Þegar ranghugmyndir skerða kjör almennings

Lækkunin á húsi sósíalistaforingjans er vitanlega tilkomin vegna þess að þrýstingur á fasteignaverð er nú niður á við, ekki upp á við.

Ýmsir verkalýðsleiðtogar - Gunnar Smári og fylgihnettir hans í Eflingu eru þó ekki þeirra á meðal - hafa lengi þvaðrað mikið um að með því að taka húsnæðiskostnað út úr neysluverðsvísitölu muni verðbætur lækka.

Þetta er tóm firra. Vitanlega hefur húsnæðiskostnaður áhrif upp á við þegar húsnæðisverð fer hækkandi umfram almennt verðlag. En þegar það stendur í stað eða lækkar hefur það auðvitað áhrif í hina áttina. Til lengri tíma eru áhrifin hvorki til hækkunar né lækkunar.

Undanfarin ár hafa áhrifin verið til hækkunar á vísitölu. En á næstu 2-4 árum ber spám saman um að verð muni líklega lækka að raunvirði.

Það er því einkennileg tímasetning að ætla að taka húsnæðisþáttinn út úr vísitölunni akkúrat núna. Það mun leiða til þess að kostnaður heimilanna vegna verðtryggingar verður meiri en ella. Jafnframt mun vísitalan sveiflast meira, sem eykur á óvissu fólks um eigin fjárhagslega stöðu.

Þeir sem nú hafa náð að troða eigin ranghugmyndum inn í kjarasamninga munu kannski læra af þessu á endanum (eða kannski ekki). En það skýtur skökku við að sá lærdómur verði á kostnað skuldsettra heimila.


mbl.is Gunnar Smári lækkar verðið á Fáfnisnesinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það sem er athyglisvert að að sósíalistinn Gunnar vill fá eins hátt verðfyrir fasteign sína eins og markaðurinn leyfir.  Hér birtast ekki sjónarmiðin að markaðurinn sé tæki djöfulsins og að þeir sem notfæra sér tækifæri markaðarins séu glæpamenn. Hér á ekki fórna eigin efnahag í anda hugsjónarinnar.

Ég skora á Gunnar Smára að lækka fasteign sína niður í það sem fólk sem tilheyrir hinni vinnandi stétt hafi efni á.

Stefán Örn Valdimarsson (IP-tala skráð) 5.4.2019 kl. 11:23

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Já, þetta er alveg briljant hugmynd fyrir hann Gunnar Smára. En svo gæti hann líka selt húsið á fullu verði en gefið fátækum andvirðið. Hvernig væri það nú?

Þorsteinn Siglaugsson, 5.4.2019 kl. 13:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 287306

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband