Kannski þarf að hugsa hlutina upp á nýtt

Launakjör lækna eru ólík. Eldri læknar sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð og geta nýtt spítalaviðveru til að afla sjúklinga á einkastofur sínar hafa það fínt, meðan yngri læknar hafa gjarna langtum lægri laun. Kannski þurfi að endurskoða þetta fyrirkomulag?

Læknar eru misgóðir. Sumir læknar eru mjög færir í sínu fagi. En það finnast líka lélegir læknar sem hafa litla þekkingu og færni. Oft valda þeir sjúklingum óbætanlegum skaða. En því miður stendur stéttin dyggan vörð um skussana. Kannski þarf að bæta eftirlit með hæfni lækna og sjá til þess að laun þeirra ráðist af getu, ekki aðeins menntun?

Þjónusta LSH er mjög víðfeðm. Oft skiptir reynsla miklu þegar kemur að læknismeðferð. Það á ekki síst við um flóknar skurðaðgerðir. En það getur reynst erfitt að byggja upp reynslu á markaði sem aðeins telur ríflega þrjú hundruð þúsund manns. Það er betra að gera fátt vel en margt illa. Kannski gætum við náð betri árangri með ódýrari hætti ef við leituðum í auknum mæli út fyrir landsteinana með flóknari meðferðir í stað þess að reyna að framkvæma allt hér, oft með óþarflega miklum tilkostnaði og tjóni fyrir sjúklinga?


mbl.is Geta ekki teygt sig nær kröfum lækna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 287356

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband