það er ljótur leikur að slá síg til riddara með því að efna til óvinafagnaðar gegn agnarlitlum og vanmáttugum minnihluta, sem engu máli skiptir í fyrirfram margmærðum árangri bólusetninga til hjarðónæmis.

Jafnvel þó svo að sumir leifi sér að færa rakalausar eftiráskíringar fyrir því að koma eigi þeirri skyldu á að þeir ein­stak­ling­ar sem ekki vilja láta bólu­setja sig verði skikkaðir í sótt­kví að ei­lífu.

Þessi málatilbúnaður sínir aðeins það eitt hvað þeir sem keyrt hafa áfram bóluefna bissnesinn gera sér vel grein fyrir hvað þeir eru eru komnir út á hálan ís, þegar þeir eru farnir að hvetja til trixa sem hafa leitt mankinið til óhugnarlegustu óhæfu verka sem það þekkir.

Magnús Sigurðsson, 27.11.2021 kl. 16:43

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Genakári verður nottla líflátinn þegar æðsti dómur verður felldur - enda einn af stórgerendum stærsta þjóðarmorðs allra tíma. Þetta kunna að þykja stór orð, en elítan sem nú ræður för verður beitt sömu dómum og hún beitti Nasistana í Nurnberg.

Þetta veit Genakári og því hvetur hann meðbræður sína til að reyna af alefli að sigra tapað stríð. Já, tapað, því mannkynssagan hefur marg sagt okkur hvernig svona ástand endar.

Guðjón E. Hreinberg, 27.11.2021 kl. 17:55

4 identicon

Það er óhuggulegt að lesa nú fréttir af víkingaklæddum lögreglusveitum storma bari í Berlín. 

Í leit að mansalsmönnum? 

Í leit að fíkniefnabarónum? 

Í leit að hryðjuverkamönnum?

Nei, í leit að óbólusettum.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.11.2021 kl. 18:24

5 identicon

Í ljósi sögunnar, alræðisstjórnar Hitlerstímans í Þýskalandi, er óhuggulegt að lesa það, að hér á landi finnist menn sem eru hallir undir álíka viðhorf og gjörðir og nú birtast okkur enn á ný, í Berlín.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.11.2021 kl. 18:52

6 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Fyrir 80 árum leituðu þeir að hommum.

Þorsteinn Siglaugsson, 27.11.2021 kl. 20:25

7 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Allir góðir. 

Eru þetta fjörbrot gömlu stjórnsýslunnar? 

Og þá hver er gamla stjórnsýslan? 

Egilsstaðir, 27.11.2021   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 27.11.2021 kl. 23:46

8 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Almenn hegningarlög: Hver, sem veldur hættu á því, að næmur sjúkdómur komi upp eða berist út meðal manna, með því að brjóta gegn lagafyrirmælum um varnir gegn næmum sjúkdómum eða varúðarreglum yfirvalda, sem þar að lúta, skal sæta fangelsi allt að 3 árum. Refsingin getur þó orðið fangelsi allt að 6 árum, ef um sjúkdóma er að ræða, sem hið opinbera hefur gert sérstakar ráðstafanir til að hefta eða afstýra, að berist hingað til lands.

Enginn: Ég vil að þessum lögum verði breytt þannig að ég fái frelsi til að smita aðra.

Guðni Th. Jóhannesson: Frelsi til að sýkja aðra er rangsnúinn réttur.

Ekki bara heimskuleg ummæli heldur hreinræktaður strámaður reistur í þeim óhugnanlega tilgangi að skilgreina alla sem hafa efasemdir um tilraunalíftæknilyf sem "óæskilega".

Guðmundur Ásgeirsson, 28.11.2021 kl. 21:29

9 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Heimskinginn er hættulegasta manntegundin: https://principia-scientific.com/the-5-basic-laws-of-human-stupidity-according-to-cipolla/

Þorsteinn Siglaugsson, 29.11.2021 kl. 00:25

10 identicon

Sæll Nafni,

„réttar til að smita aðra“

Það eru þeir bólusettu sem eru og hafa verið að smita aðra, svo og þar sem að þetta svokallaða bóluefni virkar ekki neitt, heldur auk þess veldur alvarlegum aukaverkunum og dauðsföllum eftir þessar svokölluðu bólusetningar.
KV.

Fully Vaccinated Are COVID Super-Spreaders, Says Inventor of mRNA Technology



The EudraVigilance database reports that through November 20, 2021 there are 31,014 deaths and 2,890,600 injuries reported following injections of four experimental COVID-19 shots:

COVID-19 MRNA VACCINE MODERNA (CX-024414)

COVID-19 MRNA VACCINE PFIZER-BIONTECH

COVID-19 VACCINE ASTRAZENECA (CHADOX1 NCOV-19)

COVID-19 VACCINE JANSSEN (AD26.COV2.S)

https://healthimpactnews.com/2021/31014-deaths-2890600-injuries-following-covid-shots-in-european-database-of-adverse-reactions-as-young-previously-healthy-people-continue-to-die/

"Do You Have Blood on Your Hands? Tens of Thousands of Children Age 5 to 11 Injected with Gene Therapy Shots"



"Whistleblower Reveals Fraud in Pfizer COVID Vaccine Trials as 5 to 11-Year-Olds Begin to be Injected; Vaccine Deaths and Injuries to Follow"

"As Deaths and Injuries to Teens Increase After COVID-19 Shots Pfizer Asks FDA for Emergency Authorization to Inject 5 to 11-Year-Olds"

"CDC: Teens Injected with COVID Shots have 7.5 X More Deaths, 15 X More Disabilities, 44 X More Hospitalizations than All FDA Approved Vaccines in 2021"


"COVID Shots Are Killing and Crippling Teens in Record Numbers; Young Children Are Next"



Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 29.11.2021 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 287304

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband