Er valkostur við bólusetningu?

Bóluefni sem framleidd eru og markaðssett á undanþágum frá öryggiskröfum geta vitanlega verið vafasöm. Og það er auðvitað eðlilegt að margir séu smeykir við slík bóluefni. Fyrir ungt fólk og börn getur einfaldlega verið áhættuminna að smitast af pestinni, enda eru dánarlíkurnar nánast engar, fremur en taka þá áhættu að búa við alvarlega fötlun það sem eftir er ævinnar.

Hérlendis virðist nánast enginn hafa áhyggjur af bólusetningum með hálfprófuðum efnum, enda sjálfstæð hugsun fremur fátíð. En í mörgum öðrum löndum eru það jafnvel tugir prósenta fólks sem hefur varann á sér gagnvart slíku. Eigi hjarðónæmi að nást á heimsvísu getur því verið nauðsynlegt að hafa aðra valkosti í boði. Og sá valkostur sem þá er helst til staðar er að bjóða yngra fólki, sem ekki tilheyrir áhættuhópum, upp á að smitast náttúrulega.

 


mbl.is „Aldrei aftur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þannig voru mislingar afgreiddir í mínu ungdæmi. Síðar kom í ljós að ein bólusetning dugði ekki ævilangt og að eina leiðin til fullkomins ónæmis er að hafa fengið mislinga.

Magnús Sigurðsson, 27.11.2020 kl. 05:57

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Já, akkúrat. Svona var þetta með mislingana. Og það getur vel verið að nú þurfi að nýju að taka upp svipaðar aðferðir ef maður horfir raunsætt á málin.

Þorsteinn Siglaugsson, 27.11.2020 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 287303

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband