Er bannað að gagnrýna dóma?

Dómsmorð kallast það þegar maður er sakfelldur á forsendum sem ekki standast. Hver sem gagnrýnir dóm og færir rök fyrir því að forsendur hans standist ekki gagnrýnir með því réttinn fyrir dómsmorð.

Verði maður dæmdur fyrir meiðyrði vegna þess að hann setur fram slíka gagnrýni er í raun búið að banna gagnrýni á niðurstöður dómstóla. Slíkar hömlur á tjáningarfrelsi standast ekki í neinu réttarríki.

Ég bendi að lokum á orð Davíðs Oddssonar um málsmeðferð og dóm í Geirfinnsmálinu á sínum tíma. Ekki veit ég til að neinn þeirra dómara sem að því máli komu hafi stefnt Davíð fyrir meiðyrði. Eru þó orð hans beitt svo ekki sé meira sagt.

DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að honum væru það mikil vonbrigði að Hæstiréttur skyldi ekki hafa haft lagaskilyrði til þess að taka Geirfinnsmálið upp á nýjan leik. Sagðist hann hafa kynnt sér það mál rækilega í gegnum tíðina og telur að þar hafi mönnum orðið á í messunni "í stórkostlegum mæli á nánast öllum stigum málsins", eins og hann orðaði það. Tók hann einnig fram að á þeirri vegferð allri hefði "ekki aðeins eitt dómsmorð verið framið heldur mörg". Slíkir hlutir gætu þó ekki gerst í dag eins og þarna gerðist.

Mbl. 1998

 


mbl.is Kveinkar sér ekki yfir málssókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Páll Garðarsson

Eru það ekki vinnubrögð eigendafélags Sjálfstæðisflokksins að bannfæra sendiboðana?

Jón Páll Garðarsson, 10.11.2017 kl. 07:16

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hvaða sendiboða? Hefur ekki Jón Steinar talist til þessa flokkseigendafélags, hvað þá Davíð?

Þorsteinn Siglaugsson, 10.11.2017 kl. 11:35

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Er tjáningarfrelsi á Ísland? Kanski, það fer eftir því hver vill tjá sig.

Af hverju ætti Jón Steinar að óttast málaferli? Ég tel að hann hafi ánægju af því að geta flett ofan af dómaraklíkunni hversu spillt hún er og gera það í dómsal.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 11.11.2017 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband