Gæti orðið góð stjórn - en þarf að fara varlega

Stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar gæti vel orðið góð stjórn. Líklega mætti þá taka á landbúnaðarmálum, kjördæmaskipan, einkavæðingu og fleiri góðum málum.

En líklega þarf að stíga varlega til jarðar því nú er líklegt að VG og Framsókn fari að plotta saman. Þeir væru vísir til að bjóða ISG forsætisráðherrastól í vinstri stjórn. Í ljósi þess að hún hefur reynslu af slíku samstarfi í borginni og gekk bara ágætlega að halda því saman þar er ekki ólíklegt að slíkt tilboð myndi hljóma vel. SS stjórnin er því alls ekki komin á koppinn jafnvel þótt Geir og Solla séu byrjuð að tala saman. Geir gæti allt eins vaknað upp einn í bólinu og búið að skrifa bless á spegilinn með varalit!


mbl.is Ekki grundvöllur fyrir áframhaldandi samstarfi stjórnarflokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjólfur Bragason

Sammála nú gerast hlutirnir hratt, líklega er búið að ganga frá samstarfi Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingar, annars væri sá möguleiki að Geira vaknaði upp með ljótustu stelpuna á ballinu og þá í stjórnarandstöðu.

Brynjólfur Bragason, 17.5.2007 kl. 15:54

2 identicon

Ekki skil ég alveg, hví Sjálfstæðisflokkurinn hafnar samstarfi við einn tapara í kosningunum til að leita eftir samstarfi við annan tapara.  Missti Samfylkingin ekki tvo þingmenn í síðustu kosningingum miðað við kosningarnar 2003?

Ingis (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 16:05

3 identicon

Ingis: Ef við ætlum að oftúlka alla flokka með þessum hætti þá gætum við útilokað allar mögulegar stjórnarmyndanir.

Þjóðin var fyrst og fremst að segja að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að vera áfram í stjórn og að Framsókn eigi að víkja. Því eru bara tveir sanngjarnir möguleikar og það eru D+S eða D+V, hinsvegar er D+V mjög óraunhæfur möguleiki og því leita þeir til S fyrst. 

Geiri (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 18:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 287270

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband