Verðhækkanir og atvinnuleysi

Að jafnaði eru laun í verslun um það bil tíundi hluti teknanna. Til að mæta 20% launahækkun má því reikna með að vöruverð þurfi að hækka um 2% um það bil.

Í því árferði sem nú ríkir eiga mjög mörg fyrirtæki erfitt með að halda sjó. Verðhækkanir eru jafnframt líklegri en ella til að draga úr eftirspurn. Mörg fyrirtæki munu því bregðast við hinum nýja kjarasamningi með því að segja upp fólki og auka vinnuálag þeirra sem eftir eru.

Almennt verða launahækkanir að grundvallast á aukinni framleiðni. Séu laun hækkuð án þess að það eigi sér stoð í framleiðniaukningu skilar hækkunin sér ekki í auknum kaupmætti. Ástæðan er tvíþætt. Annars vegar hækkar vöruverð, verðbólga eykst, húsnæðislán hækka og eftirspurn eftir vöru og þjónustu minnkar því. Hins vegar eykst atvinnuleysi vegna sparnaðaraðgerða.

Þetta eru engin ný sannindi. Við bjuggum við þessar víxlhækkanir um langa hríð allt fram að þjóðarsáttarsamningunum á sínum tíma. Menn ættu því að þekkja afleiðingar þess að gera óraunhæfa kjarasamninga, en það er greinilega ekki öllum gefið að læra af reynslunni.


mbl.is 22% hærri laun í verslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er það ekki merkilegt að maður sem Gylfi, maður sem ætti að vera starfi sínu vaxinn, skuli semja um svona vitleysu. Það mætti halda að hann væri á mála hjá ríkisstjórninni og eru þessir samningar einir og sér ekki það eina sem gefur tilefni til að ætla það. En það er nú annað mál. Ég er nú bara leikmaður í þessu lífi, sennilega eitthvað yngri og óreyndari en Gylfi og þó þykir mér það sýnt að betra hefði verið fyrir láglaunafólk í þessu landi að t.d. persónuafsláttur hefði verið hækkaður....nú eða skattleysismörk. Þessi samningur á þessum tímapunkti hjá okkur er bara bull og finnst mér nú tímabært að fara skipta um fólk í brúnni. Hvaðan kom þessi Gylfi annars? Hver kaus hann í þetta starf? Hann ætti að snúa sér að öðru.

assa (IP-tala skráð) 6.5.2011 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 287348

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband