Maður örvæntir ...

... um framtíð tungumálsins þegar maður les svona samsetning:

 

"... bend­ir til ör­vænt­ingu..." (Læra að beygja nafnorð)

"Gj­elsvik seg­ist hafa kynnt fyr­ir Íslend­ing­um þau álita­mál úr umræðunni í Nor­egi um inn­leiðingu orkupakk­ans." (Hvaða þau álitamál? Læra að skrifa heilar málsgreinar.)

"Þess­ari kraft­miklu and­stöðu meðal norsku þjóðar­inn­ar, í norsku verka­lýðshreyf­ing­unni og inn­an fleiri stjórn­mála­flokka hafa þeir reynt að hylja.“ (Reyna að læra að beygja fornöfn - maður hylur eitthvað, maður hylur ekki einhverju.)

"en það er und­ir Íslandi sjálfu að ákveða hvað skal gera" (Það sem maður ákveður er ekki undir manni, en það getur verið undir manni komið.)

"gefa eft­ir fyr­ir þrýst­ingi norskra stjórn­mála­manna eða Evr­ópu­sam­band­inu" (Yfirleitt er nú talað um að láta undan þrýstingi frá einhverjum, ekki að gefa eftir fyrir þrýstingi einhverjum!!!)

 

Eflaust í takt við tímann að gefa líka þeim tækifæri í blaðamennsku sem ekki næðu samræmdu prófunum í íslensku, en maður þakkar samt fyrir að textinn er ekki lengri.

Screenshot 2019-08-13 at 22.37.23

 

 


mbl.is „Bendir til örvæntingar ráðherrans“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Margir fréttamenn eru illa skrifandi. Hélt að kröfur forsvarsmanna blaðanna væru meiri m.t.t. kunnáttu í móðurmálinu. Eitt dæmi sem fer í taugarnar á mér er fallbeyging á Slysavarnafélaginu Landsbjörg, algengt að fréttamenn skrifi og segi Landsbjörgu. Mega taka sig á.

Helga D Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 15.8.2019 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 287296

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband