Leyndarhyggja og mótsagnakenndur málflutningur fulltrúa Amgen

"Þegar þú bólusetur fjögur þúsund [aldraða] einstaklinga mun ákveðinn hundraðshluti af þeim deyja."

"Mér finnst harla ólíklegt að þessi dauðsföll tengist á nokkurn hátt bólusetningunni."

Hvað er maðurinn að segja? Fyrst segir hann að ákveðinn hluti fólks muni deyja af bólusetningunni. Og í næstu setningu að fólkið deyji ekki af bólusetningunni.

Og svo gagnrýnir hann Lyfjastofnun fyrir að leyna ekki upplýsingum!

Svona málflutningur nær auðvitað ekki nokkurri átt og hann er svo sannarlega ekki til þess fallinn að auka traust fólks á þessum bóluefnum.

Vitanlega á að upplýsa um allar aukaverkanir og dauðsföll. Þessar upplýsingar þarf svo að setja í samhengi við dánarlíkurnar ef þetta fólk smitast af pestinni. Þær líkur eru auðvitað langtum hærri. Svo tekur fólk upplýsta ákvörðun.


mbl.is „Mjög óvarleg tilkynning frá Lyfjastofnun“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þegar hann segir að ákveðinn hluti hundraðshluti af þeim muni deyja þá er hann ekki að segja af völdum bólusetningarinnar. Háaldrað fólk á dvalar- og hjúkrunarheimilum deyja í viku hverri og því hefur líklegast skýringin ekkert með bóluefnið að gera. Það ert þú sem ert búinn að ákveða orsakasamhengið þrátt fyrir að það liggi ekki fyrir. Það þarf hins vegar að rannsaka eins og verið er að gera. Þangað til er óábyrgt að tengja þessi dauðsföll við bólusetninguna. Það er því þinn málflutningur sem nær ekki nokkurri átt og er til þess fallinn að grafa undir trausti fólks á bóluefnum. Hefur þú ekki skrifað undir yfirlýsingu sem kallar eftir betri upplýsingagjöf í heimsfaraldrinum? Telur þú svona málflutning vera í samræmi við það?

Unnþór Jónsson (IP-tala skráð) 5.1.2021 kl. 14:14

2 Smámynd: P.Valdimar Guðjónsson

Kári er einfaldlega að segja , aldraðir munu deyja.   Fleira var nú ekki í fréttum. 

P.Valdimar Guðjónsson, 5.1.2021 kl. 15:26

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hér er haft orðrétt eftir Kára að þegar gamalt fólk er bólusett muni viss hluti þess deyja. Skýrara getur það nú ekki verið. Það þarf ákaflega einbeittan vilja til misskilnings til að mistúlka þessi orð.

Og það þarf einfaldlega ekki að koma neitt á óvart að sumt gamalt og veikburða fólk þoli ekki bólusetningu. Það að staðhæfa, án þess að vita neitt um það, að útilokað sé að tengja þessi dauðsföll bólusetningu er óábyrgt, enda hefur komið fram að þessi tengsl verði rannsökuð. Ef þetta lægi fyrir væri einfaldlega ekkert til að rannsaka.

Ég ítreka bara það sem fram kemur hér að ofan. Upplýsingum um þessa mögulegu hættu á ekki að bregðast við með afneitun heldur með því að setja hana í samhengi við líkur á smiti og dánarlíkur smitaðra á þessum aldri. Þessi afneitunarárátta og skammir í garð Lyfjastofnunar fyrir að koma upplýsingum á framfæri ber vitni um heimsku og þröngsýni. Og þegar fólk sér slík viðbrögð dregur það bara úr trausti á verkefninu. Svo einfalt er það nú.

Þorsteinn Siglaugsson, 5.1.2021 kl. 15:53

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sömu rök geta átt við dauðsföll hvort sem þau eru af völdum kóvít eða bólusetningar - "aldraðir munu deyja".

Magnús Sigurðsson, 5.1.2021 kl. 16:47

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Annars er ágætis grein eftir eldri konu á mbl í dag, þar sem farið er yfir tilurð bóluefnisins, ef svo ólíklega vildi til að einhver vildi kynna sér fleira en upphrópanir Kára og Kó.

https://www.mbl.is/smartland/pistlar/gudrunbergmann/2259529/?fbclid=IwAR2UTGdNaKUC9z8_48okKJAtu5Lrcqx8DME2Fgb14-7EK2NERuEtjPjn_yU

Magnús Sigurðsson, 5.1.2021 kl. 17:19

6 identicon

"Hér er haft orðrétt eftir Kára að þegar gamalt fólk er bólusett muni viss hluti þess deyja. Skýrara getur það nú ekki verið. Það þarf ákaflega einbeittan vilja til misskilnings til að mistúlka þessi orð."

