9.5.2015 | 10:38
Hvert er eiginlega markmiðið?
Hver er eiginlega tilgangur ASÍ með því að vera sífellt að gefa út falsðaðar verðkannanir? Í þessu tilfelli er fölsunin óvenju augljós: Verslanir gengu í að lækka verð strax í september vegna væntanlegrar vörugjaldalækkunar. Þá er valið að gera verðkönnun sem miðast við verð í október og bera saman við verð í apríl. Eðlilegast væri auðvitað að bera einfaldlega saman apríl 2014 á móti apríl 2015.
Hér er verið að bera saman verð í einstökum verslunum. Almennilega unnin könnun myndi vitanlega gagnast neytendum til að átta sig á hvar hagstæðast er að versla. En þessi könnun gagnast einfaldlega alls ekki neitt.
Hver er eiginlega ástæðan fyrir þessum vinnubrögðum? Er ASÍ í einhverri herferð gegn versluninni í landinu, sem veitir félagsmönnum þess vinnu, eða er þetta fólk bara of skyni skroppið til að geta gert þessa hluti almennilega?
Stendur fast við verðkönnun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:41 | Facebook
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 287738
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Að "lækka verð vegna væntanlegra skattalækkana" er náttúrlega bara markaðsbrella, samskonar og svokallaðir "VSK lausir dagar" eða hvað það er kallað. Ef fyrirtækin gátu minnkað álagninguna sína þá um þessi prósent, af hverju að hækka hana þá aftur eftir áramót? Til að geta sýnt einhverja lækkun næst þegar á að sýnast vera með "tilboðsdaga" eða jafnvel "útsölu"?
ls (IP-tala skráð) 10.5.2015 kl. 11:59
Hvers konar þvæla er þetta nú? Verðlækkanirnar komu til framkvæmda áður en vörugjöld voru felld niður og það gerði að verkum lægri álagningu tímabundið. Þótt fyrirtæki geti lækkað álagningu sína tímabundið þýðir það ekki endilega að það geti gert það til frambúðar. En eflaust tjóir ekki að reyna að útskýra svona hluti fyrir kjánum.
Málið hér snýst um að ASÍ velur samanburðartímabil í verðkönnun beinlínis í því skyni að blekkja neytendur. Það er ámælisvert.
Þorsteinn Siglaugsson, 10.5.2015 kl. 12:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.