27.8.2018 | 09:36
Menningarhlutverk Ríkissjónvarpsins
Í gærkvöldi sýndi Ríkissjónvarpið mynd Kristínar Jóhannesdóttur "Svo á jörðu sem á himni". Þessi mynd er eitt af fáum raunverulegum stórvirkjum íslenskra leikstjóra, gott ef ekki það eina.
Stór hluti myndarinnar er á frönsku. Góð textun er því lykilatriði enda ekki hægt að reikna með að nema brot af áhorfendum hér séu altalandi á þá tungu.
En textann vantaði. Bersýnilega hafa menningarpostular stofnunarinnar ekki betri þekkingu á íslenskri kvikmyndagerð en svo að þeir hafa ekki vitað að þörf væri á að texta myndina. Og metnaðurinn ekki meiri en svo að engum hugkvæmdist að bæta úr þegar þetta kom á daginn. Virðingarleysið gagnvart áhorfendum og aðstandendum þessarar stórkostlegu kvikmyndar algert.
Menningarhlutverk?
Er ekki kominn tími til að stafla mannauðnum hjá þessari sorglegu stofnun út á stétt, læsa á eftir honum og henda lyklinum?
Afhenda svo lóðina Holu-Hjálmari og verktakavinum hans til að byggja þar enn eina lúxusblokkina fyrir heimilislausa erlenda auðmenn?
Og nota síðan þá sex milljarða sem sviðnir eru út úr skattgreiðendum til að niðurgreiða þessa hlægilegu starfsemi í eitthvað gagnlegra?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Almenningur þyrfti helst að geta hrósað eða refsað
hinum ýmsu dagskrárliðum hjá rúv með einhverjum hætti.
=Að geta valið um eitthvað fyrirfram.
Hvort myndi almenningur frekar vilja endurvekja NÝJASTA-TÆKNI OG VÍSINDI
eða að halda úti her manns við að kvikmynda motorsportþætti?
Jón Þórhallsson, 27.8.2018 kl. 10:50
... já, eða sjónvarpa golfkeppnum. Eins hægt að sýna kyrrstæða lest :)
Þorsteinn Siglaugsson, 27.8.2018 kl. 11:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.