10.2.2010 | 09:41
Lánið til tryggingasjóðsins?
Viðskiptasnilld breskra stjórnvalda er greinilega fordæmalaus. Fyrst eru peningarnir teknir út úr þrotabúi Landsbankans með handafli og engir vextir greiddir af þeim. Svo eru þeir lánaðir íslenska tryggingasjóðnum með 5,55% vöxtum. Þannig tekst bresku ríkisstjórninni að græða 11 milljarða strax á fyrsta ári á Icesave málinu.
Íslensku útrásarvíkingarnir eru greinilega bara smábörn við hliðina á Gordon Brown og klíku hans!
---------------------------
Eru það ekki einmitt svona mál sem ættu að rata í heimspressuna nú þegar fyrir liggur að fara eigi í nýjar samningaviðræður. Hvernig ætli breskur almenningur taki því ef upp kemst að ríkisstjórn landsins sé fyrst og fremst umhugað um að græða sem mest á óförum Íslands og það með ránum og gripdeildum?
![]() |
Afborganir í Bretlandi enn á vaxtalausum reikningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.2.2010 | 21:01
Háskólanum hefur verið fengur að henni þessari!
Af fréttum að dæma voru uppi grunsemdir um að stuðningsmenn Sóleyjar Tómasdóttur hefðu haft rangt við í prófkjöri VG í Reykjavík og umrædd Silja Bára átt hluta heiðursins af þeirri framgöngu.
En bíðum nú við. Auðvitað snýst málið ekkert um óvönduð vinnubrögð í prófkjöri. Vitanlega snýst það aðeins um stjórnmálaskoðanir annars frambjóðandans og aldur og kyn hins.
Við hljótum að óska Háskólanum innilega til hamingju með að fá að njóta starfskrafta slíks vitrings sem með fáeinum vel völdum orðum leiðir okkur fávísum fyrir sjónir kjarna þessa máls!
![]() |
Moldviðri vegna þess að róttækur femínisti lagði miðaldra mann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.2.2010 | 09:16
Varasamar uppgjörsaðferðir
Sú aðferð að verðmeta samninga af þessum toga til hækkunar eða lækkunar í bókhaldi hefur rutt sér mjög til rúms á undanförnum árum. Þá er í raun litið á samninginn sem eign og endurmatið snýst um að verðmeta þessa eign.
Þessu fylgja hins vegar umtalsverðir vankantar. Sá helsti er að niðurstöður mats af þessum toga geta verið afar tilviljanakenndar. Hér er verið að reyna að spá fyrir um þróun sem enginn veit í raun fyrirfram hvernig verður. Hérlendis eru oftast innlend endurskoðunar- eða ráðgjafarfyrirtæki fengin til að vinna matið. Þessi fyrirtæki hafa sjaldnast neina sérþekkingu á mörkuðunum sem um er að ræða, byggja mat sitt á afar takmörkuðum upplýsingum og ef miða á við þau möt sem sést hafa er gjarna kastað mjög til höndum í greiningunni. En jafnvel þótt leitað sé til sérhæfðra alþjóðlegra greiningaraðila er mönnum líka vandi á höndum. Staðreyndin er nefnilega sú að langtímaspár um verðþróun á hrávörumarkaði hafa afar sterka tilhneigingu til að standast alls ekki.
Svona endurmat eigna er í sjálfu sér skaðlaust svo lengi sem það er aðeins tala á blaði í bókhaldi fyrirtækisins. Í lántökum og viðskiptum með hlutabréf getur það hins vegar veitt bönkum og fjárfestum falskt öryggi og þannig leitt til rangra ákvarðana sem kannski væru ekki teknar væru þeir fyllilega meðvitaðir um þá miklu óvissu sem ávallt er uppi þegar meta á arðsemi langtímasamninga af þessum toga.
![]() |
Endurmat á samningum skilar HS Orku milljörðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.2.2010 | 13:03
Próf í hverju eiginlega?
Það kemur vissulega ekki á óvart þótt það sé "til skoðunar í ráðuneytinu" að láta þá sem vilja vinna við ráðgjöf í banka taka próf. Hér er auðvitað kjörið tækifæri til að bæta við svo sem eins og einni stjórn og einni stofnun. Ekki veitir af í atvinnuleysinu!
En í hverju á að prófa fjármálaráðgjafana? Eins og sumir vita var meginástæða þess að hugmyndir ráðgjafanna, og raunar flestra annarra, um framtíðina stóðust ekki sú að allt fjármálakerfi heimsins lenti í skyndilegri kreppu sem enginn gat í rauninni séð fyrir. Svo kom á daginn að staða íslensku bankanna var líklega langtum verri en nokkur vissi. Þar á meðal var íslenska fjármálaeftirlitið.
Í hverju á nú að prófa fjármálaráðgjafana svo almenningur geti treyst spám þeirra? Á að kenna þeim að spá í bolla? Eða spá í spil? Eða koma innýfli fugla eða stjörnuspeki að betri notum?
Í hverju á að prófa fjármálaráðgjafana? Kannski í að taka próf? Er einhver annar sem finnst þetta hljóma eins og brandari?
![]() |
Hver sem vill má veita fjármálaráðgjöf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.2.2010 | 11:35
Þriðjungur í vexti af Icesave
Samkvæmt Icesave-samningnum nemur heildarskuldbindingin um 750 milljörðum með vöxtum frá 1. janúar 2009. Ársvextir eru 5,55%.
Verði vöruskiptajöfnuður hagstæður um 10 milljarða á mánuði gerir það 120 milljarða á þessu ári.
Vaxtakostnaður vegna Icesave samningsins verður 750*5,55% = 41 milljarður á árinu. Það nemur þriðjungi vöruskiptajöfnuðarins.
-----------------------------
Formælendur Icesave samninganna bera gjarna greiðslubyrði og vexti saman við landsframleiðslu og fá þá út lágar prósentutölur. Slíkt er aðeins gert til að blekkja almenning.
Eini raunhæfi samanburðurinn í þessu máli felst í að skoða kostnaðinn sem hlutfall af þeim afgangi sem viðskipti við útlönd skilar.
Þetta er ágætt að bera saman við heimilisrekstur og velta fyrir sér hvað verður um fjölskylduna þurfi hún skyndilega að taka á sig aukakostnað sem nemur þriðjungnum af mismuni tekna og útgjalda - áður en greitt hefur verið af húsnæðislánum, bílalánum, yfirdrætti og öðrum skuldum.
![]() |
Afgangur af vöruskiptum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.2.2010 | 09:49
Er þá ekki ábyrgðin hjá Wellink?
Nú hefur verið staðfest að Davíð sagði þessum hollenska kollega sínum frá eigin áhyggjum af stöðu bankanna skömmu fyrir hrunið. Sá vill meina að það merki að íslenskir eftirlitsaðilar hafi sagt sér ósatt.
En bíðum nú aðeins við:
Í fyrsta lagi er skoðun eins manns, jafnvel þótt um seðlabankastjóra sé að ræða, aðeins skoðun hans en ekki endilega óvefengjanleg staðreynd.
Í öðru lagi hlýtur Wellink þessum að hafa borið að grípa strax til ráðstafana sjálfur hafi hann talið Davíð lýsa staðreyndum. Það virðist hann ekki hafa gert, sem þýðir að ábyrgðin á óförunum liggur þá að stórum hluta hjá honum sjálfum.
![]() |
Lýsti miklum áhyggjum af stöðu bankanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.2.2010 | 11:13
Kærustupar í laumi?
Kannski Jóhanna haldi bara við kallinn. Annað eins hefur nú gerst.
![]() |
Jóhanna í einkaheimsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.2.2010 | 14:12
Síendurtekin ósannindi Jóhönnu
![]() |
Eignir Landsbankans gætu skilað meiru en áður var talið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.2.2010 | 14:34
?????????
Vissulega kann ýmislegt að hafa gerst í málinu sem gerir að verkum að erfitt kunni að vera að fara dómstólaleiðina. Það breytir samt ekki því að það voru viðsemjendurnir sem ekki vildu fallast á að við losnuðum undan greiðsluskyldunni yrði niðurstaða dómstóla okkur í hag. Ef við höfum verið í jafn slæmri samningsstöðu og látið er í veðri vaka ættu þeir ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að dómur félli okkur í hag. Viðbrögð þeirra við fyrirvaranum sýna samt svart á hvítu að þeir hafa miklar áhyggjur af því.
Það að samþykkja að fella niður þennan fyrirvara er sambærilegt því að maður ákærður fyrir glæp játi hann á sig með dómssátt til að forðast að verða sakfelldur fyrir sama glæp í réttarsal.
![]() |
Dómstólaleiðin varhugaverð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.1.2010 | 09:35
Húninn fyrst, svo mömmuna!
Svandís bjarnarbani er nú greinilega komin í ham. Einhver vesalingur úr ráðuneytinu lét út úr sér í Kastljósi í gær að rökin fyrir drápinu séu þau að það sé allt of dýrt að bjarga dýrunum og koma þeim til heimkynna sinna auk þess sem skyggnið sé slæmt.
En þegar að því kemur að senda fullmannaðar þyrlur að skima eftir fleiri dýrum til að stúta eru peningarnir engin fyrirstaða ... og skyggnið bara fínt!
![]() |
Gæslan skimar eftir birni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
-
agny
-
graenar-lausnir
-
bjarnijonsson
-
bjornalexandermikli
-
gattin
-
dofri
-
contact
-
fhg
-
gretaulfs
-
gudni-is
-
mosi
-
bofs
-
muggi69
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
holi
-
haukurn
-
diva73
-
hlynurh
-
ingibs
-
ingolfursigurdsson
-
fun
-
jennystefania
-
johnnybravo
-
eyfeld
-
jonbergsteinsson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kristjan9
-
loncexter
-
ludvikjuliusson
-
sleggjudomarinn
-
magnuss
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
otti
-
runaro
-
joklamus
-
sigurjons
-
stefanjul
-
summi
-
saemi7
-
samy
-
torfusamtokin
-
vestfirdir
-
thorsteinn
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.9.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 288216
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar