27.2.2021 | 16:44
Hamfarablæti Morgunblaðsins
Heil opna lögð undir viðtöl við einstaklinga sem fengu slæma flensu.
En 12.000 manns hafa væntanlega smitast af þessari flensu hér. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra aldrei fundið fyrir einkennum, eða fengið mjög væg einkenni.
Hvers vegna tekur Morgunblaðið ekki viðtöl við eitthvað af því fólki?
Hvers vegna gerir blaðið enga tilraun til að setja hlutina í samhengi?
Er hamfarablætið grundvöllur ritstjórnarstefnu þessa blaðs?
![]() |
Hænuskref í átt að bata |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2021 | 11:31
Hamfaraklám í boði æsingamanns
"Fimmti hver sem smitast af veirunni veikist illa" staðhæfir þessi einstaklingur, og ekki í fyrsta sinn sem hann fer fram með staðlausa stafi um þessa pest.
Staðreyndin er sú að 95% þeirra sem smitast af kórónaveirunni finna engin eða væg einkenni. Það er því tuttugasti hver, ekki fimmti hver sem veikist, og algengustu veikindin eru sambærileg venjulegri flensu.
"Fjórðungurinn af þeim (sem veikjast) verða fárveikir eða deyja" staðhæfir einstaklingurinn líka. Það væru þá 5% þeirra sem smitast í raun og veru, en 10% af þeim sem æsingamaðurinn segir smitast. Sé byggt á niðurstöðum skimana og ónæmisrannsókn ÍE er raunhæft að áætla að um 12.000 manns hafi smitast af veirunni hérlendis. Innlagnir á sjúkrahús eru samtals 327. Það eru ríflega 2,5% þeirra sem hafa smitast, en auðvitað staðhæfir æsingamaðurinn að talan sé fjórfalt hærri.
Þessi umfjöllum Morgunblaðsins er glöggt dæmi um það sem gerist þegar fjölmiðlar láta staðreyndir og gagnrýna umfjöllun lönd og leið, en dæla þess í stað út ósannindum eins og enginn sé morgundagurinn.
Hvers vegna? Jú, til að þjóna hamfarablætinu sem hefur gripið um sig í samfélaginu. Það er eina skýringin á því að á ársafmæli veirufársins er hvergi minnst á þær tugþúsundir sem lífsviðurværið hefur verið hirt af, hvergi minnst á efnahagslegu skakkaföllin sem munu stórskaða heilbrigðis- og velferðarkerfið til framtíðar, hvergi minnst á unga fólkið sem sér upp til hópa framtíð sína í uppnámi vegna lokana og hindrana. Hvergi minnst á öll dauðsföllin sem af þessu leiða og verða þegar upp er staðið án nokkurs minnsta vafa margfalt fleiri en nokkurn tíma hefðu getað látist úr pestinni.
Vandaður fjölmiðill gætir jafnvægis í umfjöllun sinni, en einblínir ekki aðeins á eina hlið og velur sér ekki heimildarmenn sem hafa sýnt sig að því að vera ekki treystandi.
Ég hef verið áskrifandi að Morgunblaðinu í þrjátíu ár, vegna þess að í megindráttum hefur verið hægt að treysta því að blaðamennskan standist lágmarkskröfur. Ég vona að ég þurfi ekki að fara að hætta því.
![]() |
Fór fram úr okkar björtustu vonum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 27. febrúar 2021
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
-
agny
-
graenar-lausnir
-
bjarnijonsson
-
bjornalexandermikli
-
gattin
-
dofri
-
contact
-
fhg
-
gretaulfs
-
gudni-is
-
mosi
-
bofs
-
muggi69
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
holi
-
haukurn
-
diva73
-
hlynurh
-
ingibs
-
ingolfursigurdsson
-
fun
-
jennystefania
-
johnnybravo
-
eyfeld
-
jonbergsteinsson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kristjan9
-
loncexter
-
ludvikjuliusson
-
sleggjudomarinn
-
magnuss
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
otti
-
runaro
-
joklamus
-
sigurjons
-
stefanjul
-
summi
-
saemi7
-
samy
-
torfusamtokin
-
vestfirdir
-
thorsteinn
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 288222
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar