9.8.2011 | 10:12
Á móti skattahækkunum, en ...
Það er vissulega löngu kominn tími til að Samtök atvinnulífsins beiti sér gegn skattahækkunum. Þar hafa þau dregið lappirnar allt of lengi, væntanlega í þeirri von að ráðandi aðilar innan þeirra, verktakar og útgerðarmenn, fái í sinn hlut verkefni á kostnað ríkisins og ókeypis hráefni.
En tökum eftir einu. Tökum eftir þeim orðum Vilhjálms að "vilji ríkisstjórnin ekki koma fjárfestingum, atvinnulífinu og vegaframkvæmdum af stað þá hljóti að vera rökrétt að stilla umfang ríkisins af í stað skattahækkana." Hvað er hér á ferðinni? Jú, nú er boðið upp á skipti: Við skulum fallast á skattahækkanir ef þið lofið að skuldsetja afkomendur okkar til að útvega verktökunum verkefni. Bara ef þið viljið vera svo væn að gera það þá skulum við fallast á hvaða skattahækkanir sem er og allan þann hallarekstur á ríkissjóði sem þið viljið!
---------------------------------
Það er kominn tími á ný samtök vinnuveitenda, samtök sem standa vörð um hagsmuni alvöru fyrirtækja sem rekin eru á frjálsum markaði, sækja tekjur til einkaaðila sem vilja greiða fyrir þjónustu þeirra, og borga sjálf fyrir hráefni sitt.
Gegn mögulegum skattahækkunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
- agny
- graenar-lausnir
- bjarnijonsson
- bjornalexandermikli
- gattin
- dofri
- contact
- fhg
- gretaulfs
- gudni-is
- mosi
- bofs
- muggi69
- gudrunmagnea
- zeriaph
- holi
- haukurn
- diva73
- hlynurh
- ingibs
- ingolfursigurdsson
- fun
- jennystefania
- johnnybravo
- eyfeld
- jonbergsteinsson
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kristjan9
- loncexter
- ludvikjuliusson
- sleggjudomarinn
- magnuss
- svarthamar
- vestskafttenor
- otti
- runaro
- joklamus
- sigurjons
- stefanjul
- summi
- saemi7
- samy
- torfusamtokin
- vestfirdir
- thorsteinn
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 287738
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nokkuð góður punktur hjá þér. Svo má ekki gleyma því að hækkun á neðra þrepinu mun leiða til verðbólgu sem mun hækka verðtryggð lán og samninga. Seðlabankinn mun líta framhjá því að þetta sé sökum skattahækkanna og bregðast við með því að hækka stýrivexti.
Sumarliði Einar Daðason, 9.8.2011 kl. 10:54
Eru menn ekki búnir að sjá að þessum hugleiðingum hefur verið hafnað af stjórnvöldum sem rakalausu kjaftæði...stendur ekki til að hækka vsk á matvæli.
Jón Ingi Cæsarsson, 9.8.2011 kl. 11:44
Einhverjar skattahækkanir eru í farvatninu, hvort sem það verður virðisaukaskatturinn eða eitthvað annað. Og allt kemur það niður á lífskjörum almennings, sama hvaða leið er farin.
Þorsteinn Siglaugsson, 9.8.2011 kl. 13:11
Heyr .
Hörður Halldórsson, 10.8.2011 kl. 19:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.