3.12.2020 | 11:26
Þegar heildarmyndin hverfur
Þessi grein er skýrt dæmi um það sem gerist þegar heildarmyndin hverfur og allur fókusinn fer á eitthvað eitt, sem skiptir auk þess engu sérstöku máli.
Hér er engar upplýsingar að finna um að samdráttur á þriðja fjórðungi ársins á Íslandi er meira en tvöfaldur samdrátturinn í Evrópu.
Engar upplýsingar um að tugþúsundir fólks hafa misst vinnuna vegna misráðinna aðgerða stjórnvalda.
Engar upplýsingar um þá stórfelldu truflun sem heimskulegar reglur hafa valdið á námi barna og ungmenna.
Engar upplýsingar um stórfellda aukningu sjálfsvíga.
Og þannig má lengi telja.
Því það er ekkert sem skiptir máli nema fjöldi smita. Allt annað er aukaatriði.
![]() |
Aðgerðir Íslands mærðar í Nature |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.12.2020 | 20:02
Áhugaverð spurning
Það hvort rétt sé að skylda fólk til að láta bólusetja sig er áhugaverð spurning. Um hana verður meðal annars fjallað á fjarfundi með siðfræðingunum Dr. Vilhjálmi Árnasyni prófessor og Dr. Alberto Giubilini sérfræðingi við Oxfordháskóla í næstu viku, á vegum hópsins "Út úr kófinu".
![]() |
Ekki hægt að skylda fólk til að taka bóluefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.12.2020 | 18:24
Heilbrigð sál í hraustum líkama - hver eru áhrif sóttvarnaraðgerða á íþróttastarf?
Miðvikudaginn 2. desember kl. 12 á hádegi stendur hópurinn Út úr kófinu fyrir fundi um þær áskoranir sem íþróttastarf í landinu stendur nú frammi fyrir vegna takmarkana sem settar hafa verið á íþróttastarf. Fjallað verður um þær afleiðingar sem þessi staða hefur, bæði fyrir líkamlega og andlega heilsu barna og unglinga og fyrir afreksíþróttir.
Fundinum stýrir Bjarni Th. Bjarnason, formaður Skíðasambands Íslands. Hann ræðir við Guðna Bergsson, formann KSÍ, Sólveigu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Fimleikasambands Íslands, og Dr. Jón Ívar Einarsson, lækni og prófessor við Harvard Medical School.
Fundinum verður streymt á Facebook
Við hvetjum allt áhugafólk um íþróttastarf og lýðheilsu til að fylgjast með þessari umræðu.
Út úr kófinu er hópur fólks úr ýmsum geirum samfélagsins sem vill leggja sitt af mörkum til að bæta upplýsingagjöf um kórónuveirufaraldurinn, afleiðingar og aðgerðir ásamt því að færa skoðanaskipti upp á yfirborðið og móta tillögur að leiðum út úr þessu ástandi. Nánari upplýsingar á kofid.is
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
-
agny
-
graenar-lausnir
-
bjarnijonsson
-
bjornalexandermikli
-
gattin
-
dofri
-
contact
-
fhg
-
gretaulfs
-
gudni-is
-
mosi
-
bofs
-
muggi69
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
holi
-
haukurn
-
diva73
-
hlynurh
-
ingibs
-
ingolfursigurdsson
-
fun
-
jennystefania
-
johnnybravo
-
eyfeld
-
jonbergsteinsson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kristjan9
-
loncexter
-
ludvikjuliusson
-
sleggjudomarinn
-
magnuss
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
otti
-
runaro
-
joklamus
-
sigurjons
-
stefanjul
-
summi
-
saemi7
-
samy
-
torfusamtokin
-
vestfirdir
-
thorsteinn
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar