14.5.2015 | 20:46
Frans páfi
Frans páfi er merkur maður, heilsteyptur og hugrakkur.
![]() |
Ísraelar mótmæla samkomulagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2015 | 18:45
Verkfallið að skila árangri?
Verkfallsliðið hlýtur að verða ánægt þegar það verður ekki aðeins búið að gera aðstæður dýranna eins slæmar og kostur er heldur einnig að koma bændunum á kné, enda aðgerðirnar skipulagðar með það að leiðarljósi að valda saklausum þriðja aðila sem mestu tjóni.
Eina ljósið í myrkrinu er að þegar bændunum fækkar verður kannski hægt að fækka störfum í eftirlitsiðnaðinum.
![]() |
Stefnir í gjaldþrot hjá bændum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2015 | 12:38
"Vísindavefur"? "Háskóli"?, "Sagnfræðingur"?
Háskóli Íslands, stofnun sem stefnir að því að komast í hóp 100 bestu háskóla í heimi, starfrækir svokallaðan Vísindavef. Þar má finna upplýsingar um hitt og þetta. Nýverið birtist til dæmis á þessum vef grein um verkföll. Höfundurinn er Árni Daníel Júlíusson, Hann er titlaður sagnfræðingur. Í greininni segir meðal annars:
"Sú þróun hefur víða orðið, sérstaklega eftir 1985, að atvinnurekendur og ríkisvald hafa mætt verkfallsvopninu og baráttusinnuðum verkalýðssamtökum af æ meiri hörku. Í Bandaríkjunum og Bretlandi hefur fjölda verksmiðja og vinnustaða einfaldlega verið lokað alveg eða framleiðslan flutt til annarra landa. Það er ein af afleiðingum svokallaðra opnari alþjóðaviðskipta og meira frelsis í flutningum fjármagns. Þessi þróun hefur leitt til rýrnunar lífskjara meðal almennings og stöðugt meira atvinnuleysis, en æ meiri auðsöfnunar um 1% íbúa, hinnar vellauðugu yfirstéttar sem ein hefur aðstöðu til að nýta sér þetta frelsi."
Það var og. Skilgreining á hugtakinu verkfall er skyndilega orðin að pólitískum áróðri sem grundvallast á órökstuddum yfirlýsingum um "rýrnun lífskjara meðal almennings" og "stöðugt meira atvinnuleysi". Hvort tveggja rangt þegar litið er til Vesturlanda, en bersýnilegt er að "sagnfræðingurinn" vísar til þeirra samfélaga. Og það að verkfallsaðgerðum hafi verið mætt með "æ meiri hörku" er fjarstæða, þvert á móti hefur dregið mjög úr slíkum átökum. Flutningur framleiðslu frá Evrópu og Bandaríkjunum er ekki vegna einhverra verkfallsátaka heldur einfaldlega vegna þess að lífskjör í þessum löndum eru orðin allt of góð til að fólk sækist eftir þeim kjörum sem slík framleiðsla býður upp á þar sem hún keppir auðvitað við þriðja heims lönd með lakari lífskjör.
Og hvers eiga svo þeir að gjalda sem fá nú störf í þriðja heiminum vegna alþjóðavæðingar? Skipta batnandi lífskjör í Kína og á Indlandi engu máli?
--------------------------
Það er sjálfsagt mál að Háskóli Íslands reki vísindavef. En þá verða stjórnendur hans að hafa vit til að gæta þess að höfundar efnis ástundi fræðileg vinnubrögð en ekki stjórnmálaáróður.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2015 | 00:15
Eignarnám er réttindabrot
Eignarnám á ósköp einfaldlega ekki að líðast. Ef fólk vill ekki selja land sitt undir raflínulagnir, virkjanir eða vegi á ekki að vera hægt að þvinga það til þess með eignarnámi. Hvað þá í landi þar sem aldrei virðist þurfa neinar haldbærar röksemdir fyrir slíku heldur nægir að staðhæfa bara að "almannahagsmunir" séu í húfi án þess að fyrir slíku séu neinar sannanir.
![]() |
Landeigendurnir höfðu sigur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 14. maí 2015
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
-
agny
-
graenar-lausnir
-
bjarnijonsson
-
bjornalexandermikli
-
gattin
-
dofri
-
contact
-
fhg
-
gretaulfs
-
gudni-is
-
mosi
-
bofs
-
muggi69
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
holi
-
haukurn
-
diva73
-
hlynurh
-
ingibs
-
ingolfursigurdsson
-
fun
-
jennystefania
-
johnnybravo
-
eyfeld
-
jonbergsteinsson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kristjan9
-
loncexter
-
ludvikjuliusson
-
sleggjudomarinn
-
magnuss
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
otti
-
runaro
-
joklamus
-
sigurjons
-
stefanjul
-
summi
-
saemi7
-
samy
-
torfusamtokin
-
vestfirdir
-
thorsteinn
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar