"Sjúkur var ég og þér vitjuðuð mín ekki."

"Gestur var ég en þér hýstuð mig ekki."

 

Hættulega veikum börnum synjað um læknisþjónustu og send til lands þar sem vitað er að þau muni deyja langt fyrir aldur fram.

Ofsóttur fjölskyldufaðir hrakinn í greipar þeirra sem ætla sér að myrða hann.

Og leiguflugið pantað um miðja nótt, í skjóli myrkurs.

Hvað er hægt að segja um fólk sem gerir slíkt?

Það hlýtur nú að vera forgangsverkefni þings og ráðherra að hreinsa út úr Útlendingastofnun og ráða þangað fólk með sem hefur lágmarks siðferðiskennd, en skýlir sér ekki bak við mannfjandsamlegar reglur þegar lítið barn þarfnast miskunnar þess.

Það er verðugt verkefni og viðeigandi nú, á aðventunni.


mbl.is Gleymir mannúð og mildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

Þetta er rosalega óhugnanlegt.

halkatla, 11.12.2015 kl. 22:02

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hættulega veikum börnum komið í opinberlega reknum skóla/sjúkraþjónustu, og foreldri veitt vinna á Íslandi? Án landvistarleyfis fjölskyldunnar á lagalegum grundvelli til framtíðar?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 11.12.2015 kl. 22:48

3 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Þú segir að þú hafnir dónalegum athugasemdum, en sakar starfsfólk Útlendingastofnunar um að hafa ekki "lágmarks siðferðiskennd" þrátt fyrir að þú viðurkennir að þessir starfsmenn séu að framfylgja núverandi reglum. Finnst þér þetta viðeigandi nú, á aðventunni? 

Wilhelm Emilsson, 11.12.2015 kl. 23:32

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Kíktu í orðabók, Wilhelm.

Þorsteinn Siglaugsson, 11.12.2015 kl. 23:41

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Auk þess: Starfsmennirnir hafa svigrúm til að sýna mannúð, án þess að þurfa að brjóta reglurnar, en kjósa að gera það ekki. Slíkt er meira en ámælisvert.

Þorsteinn Siglaugsson, 11.12.2015 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 287346

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband