Aðeins brot af niðurgreiðslunum

Það er vissulega þarft verk að benda á niðurgreiðslur á olíu til þessarar framkvæmdar. En þær eru þó aðeins dropi í hafið miðað við niðurgreiðslur skattgreiðenda á lánsfjárvöxtum til verkefnisins. Það væri verðugt verkefni fyrir blaðið að vinna úttekt á þeim. Það er afar einfalt - þarf ekki annað en bera saman ríkisniðurgreidda vexti af lánum til framkvæmdarinnar og markaðsvexti af lánum til áliðnaðarins.
mbl.is Niðurgreidd olía á Kárahnjúkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir eða slæmar?

Þessi vísitala mælir þrennt: Losun gróðurhúsalofttegunda vegur 30%, þróun losunar vegur 50% og stefna stjórnvalda 20%. Það er eðlilegt að Ísland standi framarlega þegar kemur að losun á mann, enda er iðnvæðing hér tiltölulega lítil. Varðandi stefnu stjórnvalda virðumst við á svipuðu róli og mjög mörg önnur ríki hér og þar á listanum. Ég hef raunar grun um að þarna ráði miklu hvort búið er að setja eitthvað niður á blað eða ekki. Þróun undanfarin ár vegur hins vegar þyngst í þessari vísitölu. Útkoma Íslands þar bendir til þess að losun hafi aukist lítið á undanförnum árum. Spurningin er hins vegar sú hvað gerist þegar stóriðjuverin sem ýmist eru að hefja starfsemi nú, eða stendur til að taki til starfa fljótlega, koma inn. Þá er líklegt að við hröpum hratt á þessum ágæta lista. Og þá er spurningin: Hvort er betra að byrja á toppnum og falla svo niður í þriðju deild, eða byrja neðarlega en hafa svigrúm til að bæta sig?


mbl.is Ísland í fremstu röð í umhverfismálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. desember 2007

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband