Orð í tíma töluð!

Hvort sem menn eru sammála Al Gore eða ekki um Íraksstríðið og umhverfismál hlýtur flest hugsandi fólk að vera sammála því að mikilvægara sé að nýta tímann til að setja sig inn í það sem skiptir máli en það sem skiptir engu máli. Slúður, hvort sem er um viðkomandi eða óviðkomandi fólk er ákaflega leiðinlegur vani og má vel halda því fram að það sé til marks um slæmt uppeldi og lágt menningarstig.
mbl.is Gore gagnrýnir áhuga fólks á slúðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar bara embætti handa tveimur

Nú hafa fimm Framsóknarþingmenn fengið embætti í þingflokknum. Ætli þeim sárni ekki, þessum tveimur sem eftir sitja?
mbl.is Siv kjörin formaður þingflokks Framsóknarflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Anzi langsótt

Öryrkjabandalagið vantar líklega eitthvað til að komast í fréttirnar út á. Mér finnst þetta langt seilst til þess. Ætti þá verkfræðingafélagið að álykta ef svo vildi til að einhver heimilislaus maður væri verkfræðingur, bara svo dæmi sé tekið?
mbl.is Öryrkjabandalagið kærir auglýsingar með Lalla Johns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með arðsemi að leiðarljósi

Á einhverjum tímapunkti í kosningabaráttunni lýsti formaður Samfylkingarinnar yfir því, að hún teldi að forsenda frekari virkjana fyrir stóriðju ætti að vera sú, að þær stæðust eðlilegar arðsemiskröfur markaðarins.

Mikið hefur verið rætt um neikvæð áhrif stóriðjuframkvæmda á efnahagslífið. Mikilvægt er þó að hafa í huga, að þau ruðningsáhrif sem stórar framkvæmdir valda oft kunna að vera réttlætanleg. Í tilfelli Kárahnjúkavirkjunar eru þau ekki réttlætanleg því arðsemin er aðeins 3-4% meðan markaðurinn krefst 7-8%. Ruðningsáhrifin eru því neikvæð. En standi framkvæmd undir eðlilegum arði eru ruðningsáhrifin ekki neikvæð, þá ryðja þau burt greinum sem skila minni arðsemi.

Markaðsarðsemi er því grunnpunktur í allri umræðu um stóriðjuframkvæmdir - að sjálfsögðu að teknu tilliti til náttúruverndarsjónarmiða. Ingibjörg Sólrún hefur nú tækifæri til að koma nýrri nálgun að í þessum málum og gera þá kröfu að frekari stórvirkjanir standist arðsemiskröfur - í það minnsta. Slík krafa hlyti að vera í samræmi við grunngildi Sjálfstæðismanna og því ætti vart að vera fyrirstaða þar.


mbl.is Stóriðja og stjórnarmyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæti orðið góð stjórn - en þarf að fara varlega

Stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar gæti vel orðið góð stjórn. Líklega mætti þá taka á landbúnaðarmálum, kjördæmaskipan, einkavæðingu og fleiri góðum málum.

En líklega þarf að stíga varlega til jarðar því nú er líklegt að VG og Framsókn fari að plotta saman. Þeir væru vísir til að bjóða ISG forsætisráðherrastól í vinstri stjórn. Í ljósi þess að hún hefur reynslu af slíku samstarfi í borginni og gekk bara ágætlega að halda því saman þar er ekki ólíklegt að slíkt tilboð myndi hljóma vel. SS stjórnin er því alls ekki komin á koppinn jafnvel þótt Geir og Solla séu byrjuð að tala saman. Geir gæti allt eins vaknað upp einn í bólinu og búið að skrifa bless á spegilinn með varalit!


mbl.is Ekki grundvöllur fyrir áframhaldandi samstarfi stjórnarflokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líknarmeðferð?

Ég skrifaði um það færslu hér í fyrradag að ef Framsóknarmenn færu nú í stjórn með Sjálfstæðisflokki væri líklegast að þeir gripu fyrsta tækifærið sem gæfist til að slíta samstarfinu á grunni einhvers óvinsæls máls og afla sér þannig fylgis á ný. En það má líka líta málið öðrum augum: Kannski hefur forysta Framsóknarflokksins komist að þeirri niðurstöðu að lífdagar hans séu hvort sem er taldir. Því sé skásti leikurinn nú að hanga í stjórn með Sjálfstæðismönnum eins lengi og mögulegt er áður en flokkurinn gefur upp öndina. Slíkt myndi skapa forystumönnum hans nægt svigrúm til að finna aðra vinnu fyrir sig og helstu stuðningsmenn auk þess sem aðgangur í sjóði skattgreiðenda yrði opinn áfram. Þetta væri eins konar pólitísk líknarmeðferð.
mbl.is Framhald núverandi stjórnarsamstarfs feigðarflan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttindamál?

Hafa ekki ein helstu rök fóstureyðingarsinna verið þau, að fóstureyðingar séu kvenréttindamál?
mbl.is 100 milljón konur vantar vegna kyngreindra fóstureyðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líkur Jóni Sig

Hann er nú ekkert ósvipaður Jóni Sigurðssyni þessi. Ætli þetta séu einhver dulin skilaboð frá Mogganum?


mbl.is Innanríkisráðherra Palestínumanna segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nagli í líkkistu Geirs?

Það kæmi mér ekki á óvart að Geir og Jón héldu samstarfi áfram. En það er mikilvægt fyrir Sjálfstæðismenn að hafa í huga hverjar afleiðingarnar gætu orðið:

Framsóknarflokkurinn er í sögulegu lágmarki. Samstarf við Sjálfstæðisflokk er afar ólíklegt til að færa flokknum aukið fylgi. Þó er ein leið til þess. Hún er sú að setjast aftur að ketkötlunum í bili, en finna svo fljótlega ásteytingarstein - óvinsælt mál sem hægt er að sprengja stjórnina út af. Eftir slík stjórnarslit er Framsókn líklegust til að rétta úr kútnum. Staða Geirs gæti hins vegar orðið afar erfið eftir slíka uppákomu.


mbl.is Líklegast að stjórnin sitji áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha?

Ég hef nú svo sem haft ágæta trú á Birni Inga Hrafnssyni og þótt þar fara maður bæði skynsamur og hress. En ekki þykir mér það skynsamlega sagt að unga fólkið muni fylkja sér á bak við Jón Sigurðsson. Mannkertið minnir mig mest á illa gefinn en einkar rogginn menntaskólakennara sem tekur sjálfan sig mjög hátíðlega og nemendur hafa gaman af að gera grín að. Fyrir mitt leyti held ég að miklu líklegra sé að ungt fólk geti hugsað sér að fylkja sér að baki Birni Inga sjálfum.
mbl.is Björn Ingi Hrafnsson: Yngri kynslóðin mun fylkja sér bak við Jón Sigurðsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2007
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.10.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 288249

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband