Lausaganga húsflugna á Akureyri

Nýverið var flutt á RÚV löng frétt um að kisi nokkur hefði farið inn um opinn glugga hjá frú einni á Akureyri og gert stykki sín í stofusófann. Frúin var að sjálfsögðu svekkt yfir þessu og sá það helst til ráða að banna köttum á Akureyri að vera úti. Það þótti henni væntanlega einfaldara en að passa að hafa gluggana lokaða þegar hún færi í frí.

Í gær var svo bætt um betur og rakið í ennþá lengri frétt að húsflugur öngruðu nú Akureyringa sem aldrei fyrr. Jafnvel meira en utanbæjarmennirnir, en þeir munu orsök þess að ákveðið hefur verið að leggja niður dýflissuna á Akureyri, enda afbrot öll á ábyrgð hinna aðkomnu og þægilegra fyrir alla að þeir séu sem næst heimahögunum. Og nú hefur víst bæst við undirskriftasöfnun þar sem krafist er banns við lausagöngu húsflugna á Akureyri.

Utanbæjarmenn, kisur og húsflugur. Hvað verður næsta frétt um? Maður bíður spenntur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi frétt ætti fá smá skammt af athygli en þá man ég , þér ekki vel við flugliða. Engu að síður athyglisvert ef rétt er. https://www.ruv.is/frett/2020/07/29/spyrja-sig-hvort-icelandair-hafi-hegnt-flugfreyjum

Sigfus (IP-tala skráð) 30.7.2020 kl. 00:22

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Einn félagi minn vill helst banna lausagöngu Akureyringa.

Annars er það merkilegt hvað fólk telur sig hafa mikinn rétt umfram allar aðrar lifandi verur á þessari jörð, sumir reikna t.d. fastlega með því að dýr og fuglar kunni umferðareglurnar.

Svo ekki sé nú talað um þá flækjast um á hreindýra hryggja og gæsabringuveiðum, þá er jafnvel utanvega akstur góðkenndur.

Magnús Sigurðsson, 30.7.2020 kl. 06:35

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hreinlætið er svo mikið á Akureyri að fuglarnir sem fljúga þar yfir fljúga á bakinu!!

Sigurður I B Guðmundsson, 30.7.2020 kl. 11:47

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Kannski þeir haldi líka fyrir nefið með öðrum vængnum til að forðast klórlyktina Sigurður?

Þorsteinn Siglaugsson, 31.7.2020 kl. 09:23

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Lausaganga flugfreyja er auðvitað harðbönnuð Sigfús, enda tókst á endanum að reka þær heim í rétta stéttarfélagið.

Þorsteinn Siglaugsson, 31.7.2020 kl. 09:25

6 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þessi félagi þinn hlýtur að vera utanbæjarmaður Magnús.

Þorsteinn Siglaugsson, 31.7.2020 kl. 09:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 287343

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband