2.4.2017 | 15:45
Kemur málinu við hvort Bjarni er úr Garðabæ?
Málflutningur borgarstjórans segir auðvitað allt sem segja þarf um hvernig og hvers vegna borgin hefur brugðist því hlutverki að láta lóðaframboð vera í takt við íbúafjölgun.
Hvers vegna segist hann vera að skipuleggja einn Garðabæ? Af hverju segist hann ekki frekar vera að skipuleggja 25 Raufarhafnir? Hljómar það ekki ennþá sniðugra? Og kemur það ekki lóðaframboði í Reykjavík sem hlutfalli af íbúafjölgun í Reykjavík nákvæmlega jafn mikið við?
Hversu lengi enn ætla Reykvíkingar að láta þennan froðusnakk þykjast stjórna borginni?
Dagur: Mér finnst þetta ódýrt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.4.2017 | 22:49
Misskilningur
Heimspekikennsla snýst ekki um að þjálfa fólk í samfélagsvitund. Hún snýst um að þjálfa fólk í að spyra gagnrýninna spurninga um samfélagið, lífið og heiminn og nálgast viðfangsefnin á röklegan hátt.
Með öðrum orðum hefur það ekkert með heimspeki að gera að undirbúa nemendur "undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi". Þvert á móti spyr heimspekin gagnrýninna spurninga um lýðræðisþjóðfélagið sem slíkt. Gleymum því ekki heldur að Sókrates var tekinn af lífi eftir lýðræðislegri ákvörðun og lýðræði var eitur í beinum Platóns.
Þessi hugmynd Píratanna snýst ekki um neitt annað en að nota heimspekina sem einskonar tæki til að tryggja hlýðni og hollustu borgaranna. Hún gengur því þvert gegn inntaki heimspekinnar sjálfrar.
Heimspeki verði skyldufag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2017 | 20:49
Vel til fundið
Sósíalisminn er gjaldþrota hugmyndafræði sem hefur leitt hörmungar yfir almenning alls staðar þar sem hann hefur verið reyndur.
Fyrirtæki Gunnars Smára hafa haft þá leiðu tilhneigingu að verða gjaldþrota. Það eiga þau sameiginlegt með sósíalismanum.
Það er því vel til fundið af Gunnari að drífa nú í því að stofna enn einn stjórnmálaflokkinn utan um þessa gjaldþrota hugmyndafræði áður en nýjasta tilraun hans á sviði einkframtaksins ratar í skiptaráðendahimnaríkið.
Möguleiki á sósíalistaflokki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2017 | 10:26
Hmm ... hvað með bullvakt Alþingis?
Kynjavakt Alþingis er auðvitað snilldarhugmynd. Svo mætti líka stofna aldursvakt, háralitarvakt, húmorvakt (til að gá hvort meira mark sé tekið á leiðinlegum þingmönnum). Þetta er auðvitað allt einfalt að gera enda vitanlega til skýrir og einfaldir mælikvarðar til að meta hvort kyn, aldur, háralitur, húmorsleysi og annað hafi einhver áhrif á ... ja hvað eiginlega?
En eitt er hægt að mæla og það er hversu mikið af tíma þingsins fer í að ræða um alls konar bullfrumvörp og þingsályktunartillögur sem hafa þann eina tilgang að reyna að sýna kjósendum viðkomandi flokks eða þingmanns fram á að viðkomandi sé nú að gera eitthvað ... ekki bara hangsa. Til þess þarf að stofna bullvakt Alþingis.
Vilja stofna kynjavakt Alþingis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.5.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 47
- Frá upphafi: 287347
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 47
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar