Lífróður

Nú róa formenn Eflingar og VR lífróður.

Samkvæmt orðum fyrrum formanns Landssamband Verslunarmanna eru verkföllin grundvölluð á skorti á vilja til samninga af hálfu formannanna, ekki á því að ekki hafi verið hægt að ná góðum samningum.

Næsta skref er þá að hrekja félagsmenn VR út í verkfallsaðgerðir á fölskum forsendum, og hafa af þeim kjarabætur. Hafa af þeim störf, því auðvitað veldur þetta uppsögnum í kjölfarið. 

Ef heldur fram sem horfið standa þessir apakettir uppi algerlega rúnir trausti eigin félagsmanna, hafandi valdið þeim stórtjóni með heimskulegu framferði sínu.

Þetta fólk mun í kjölfarið hrekjast frá völdum í félögunum og aldrei eiga afturkvæmt.


mbl.is Deiluaðilar sitja á rökstólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Þessi maður lagði auðvitað á flótta vegna þess að hann hafði ekkert bakland lengur. Það eru staðreyndir málsins og við hugmyndir þessa ágæta manns um kjarasamninga var ekkert fylgi í hans baklandi. En Mogginn kýs að orða þetta með öðrum hætti eins og hann á vanda til. 

Það er nauðsynlegt að fara nálgast sanngjarna niðurstöðu. 

Kristbjörn Árnason, 21.3.2019 kl. 11:35

2 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Þorsteinn, LÍV og formaður þess hafði ekkert samningsumboð

Kristbjörn Árnason, 23.3.2019 kl. 00:20

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Kristbjörn. Það kemur málinu ekkert við hvort hann hafði samningsumboð eða ekki.

Þorsteinn Siglaugsson, 23.3.2019 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 287301

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband