27.11.2007 | 21:16
Sérkennileg skilaboð
Maður sem stal hálfflösku af vodka er dæmdur í mánaðarfangelsi og til að greiða kr. 2.370 í bætur.
Fyrir skömmu var maður sem nauðgaði 6 stúlkubörnum er dæmdur í 30 mánaða fangelsi Það gerir fimm mánuði fyrir hvert barn sem hann svívirti.
Hver eru skilaboð dómskerfisins? Hefði sá þorstláti fengið tveggja mánaða dóm ef flaskan hefði verið heil? Var lífshamingja barnanna metin á 5x2.370 krónur?
Mánaðar fangelsi fyrir að stela vodkapela | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:18 | Facebook
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góður puntur hjá þér
Ólafur Ragnarsson, 27.11.2007 kl. 23:56
Burtséð frá þessum undarlegu hlutföllum í fangelsisdómum, þá finnst mér hreint ótrúlegt hversu hratt þetta gekk fyrir sig. Hann braut af sér á Þriðjudag og var sakfelldur og dæmdur á Miðvikudag, varla runnið af honum! Í Kanada, þar sem ég þekki svolítið til réttarkerfisins, væri þetta gersamlega óhugsandi, og það réttilega að mínu mati. Var hann edrú þegar hann játaði á sig glæpinn? Hafði hann fengið tóm til að ráðfæra sig við lögfræðing áður en hann var dreginn fyrir dómara? Hafði lögfræðingurinn (ef hann hafði lögfræðing) fengið tækifæri til að grandskoða sönnunargögn og gaumgæfa hvernig staðið var að rannsókn málsins? Þegar svona mikið liggur á að stinga meintum glæpamönnum í steininn er ansi hætt við að saklaust fólk fljóti með af og til.
rvg (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 08:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.