Hvers vegna ekki að segja segja bara eins og er?

Ásgeir Haraldsson og Valtýr Björn Thors þurfa að gera sér grein fyrir að fjöldi fólks mun fylgjast með afleiðingunum af ráðgjöf þeirra.

Miðað við þá reynslu sem þegar hefur fengist af þessum efnum er alveg ljóst að enginn vafi er á að í það minnsta einhverjir tugir barna munu bíða alvarlegt heilsutjón af sprautunum.

Rök þeirra fyrir bólusetningu ungra barna halda ekki vatni því þau byggja ekki á sannreyndum vísindalegum gögnum sem nægja til að draga þessa ályktun.

Sem vísindamenn hljóta Ásgeir og Valtýr að vita að það sem þeir halda fram er rangt.

Það er á þeim grunni sem málssóknir gegn þeim munu grundvallast, hvort sem um sakamál eða einkamál verður að ræða.

Hvað sýnir okkur að þeir hafi ekki sannleikann að leiðarljósi?

Annars vegar það að samkvæmt nýjasta faraldursfræðilega mati eru dánarlíkur fólks á aldrinum 0-18 ára vegna covid einungis 0.0013% og fyrir liggur að nánast öll börn og unglingar sem hafa látist af pestinni eru með undirliggjandi sjúkdóma. Fullyrðingar um hættu fyrir heilbrigð börn eiga því ekki við nein rök að styðjast.

Hins það að engin rannsókn hefur verið gerð á öryggi þessara efna fyrir börn á þessum aldri og sú rannsókn sem gerð var á virkni þeirra tók aðeins til rúmlega 1.500 barna, sem er alltof lítill hópur til að hægt væri að meta líkur á sjaldgæfum aukaverkunum. Einnig vegna þess fjölda tilkynninga um alvarlegar aukaverkanir sem þegar hafa borist vegna þessarar lyfjagjafar. Nú þegar hefur verið tilkynnt um 10 tilfelli alvarlegra aukaverkana hjá 12-17 ára börnum. Alls hefur verið tilkynnt um 171 sjúkrahússinnlögn í kjölfar lyfjagjafarinnar, þar af varða 38 lífshættulegt ástand. 35 tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar hafa þegar borist.

Tíðni tilkynntra alvarlegra aukaverkana, fjöldi á hvert þúsund bólusettra, er nú um 500-1000 sinnum meiri en almennt hefur verið talið ásættanlegt vegna bólusetninga. Jafnvel þótt aðeins helmingur þessara tilkynninga eigi við rök að styðjast (sem látið er undir höfuð leggjast að rannsaka) er samt um að ræða 250-500 falda fjölgun. Jafnvel þótt í aðeins 10% tilfella fyndist ekki önnur orsök en lyfjagjöfin væri samt um að ræða 50-100 falda fjölgun. 23 umsóknir um skaðabætur hafa borist Sjúkratryggingum Íslands og um miðjan október, þegar 13 umsóknir höfðu borist, hafði ein þegar verið samþykkt. Þar með var staðfest að hætta á sannreyndum alvarlegum aukaverkunum var þegar orðin þreföld á við það sem áður hefur verið metið eðlilegt.

Af þessu tvennu er fullljóst að læknarnir tveir ljúga þegar þeir fullyrða að börnum sé miklu hættulegra að eiga á hættu að smitast af Covid-19 en að verða fyrir skaða af lyfjagjöfinni.


mbl.is Getur leitt til fjölda innlagna á Barnaspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það eru margir litlir menn sem hafa fyllst hroka þeirra sem lítið vita. 

En mér virðist sem nú séu að verða straumhvörf, þar sem yfirmaður, hvorki meira né minna en, örveru og veirufræði deildar Tel Aviv háskóla flytur eldræðu yfir hinum hrokafullu smámennum, og taglhnýtingum Pfizer lyfjarisans:

https://www.zerohedge.com/covid-19/doomed-fail-top-immunologist-blasts-global-covid-response-driven-false-propaganda

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.1.2022 kl. 18:46

2 identicon

Já, hvers vegna ekki að segja sannleikann?

Magnaðasta eldmessa sem flutt hefur verið um það á hverra spenum þeir eru, sem tekið hafa sér vald í heil 2 ár, í nafni vísinda. Og hver er staðan núna?  Allt í óðagoti og úrræðaleysi hinna hrokafullu:

https://swprs.org/professor-ehud-qimron-ministry-of-health-its-time-to-admit-failure/

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.1.2022 kl. 18:58

3 identicon

Er kominn á þá skoðun að Great Barrington leiðin hefði verið sú rétta.  En líkt og Ehud Qimron nefnir, þá var sú leið og það álit þeirra vísindamanna og sérfræðinga sem undir þá yfirlýsingu skrifuðu, hæddir og spottaðir af taglhnýtingum lyfjarisans.  Og embættismanna- og heilbrigðisyfirvöld fylgdu þeim eins og sauðir og jörmuðu falsboðskap og hræðsluáróður í stíl undirmálsmanna lyfjarisans sem veittu honum sjálftöku úr ríkissjóðum.

Sannleikurinn einn mun gera okkur frjáls.

Og það munar um, þegar yfirmaður örveru- og veirufræpideildar Tel Aviv háskóla sendir faríseunum og tollheimtumönnunum tóninn og boðar þeim að gjöra iðrun.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 12.1.2022 kl. 21:37

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Já, Great Barrington var eina raunhæfa leiðin. Og það er sú leið sem við endum á. Verst hversu margt aldrað og veikburða fólk á eftir að þurfa að láta lífið vegna allra mistakanna sem hafa verið gerð.

Þorsteinn Siglaugsson, 15.1.2022 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 287378

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband