17.11.2017 | 15:19
Munur á kúk og skít
1. Samkvæmt þessari niðurstöðu hefur nú fengist sannað, með miklu orðskrúði, málalengingum og hártogunum, að mikill munur er á kúk og skít. Raunar alger grundvallarmunur.
2. Þar sem borgarstjóri ber í raun og veru ekki ábyrgð á nokkrum sköpuðum hlut innan borgarkerfisins, hvorki fyrirtækjum borgarinnar, embættismönnum eða nefndum, er þá nokkur þörf á að hafa borgarstjóra?
3. Ráðning nýja borgarlögmannsins á dögunum hefur greinilega borgað sig.
Dagur ekki ábyrgur fyrir skólpleka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 287738
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
En hvers vegna að stoppa við borgarstjóra? Eru Forsætisráðherra og Heilbrigðisráðherra ekki hinir endanlega seku? Ef við ætlum að gera menn ábyrga fyrir gjörðum allra sem eru lægra settir, þó þeir hafi ekkert boðunarvald yfir þeim og þeirra gjörðum, þá eru topparnir í Íslensku þjóðfélagi ábyrgir fyrir öllu sem skeður.
Áttir þú von á því að hinn nýi borgarlögmaður snérist á sveif með lýðskrumi, múgæsingu og fáfræði til að gleðja þig?
Ufsi (IP-tala skráð) 17.11.2017 kl. 15:53
Bera ekki ráðherrar ábyrgð á gerðum undirmanna sinna. Er ekki frekar stutt síðan að ráðherra sagði af sér vegna slíks máls?
Þótt manni þyki Dagur spennandi þarf maður þó ekki að fara í fýlu þótt hann sé gagnrýndur, eða hvað?
Þorsteinn Siglaugsson, 17.11.2017 kl. 16:26
Ég sé að Ufsi fer alveg á kostum hér, og á öllum bloggum og nú vill hann að Heilbrigðisráðherra beri ábyrgðina fyrir borgarstjóra. Það er bara nokkuð merkilegt.
En veit Ufsi að borgarstjóri er með jafn há laun og Forsætisráðherra ? Ef Heilbrigðisráðherra á að bera ábyrgð á honum, er þá ekki hægt að sleppa þessu embætti hjá borginni ?
Valur Arnarson, 17.11.2017 kl. 17:15
Ég er ekki viss um að heilbrigðisráðherra sé til í að taka ábyrgð á borgarstjóranum. En kannski er Landlæknir til í það?
Þorsteinn Siglaugsson, 17.11.2017 kl. 19:29
Þótt manni þyki Dagur ekki spennandi þarf maður þó ekki að kenna honum um allt sem aflaga fer á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn OR og Veitna eru ekki undirmenn borgarstjóra og heilbrigðisfulltrúar eru sjálfstæðir í starfi og bera einvörðungu ábyrgð gagnvart viðkomandi heilbrigðisnefnd.
Sé borgarstjóri ábyrgur fyrir gjörðum þeirra eru Forsætisráðherra og Heilbrigðisráðherra þá ekki hinir endanlega seku ef við ætlum að gera menn ábyrga fyrir gjörðum allra sem eru lægra settir? Þá eru topparnir í Íslensku þjóðfélagi ábyrgir fyrir öllu sem skeður, hverju umferðarslysi, innbroti, bilun rafmagnstækja o.s.frv. og þú hefur nóg að blogga um og hver ráðherra hefur 10 ástæður fyrir morgunkaffi til að segja af sér.
Ufsi (IP-tala skráð) 17.11.2017 kl. 20:00
Já, Ufsi minn. Er ekki bara best að vísa ábyrgðinni á öllu sem aflaga fer á guð almáttugan. Þú getur svo auðvitað skipt um skoðun ef pólitískur andstæðingur þinn verður einhvern tíma borgarstjóri.
Þorsteinn Siglaugsson, 17.11.2017 kl. 20:30
Þorsteinn,
Ég held að hann Ufsi vinur okkar sé að misskilja stjórnskipan landsins. Borgarstjóri er ekki undirmaður Forsætisráðherra, hvað þá Heilbrigðisráðherra.
Valur Arnarson, 17.11.2017 kl. 20:50
Já, ég hef reynt að benda Ufsa á að kannski sé betra að Landlæknir beri ábyrgð á borgarstjóranum, en engar undirtektir fengið
Þorsteinn Siglaugsson, 17.11.2017 kl. 22:07
Þorsteinn, en borgarstjóri Reykjavíkur er pólitískur andstæðingur minn að því leiti að við styðjum ekki sama flokk. Ég er bara hvorki blindur né heimskur....og bý ekki á höfuðborgarsvæðinu. Mér gæti ekki verið meira sama hver er borgarstjóri hjá ykkur í Reykjavík eða hvað hann gerir eða gerir ekki.
Valur, það er rétt, borgarstjóri er ekki undirmaður Forsætisráðherra, hvað þá Heilbrigðisráðherra. Og starfsmenn Veitna ohf. eru ekki undirmenn borgarstjóra frekar en starfsmenn Bónus. Hvers vegna ætti þá borgarstjóri að bera ábyrgð á þeirra verkum? Nægir það þér eins og Þorsteini að hann sé pólitískur andstæðingur þinn til að gera hann ábyrgan fyrir öllu sem í Reykjavík skeður?
Og Þorsteinn, samkvæmt röksemdarfærslu þinni þá hlýtur Landlæknir að vera ábyrgur fyrir öllum pestum og flensum, sjúkdómum og sárum á landinu og hefur því varla tíma fyrir borgarstjórann. Þú ert duglegur að reyna að finna einhverjum öðrum en gerendum og stjórnendum þeirra ábyrgð.Er það þannig í þínu lífi að einhverjum öðrum er ætíð um að kenna þegar þú klúðrar hlutunum, helst einhverjum pólitískum andstæðingi sem hvergi kom nálægt því máli? Það er auðvelt að hætta að hugsa og benda bara á einhvern andstæðing og segja hann bera ábyrgð. Lýðskrum, múgæsing og fáfræði virkar líka svo helvíti vel þega berja þarf á andstæðingum.
Ufsi (IP-tala skráð) 17.11.2017 kl. 23:06
Meiri æsingurinn í ufsanum. Ég lagði það nú bara til í gríni að Landlæknir yrði gerður ábyrgur fyrir borgarstjóranum.
En það er stór munur á Veitum og Bónus þegar að borginni kemur einfaldlega vegna þess að Veitur eru í eigu borgarinnar en það er Bónus ekki.
Þorsteinn Siglaugsson, 19.11.2017 kl. 21:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.