Einbeittur vilji er einmitt það sem þú beittir til að mistúlka orð hans. Orð hans "Þegar þú bólusetur fjögur þúsund [aldraða] einstaklinga mun ákveðinn hundraðshluti af þeim deyja" eru ekki skýr um að bólusetningin sé orsök dauðsfallana. Þegar fréttin er lesin í heild sinni kemur augljóslega í ljós að Kári telur ólíklegt að orsakasamband sé þarna á milli. Samt segir þú að hann hafi sagt að ákveðinn hluti muni deyja AF bólusetningunni. Þetta er óheiðarlegt af þér.

Kári útilokar því ekki að orsakasamband geti verið þarna á milli heldur telur það harla ólíklegt og nær útilokað. Það er munur þar á. Í sama streng hafa Þórólfur og Rúna tekið, þ.e. ólíklegt en ekki útilokað. Það er enginn að fullyrða neitt en þú gefur í skyn að svo sé til að auka á tortryggni.

Hitt er svo annað mál hvort Lyfjastofnun hafi átt að senda út þessa tilkynningu. Ég tel að hún hafi átt að gera það vera en vandinn er sá að fjölmiðlar skella þessu fram með óábyrgum hætti. Ekki bættir úr skák þegar kóvitar, antivaxxistar og aðrir óheiðarlegir nýta sér fréttirnar til að draga úr trausti fólks á bólusetningu.

Unnþór Jónsson (IP-tala skráð) 5.1.2021 kl. 17:57

7 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þú skilur bersýnilega ekki málsgreinina. Hún lýsir einfaldlega orsakasamhengi: EF A ÞÁ B.

Þorsteinn Siglaugsson, 5.1.2021 kl. 18:15

8 identicon

Ef þessi málsgrein:

Þegar þú bólusetur fjögur þúsund [aldraða] einstaklinga mun ákveðinn hundraðshluti af þeim deyja

stæði ein og sér og án alls samhengis þá myndi ég fallast á að þar væri verið að ýja að orsakasmhengi milli A (bólusetningar) og B (dauðsföll). Málsgreinin stendur hins vegar ekki ein og sér og án samhengis. Frekari ummæli Kára gefa skýrlega í ljós að hann er ekki að halda fram orsakasambandi milli A og B. 

Unnþór Jónsson (IP-tala skráð) 5.1.2021 kl. 21:50

9 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þetta er ástæðan fyrir því að ég bendi á að málflutningurinn er mótsagnakenndur! Og mótsagnakenndur málflutningur, afneitun, hvatning til þöggunar, er ekki beinlínis leiðin til að efla með fólki traust á verkefninu, ekki með hugsandi fólki í það minnsta.

Þorsteinn Siglaugsson, 5.1.2021 kl. 23:13

10 identicon

Sæll nafni,

Það er eins og fjölmiðlar hér á landi leiti bara alltaf til hans Kára og þríeykisins, allt sem að aðrir erlendir fjölmiðlar hafa að segja varðandi þessi mál heyrist ekki í fjölmiðlum hér. Ef Kári er á þessari skoðun eða annarri, þá kemur það strax í fjölmiðlum hér, og sama má segja um þríeykið. Þannig er þetta búið að vera svona í næstum því eitt ár. Það er nú þegar búið að ákveða að rannsaka að ekkert samband er milli bólusetningar og andláts þá verður það niðurstaðan. Þetta þríeyki (eða Embætti landlæknis) hérna þykist ætla velja "óháða aðila" er eiga að rannsaka þessi alvarlegu atvik. Við vitum nú þegar að þetta eru EKKI óháðir aðilar sem að koma til með velja þessa óháðu aðila er eiga að rannsaka þessi alvarlegu atvik. En þetta sama lið óskar EKKI eftir rannsókn á bóluefninu. Nei, því þetta lið er fyrir löngu búið að ákveða allar niðurstöður fyrir okkur, og það á að halda áfram bólusetningum sama hvað, svo að lyfja- og bóluefnafyrirtækin borgi nú áfram fyrir þá þessa "Læknadaga" sem að haldnir eru í "Hörpu" árlega. Þrátt fyrir að þetta lið viti um að alvarlegar aukaverkanir hafa verið koma upp víða erlendis, og það hjá ólíkum aldurshópum, þá minnist þetta lið hérna ekkert á það allt saman, því að aðalatrið núna er finna eða búa til einhverja svona ómerkilega réttlætinu til halda áfram bólusetningum hér á landi.  
KV.

"87 Thousand doctors and nurses come out against covid-19 vaccine" https://rumble.com/vbok4n-87-thousand-doctors-and-nurses-come-out-against-covid-19-vaccine..html?fbclid=IwAR3NDQt7F45JmScLfYaPIc1YrdknHO48iRTSLPoF6S8NC7nyEADMMiY02V4

"WARNING 3,150 Injuries in First Week of Illegal Experimental COVID Vaccines Among American Healthcare Workers! Pregnant Women Included" https://vaccineimpact.com/2020/warning-3150-injuries-in-first-week-of-illegal-experimental-covid-vaccines-among-american-healthcare-workers-pregnant-women-included/?fbclid=IwAR3KHBaUfMqkvtJH1ifWPiU9cNh-vXrbTU9yifrGPsQEhGU2X2qAoEz2rTQ

"CDC Report – 3150 People Paralyzed After COVID-19 Vaccine “Unable To Perform Normal Daily Activities” https://greatgameindia.com/cdc-covid-19-vaccine-paralyzed/?fbclid=IwAR2gy40_vXNknCyMbIwgp_Po10RgwdSeuLuOPeDTt_tehDVwSp8Cw3eevZQ#

"FDA Investigates Allergic Reactions to Pfizer COVID Vaccine After More Healthcare Workers Hospitalized" https://childrenshealthdefense.org/defender/fda-investigates-reactions-pfizer-covid-vaccine-healthcare-workers-hospitalized/?fbclid=IwAR1h0UQMRllAN0mafrXUM1zOqOnYjesAbhwE1eQxK0Z2PJ8YxYQ-TJVklHQ

"Portuguese health worker, 41, dies two days after getting the Pfizer covid vaccine as her father says he 'wants answers' https://www.dailymail.co.uk/news/article-9111311/Portuguese-health-worker-41-dies-two-days-getting-Pfizer-covid-vaccine.html?fbclid=IwAR1i1Kw4BIcjodLPnvWC9_0BD1Jn3F7OLF4ZE4Zpe3NhxVTzgA-jOsMXAS8

"A 32-year-old Mexican doctor who had received the Pfizer vaccine was also hospitalized in intensive care with difficulty breathing and seizures, according to the country's health ministry." https://fr.sputniknews.com/europe/202101041045017300-un-medecin-grec-place-en-reanimation-apres-setre-fait-inoculer-le-vaccin-pfizer/?fbclid=IwAR2qEcxusJ3KZjw1gfOrD-Ewl_BOMDuYHRXGKjBsld83MvgjQDrDvacc8Mo

"Volunteers quit COVID-19 vaccine trial in Spain amid serious side effects reported in U.K. study" https://www.nydailynews.com/coronavirus/ny-coronavirus-volunteers-quit-trial-vaccine-spain-uk-20200915-scssjmumdfcnvimlemnhsxmoum-story.html?fbclid=IwAR113GWLzQctD3k98B4I4KN6e7NSFaZDz_tOF9S1gtPUkIas5UMjvmatTMM

"Bulgaria Reports 4 Cases Of Side Effects From Pfizer Covid Vaccine" https://www.ndtv.com/world-news/bulgaria-reports-4-cases-of-side-effects-from-pfizer-covid-vaccine-2347667?fbclid=IwAR34N88OprmpZEJRKNpQg5pIwXnwb7Gc3MAtIeY8OJ0fL5evXJ80V0TWuzc

"A 75-year-old Israeli dies hours after receiving Pfizer vaccine" https://www.donga.com/en/article/all/20201230/2336170/1/A-75-year-old-Israeli-dies-hours-after-receiving-Pfizer-vaccine

"Finland, Mexico report adverse effects to Pfizer vaccine; Argentina sees reactions to Sputnik V: Report"https://www.moneycontrol.com/news/world/finland-mexico-report-adverse-effects-to-pfizer-vaccine-argentina-sees-reactions-to-sputnik-v-report-6296691.html/amp?fbclid=IwAR2OqBMIVmwPDiTnT3FvAfDr66F5Vyq2hSCudcHRrLRC0g4MIYDoA3tjMBs


"Woman In Portugal Dies After Receiving Pfizer Vaccine" https://www.euroweeklynews.com/2021/01/04/woman-in-portugal-dies-after-receiving-pfizer-vaccine/?fbclid=IwAR2YU_3FGg7TluKdrEHEWlTgepad47b-BUjyec2D_0FRsUYCMUK8eFZKIHo

Rate Of Adverse Reactions To COVID Vaccines Already 50x Higher Than Flu Shot https://www.zerohedge.com/covid-19/rate-adverse-reactions-covid-vaccines-already-50x-higher-flu-shot?fbclid=IwAR2F10jQ53T6wSzFSMoBKJEIKj0GwdcapkIL1IstnGxinmvUZy_vnDb90Mg

 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 6.1.2021 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 287372

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband