Hvað er persónuleg ábyrgð?

Rakst á þessa frétt og viðtal við þennan lögreglumann áðan. Hann hneykslast á bréfi samtakanna Frelsi og ábyrgð, sem sent hefur verið fjölmörgum einstaklingum sem bera ábyrgð á velferð barna. Lögreglumaðurinn segist hafa móðgast "fyrir hönd ríkisstarfsmanna sem séu "skyldugir til að framfylgja reglum".
Ríkið, eða fyrirtækið, getur ekki haft neitt siðferði. Það getur aldrei verið ábyrgt gjörða sinna. Siðferði snýr ávallt að einstaklingnum sjálfum. Hann getur aldrei skýlt sér á bak við það að hann sé bara að "framfylgja reglum". Sé einstaklingi uppálagt að framfylgja reglum sem eru siðferðilega rangar er það skylda hans að neita, og láta af starfi sínu ef þess þarf.
Þess vegna er bréf samtakanna afar mikilvægt. Það þvingar nefnilega þá sem yfirleitt skýla sér á bak við reglur til að taka sjálfir ábyrgð á gjörðum sínum.
Það er ekkert hneykslanlegt við að krefjast þess að fólk sýni siðferðilega ábyrgð. Það er þvert á móti skylda þess að gera það. Starfsskyldur geta aldrei gengið framar þeim skyldum sem persónuleg ábyrgð einstaklingsins skapar honum.
Set hér með hlekk á ritgerð sem ég skrifaði um þetta efni fyrir margt löngu https://www.researchgate.net/.../272148007_Corporations...

mbl.is Hissa á Arnari „að spila þennan leik“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Vel sagt og er ég þér algerlega sammála. Þetta er að mínu mati svolítið smámunalegt að haga sér svona og líka hjá fram­kvæmda­stjóri hjúkr­un­ar hjá Heilsu­gæsl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu að hafna móttöku á bréfinu. Þetta er ekki fólkið sem ég myndi kjósa í framlínu fyrir mín mál, aðilar sem neitar að taka við einhverju af því að það er ekki eins og þau vilja hafa þetta, eftir hinum eina sanna sannleik. 

Þetta kóvíð hjá þessu fólki er orðin trú frekar en vísindi hefur mér sýnst.

Halldór Björgvin Jóhannsson, 10.1.2022 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 287302

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband