Dómstólar geri ríkar sönnunarkröfur

Það er í sjálfu sér engin frétt að samkeppnislögin eru meingölluð. Þau bjóða upp á að ákvarðanir séu matskenndar og lítt eða alls ekki rökstuddar. Lögin eru því gagnslítil leiðbeining fyrir dómstóla.

Fram til þessa virðast dómstólar haft sterka tilhneigingu til að taka undir niðurstöður Samkeppniseftirlitsins gagnrýnilaust. Margoft hafa sést dómsniðurstöður þar sem fyrirtæki er talið í markaðsráðandi stöðu bara af því að það á meira en það skuldar eða vegna þess að það er í sterkri stöðu á einhverjum öðrum markaði en þeim sem fjallað er um eða bara af því bara.

Það er nauðsynlegt að þessu linni. Dómstólar verða að gera þá kröfu að Samkeppniseftirlitið sanni mál sitt með óvefengjanlegum hætti - sömu kröfu og þeir gera til ákæruvalds í málum af öðrum toga. Kannski taka þeir sig saman í andlitinu nú þegar fyrirsjáanlegt er að afleiðingarnar af þruglinu sem frá Samkeppniseftirlitinu berst geti orðið mun alvarlegri en fram til þessa.


mbl.is Samkeppnislögum breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vel athugað.

Samkeppnislögin verða að vera hafin yfir allan vafa enda eru þau mikilvægur partur af þeim leikreglum sem markaðinum eru settar. Því skýrari og mælanlegri sem þau eru því betri. Dómar samkvæmt mati manna á þessu eða hinu bjóða upp á gagnrýni málsaðila og geta því ekki verið hafnir yfir vafa.

Ef Ísland ætlar að skapa frálsa samkeppni (ekki fákeppni eða einokun eins og víða þekkist) þá verða þessar leikreglur að vera kristal skýrar og þjóna markmiðinu.

Magnús B Jóhannesson (IP-tala skráð) 23.2.2011 kl. 17:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 287356

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband