Tilgangslausar þrengingar

Annað ágætt dæmi um afrek þessa fólks eru járnstautarnir sem reknir voru niður við gatnamót Hofsvallagötu og Hringbrautar fyrir ekki svo löngu síðan. Í stað þess að þeir sem koma norður Hofsvallagötu geti nú sveigt yfir á hægri akrein til að beygja austur Hringbraut er nú yfirleitt samfelld bílaröð frá Melabúðinni og að gatnamótunum á  álagstímum, með tilheyrandi töfum og mengun. Opinbera afsökunin mun vera sú að handan járnstautanna sé hálfköruð hjólabraut. Aldrei hef ég séð neinn hjóla þar og á þó leið þarna um á hverjum degi. Það breytir heldur engu fyrir hjólreiðamenn hvort þeir þurfi að fara upp á gangstéttina tíu metrum fyrr en ella, því á Hringbrautinni er auðvitað engin hjólabraut.

Það er ekki gott þegar einstaklingar haldnir ofsafenginni andúð á bifreiðum fá það hlutverk að skipuleggja samgöngur í borginni. Það á ekki að velja fólk til slíkra starfa sem er ófært um annað en reyna í sífellu að troða eigin skoðunum eða lífsstíl upp á samborgara sína. Þess háttar einstaklingar hafa ekki þroska til að fara með pólitíska ábyrgð.


mbl.is „Ofbeldi“ gegn bílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég sé nú ekki tilganginn með fjórum akreinum á þessum hluta Grensásvegar.

Emil Hannes Valgeirsson, 15.1.2016 kl. 15:59

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ekki aldeilis tilgangslaus þrenging þarna.  Staurarnir loka heilli akrein, svo eftir er aðeins ein; fyrir hægri beygju, beint áfram og vinstri beygju af Hofsvallagötu í norðurátt. 
Afleiðingin er augljós; umferðarstífla sem blæs "heilnæmum" útblæstri að íbúum nágrennisins sem eru varnarlausir heima hjá sér.  Hjólandi hafa svo vit á því að halda sig á gangstéttinni og geta forðað sér - eíns og áður.

Kolbrún Hilmars, 15.1.2016 kl. 17:28

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Málið snýst ekki um að ákveða hvort þarna eigi að vera fjórar eða tvær akgreinar, Emil. Það snýst um hvort eyða eigi tvö hundruð milljónum í að þrengja götuna án þess að það þjóni neinu öðru markmiði en duttlungum tiltekinna borgarfulltrúa.

Þorsteinn Siglaugsson, 16.1.2016 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 287251

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband