14.10.2010 | 10:33
Flækjum ekki málið
Það er vissulega alveg rétt að flatar niðurfærslur eru kostnaðarsamar fyrir skattgreiðendur og lífeyrissjóði. Með þeim má segja að við séum að seilast í sparibauka barnanna okkar og hvolfa úr þeim til að bjarga okkur frá eigin klúðri.
Þetta er hins vegar á endanum pólitísk ákvörðun um millifærslu milli hópa. Kostnaðarrökin halda því í rauninni ekki heldur snýst málið í raun um hvort millifærslan er réttlát eða ekki. Sjálfur efast ég mjög um það en hlusta vitanlega á sjónarmið þeirra sem ekki eru mér sammála.
Þeir verst settu skulda miklu meira en þeir geta nokkurn tíma greitt. Niðurfærsla kemur þeim því aldrei að neinu gagni. Eina aðgerðin sem gagnast þeim er sértæk niðurfærsla skuldanna. Úrræðin sem nú er boðið upp á eru allt of flókin fyrir flesta, þjónustulund stofnunarinnar sem sér um þau er að sögn mjög takmörkuð og jafnvel þótt úrræðanna sé neytt getur það leitt hörmungar yfir ábyrgðarmenn skulda. Málið var greinilega allt vanhugsað frá byrjun.
Skásta leiðin fyrir þá verst settu er að gjaldþrot einstaklings geti gengið fyrir sig eins og gjaldþrot fyrirtækis: Eignir eru hirtar, búinu skipt og málinu þar með lokið. Þá er hægt að leggja stofnun Umboðsmanns skuldara niður og ráða í staðinn fleiri héraðsdómara til að klára þrotamálin.
Flatur niðurskurður hjálpar ekki þeim verst stöddu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:36 | Facebook
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 287738
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.