Mótmæla vondu veðri

Enn halda vörubílstjórar uppteknum hætti og trufla umferð til að mótmæla. En hverju eru þeir að mótmæla? Ætli þeir viti það sjálfir? Það eina sem fram hefur komið er að líklega séu þeir að mótmæla háu eldsneytisverði annars vegar og reglum um hvíldartíma hins vegar. En hátt eldsneytisverð er ekki íslenskum stjórnvöldum að kenna. Reglur um hvíldartíma eru samevrópskar og ekki á ábyrgð íslenskra stjórnvalda. Og hvorugt er á ábyrgð almennra vegfarenda, að ekki sé talað um þá sem kunna að skaðast eða jafnvel deyja vegna þess að sjúkrabílar komast ekki leiðar sinnar.

Svona mótmæli minna helst á það þegar fólk safnaðist saman við Veðurstofuna fyrir mörgum árum til að mótmæla rigningunni. En það var reyndar í gríni.

Þegar lítill hópur fólks mótmælti virkjanaframkvæmdum síðastliðið sumar var lögreglan ekki lengi að mæta á staðinn og handtaka mótmælendur. Hvers vegna gildir ekki sama um þennan leiðindalýð?


mbl.is Bílstjórar: „Við höldum áfram"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Leiðindalýð?

Án þess að ég sé eitthvað að alhæfa þá eru verkamenn/iðnaðarmenn með skemmtilegra fólki sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Svo er eitt annað sem ég skil ekki er að margir virðast halda að þeir séu að berjast fyrir lægra eldsneytisverði sem verði aðeins aðgengislegt þeim. Þeir eru nú að berjast fyrir lægri álagningu fyrir alla landsmenn, ekki veit ég um neinn sem myndi nú bölva því að álagning myndi lækka.

Svo hefur ríkið áður lækkað álögur á eldsneyti, þannig að það ætti að vera öllum ljóst að möguleikinn er vel fyrir hendi. Ef það væri nu bara ekki fyrir þessa veruleikafirrtu ríkisstjórn sem situr núna að velli og hugsar um lítið annað en að verja þetta litla sker. Ég er viss um að það er hlegið að okkur í stærri löndunum.

Einnig með hvíldartímann, þá eru þeir nú ekki að berjast fyrir því að fá að keyra endalaust. Enda hef ég hvergi séð neinn tala um það, en hvar þeir eiga að stoppa og gera þarfir sínar er á skornum skammti.

Á svo að fara kæra Sturla? Maður <b>ætti</b> nú svo sem ekki að hafa miklar áhyggjur af dómi hans, þar sem ógeðslegir nauðgarar og ofbeldismenn sleppa nú nánast undantekningalaust með nokkra mánuði og restina á skilorði.

Ísland! Bezt í heimi!

Sigurður Þ. (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 22:01

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er leiðindalýður sem hefnir sín á venjulegu fólki ef hann er fúll út í stjórnvöld. Varðandi eldsneytisgjaldið, þá er það föst krónutala og hækkar því ekki þótt bensínverð hækki.

Þorsteinn Siglaugsson, 9.4.2008 kl. 23:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband