Alvarlegt mál

Það er auðvitað mjög alvarlegt ef lögreglan hefur leynt þessum bréfum enda á hún að rannsaka málið á hlutlægan hátt. Hins vegar finnst mér það sýna heiðarleika af hálfu saksóknarans að leggja þau fram og reyna þannig að bæta fyrir ágalla í rannsókninni.
mbl.is Verjendur gagnrýna ónóga hlutlægni á rannsóknarstigi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ættu þeir ekki allir að segja af sér

Það er hárrétt hjá Sigurði Kára að ef Siv meinar það sem hún er að segja á hún ekkert erindi í stjórnarsamstarfið. En ekki var annað að sjá en formaður Framsóknar tæki undir orð hennar. Vitanlega er þetta ekki annað en ómerkilegt upphlaup til þess ætlað að slá ryki í augu kjósenda - stíll Jóns Sigurðssonar skín semsagt í gegn! Best væri að þeir segðu allir af sér og minnihlutastjórn Sjálfstæðismanna tæki við fram að kosningum.


mbl.is Sigurður Kári telur að Siv eigi að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægt að segja satt

Hvað svo sem fólki kann að finnast um fyrirhugaða stækkun álversins í Straumsvík er eitt ljóst. Ef Alcan og bæjaryfirvöld ætla að byggja málflutning sinn á ósannindum verður það tæpast til þess að auka fylgi við stækkun heldur öfugt. Aðferðafræði Friðriks Sophussonar dugar ekki hér!
mbl.is Segir mengun frá Alcan aukast við stækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

7% vissu um hvað málið snerist!

Ef þessi niðurstaða er til marks um eitthvað er það helst það, hversu hættulegt beint lýðræði gæti verið, ekki síst þegar kemur að dómsmálum. Niðurstaða málsins var frávísun. Sé máli ekki vísað frá fær það efnislega meðferð. En það voru bara 7% svarenda sem vildu það! Hinir virðast flestir hafa viljað stinga körlunum inn, sekta þá eða hneppa í þrældóm - þá væntanlega án þess að málið fengi efnislega meðferð.


mbl.is Mikil óánægja með frávísun í máli forstjóra olíufélaganna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engar líkur á lokun

Eins og fram kemur í grein Einars Júlíussonar eðlisfræðings í Blaðinu í dag er orkuverð til Alcan í Hafnarfirði stórlega niðurgreitt. Engar líkur eru því til þess, að álverinu verði lokað þótt ekki verði af stækkun þess. Samkvæmt grein Einars er jafnframt ljóst að verð til stækkunarinnar verði svipað og Alcoa greiðir fyrir orku frá Kárahnjúkavirkjun. Sé tekið tillit til áætlaðs kostnaðar við jarðvarmavirkjanir er ljóst að sú orkusala stendur ekki undir sér. Hagkvæmasta niðurstaðan út frá þjóðhagslegum sjónarhóli er því væntanlega sú að ekki verði af stækkuninni.
mbl.is Hvetja Hafnfirðinga til að taka þátt í íbúakosningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Mars 2007
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.10.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 288250

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband