6.6.2019 | 18:57
Til hvers er þingið?
Maður veltir því alvarlega fyrir sér hvaða tilgang Alþingi hefur. Þinginu er ætlað að fara með löggjafarvaldið, en í raun er það ríkisstjórnin sem fer með það. Frumvörp eru útbúin í ráðuneytum og yfirleitt samþykkt óbreytt eða lítið breytt af þinginu. Miðað við þær fréttir sem berast af Alþingi virðist meginverkefni þess vera að rífast um þingsköp og fundarstjórn forseta og reyna að leysa úr klemmum sem upp koma vegna þess að þingsköpin virka ekki þegar einhverjir þingmenn eru nógu óforskammaðir til að taka mál í gíslingu.
Er ekki bara réttast að leggja Alþingi niður, en setja þess í stað á fót nefnd nokkurra lögfræðinga til að yfirfara og betrumbæta frumvörpin sem koma frá ráðuneytunum? Kjósa svo einfaldlega pólitískan forseta líkt og í Bandaríkjunum og Frakklandi, sem skipar ríkisstjórn?
En svo mætti líka halda Alþingi, en í stað þess að seta þar væri fullt starf væri það ólaunað. Þingið kæmi saman í einn mánuð á ári og gæti þá beint eigin tillögum og frumvörpum til ríkisstjórnar til framkvæmdar - nú eða bara látið sér nægja að rífast um þingsköp og fundarstjórn forseta.
Eða finnst engum öðrum þetta hálf óskilvirkt fyrirkomulag?
Sprautaði vatni á þingvörð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er alltaf að benda á þessa leið í mínu stjórnlagaþings-bloggi:
"Er ekki bara réttast að leggja Alþingi niður, en setja þess í stað á fót nefnd nokkurra lögfræðinga til að yfirfara og betrumbæta frumvörpin sem koma frá ráðuneytunum?
Kjósa svo einfaldlega pólitískan forseta líkt og Frakklandi,
sem skipar ríkisstjórn?".
Jón Þórhallsson, 6.6.2019 kl. 19:40
Sæll Þorsteinn.
Mér hefur lengi fundist að kjör til
Alþingis ætti að fara fram með öðru
móti en nú er.
Hef frekar strykst í þeirri trú heldur en hitt
því brestir eru meiri og alvarlegri en ég hef
áður séð.
Ég tel að kjósa ætti 33 þingmenn í það mesta til
þings; forval og síðan atkvæðaseðill með 33 nöfnum.
Laun skyldu ráðast af lægsta strípaða taxta Eflingar
og þar með allt upptalið hvað laun varðar og greiðslur.
Starfið mætti líta sem sérstakan heiður hverjum sem til
þess veldist og þjónustu í þágu lands og þjóðar.
Húsari. (IP-tala skráð) 6.6.2019 kl. 20:05
Takk fyrir ábendingarnar piltar.
Þorsteinn Siglaugsson, 6.6.2019 kl. 21:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.