Vonandi rétt að LV verði einkavædd

Það er vonandi rétt hjá Skúla Thoroddsen að til standi að einkavæða Landsvirkjun. Með einkavæðingu væri tryggt að ekki yrði farið út í fleiri ævintýri á borð við Kárahnjúkavirkjun. Það verður líka áhugavert að sjá hvert virði þeirrar virkjunar verður metið þegar kemur að sölunni. Næsta víst er að það verði amk. 20-30 milljörðum undir byggingarkostnaði, enda hlýtur ríkisábyrgð að verða afnumin með einkavæðingunni og virkjunin endurfjármögnuð. Þá kemur kostnaðurinn af verstu fjárfestingarákvörðun Íslandssögunnar í ljós svo ekki verður um villst.
mbl.is Segir að byrjað sé að undirbúa sölu Landsvirkjunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Omar Kajam

Er Dagsbrún vinstri hendi um himin fer,

ég heyri í draumi að rödd úr kránni ber:

"Vaknið nú, drengir, fyllið bikar fljótt

og fyrr en Lífsins veig af skálum þver!"

Samkvæmt fréttum sjónvarpsins í gær var einn forsprakka hryðjuverkamannanna Omar nokkur Kajam. Sá Omar Kajam sem ég man eftir var persneskt skáld, fæddur á elleftu öld. Kajam er þekktastur fyrir kvæðabálkinn Rubajat, þar sem hann lofsyngur lífið (sjá að ofan) og hafnar hugmyndum strangtrúaðra landa sinna um líf eftir dauðann og refsingu guðs:

Ef Himnaríki fær sá flokkur gist

sem fyrirlítur ást og drúfukvist,

sú frétt mér þætti fróðleg ekki sízt

hvort fjölmennt er í Paradísar vist.

Það væri óneitanlegra betur að Omar Kajam hinn nýi hefði fylgt fordæmi nafna síns, en svona geta hlutirnir breyst: Gullin hvolfþök soldánshallarinnar eru ekki lengur kennimerki persneskrar menningar heldur siðferðislögreglur og sjálfsmorðssprengjumenn. Sagði einhver að mannkynið væri á þroskabraut?

(Ljóðaþýðingin er Helga Hálfdanarsonar)


mbl.is Bresk þingnefnd hyggst rannsaka vinnubrögð MI5
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. maí 2007

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.10.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 288249

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband