14.10.2020 | 12:01
Dánarhlutfall lækkar - en hvað um gamla fólkið?
Í vor þegar gerð var rannsókn á útbreiðslu Covid 19 hérlendis höfðu greinst um 1.800 smit í skimunum. Mótefnarannsóknin sýndi að um 3.600 hefðu smitast. Nú hafa greinst um 3.700 smit og ef hlutfallið er það sama mætti álykta að ríflega 7.000 manns hafi smitast. Dánarhlutfallið er þá komið úr 0,3% niður í 0,15%. Það er í ágætu samræmi við nýjasta mat WHO á heimsvísu.
Þegar smittölur og aukning smita eftir aldurshópum er skoðuð sést að smitin eru að dreifast nokkuð jafnt á aldurshópa. Þetta er áhyggjuefni því elsti hópurinn er um 1.000 sinnum líklegri til að deyja úr veirunni en unga fólkið. Hvers vegna er ekki beitt hnitmiðuðum aðgerðum til að vernda þennan hóp almennilega, eins og þau sem standa að Barringon yfirlýsingunni leggja til? Við eigum marga færa sérfræðinga í lýðheilsu, sem yrði ekki skotaskuld úr því að móta gagnlegar tillögur til að vernda viðkvæmasta hópinn. Af hverju eru starfskraftar þessa fólks ekki nýttir?
88 smit innanlands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 287740
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Þorsteinn, hefurðu eitthvað skoðað hneykslismál hjá WHO, helstu ráðgjöfum yfirvalda hér?
National governments, WHO, and EU agencies had all been guilty of actions that led to a “waste of large sums of public money, and unjustified scares and fears about the health risks faced by the European public,”
https://www.worldpharmanews.com/research/1255-british-medical-journal-who-must-act-now-to-restore-its-credibility-and-europe-should-legislate
https://www.ruv.is/frett/hagnast-a-svinaflensunni
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 14.10.2020 kl. 12:27
Sennilega er búið að senda allt fólkið sem getur eitthvað heim í sóttkví. Bróðir minn er t.d. nýsloppinn úr slíkri - stálhraustur slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður sem hefði nauðsynlega þurft að vera á vakt í stað þess að vera heima.
Geir Ágústsson, 14.10.2020 kl. 12:53
Það væri hjálplegt að hafa graf með hlutfalli nýinnlagna á hverjum tíma -ekki bara hvað margir liggja inni. En það myndi líklega grafa undan sögustundinni.
Ragnhildur Kolka, 14.10.2020 kl. 13:53
Í ár munu 840 þúsund fleiri jarðarbúar deyja en árið á undan. Hversu margir munu deyja í ár? Ef bera á saman árið á undan verður að taka tillit til þess að æ fleiri deyja úr elli. Það getur líka skýrt hvers vegna "farsóttinn" drap svo marga.
2020.....59,230,000
2019.....58,390,000.....840,000
2018.....57,630,000.....760,000
2017.....56,940,000.....690,000
2016.....56,330,000.....610,000
2015.....55,820,000.....510,000
2014.....55,410,000.....410,000
2013.....55,090,000.....320,000
2012.....54,840,000.....250,000
2011.....54,640,000.....200,000
2010.....54.000,000.....140,000
2009.....54,390,000.....110,000
2008.....54,300,000......90,000
2007.....54,220,000......80,000
2006.....54,130,000......90,000
Farsóttin drap í byrjun en frá með sumri er fólk aðallega að deyja úr elli.
Farsóttir haga sér ekki eins og klukkur.
Benedikt Halldórsson, 14.10.2020 kl. 17:38
Ef við ætlum að velja leiðina til að fækka dauðsföllum verulega er hún bara ein: Verja elsta aldurshópinn.
Leiðin sem nú er farin, að hægja á útbreiðslunni, fækkar ekki dauðsföllum heldur frestar hún þeim bara.
Nýr leiðtogi breska Verkamannaflokksins hefur lagt til að loka alla inni í hálfan mánuð og hefur spáð því að þannig megi fækka dauðsföllum á árinu um 8.000. En honum láðist að velta fyrir sér hvað gerðist svo eftir áramót. Því um leið og fólkinu verður hleypt út aftur fjölgar smitum vitanlega á nýjan leik.
Þetta er frábært dæmi um fáránleik þeirrar stefnu sem einnig er fylgt hérlendis: Í stað þess að verja þá sem eru í raunverulegri hættu er því bara frestað að þeir deyi.
Þorsteinn Siglaugsson, 14.10.2020 kl. 18:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.