Góðar fréttir eða slæmar?

Þessi vísitala mælir þrennt: Losun gróðurhúsalofttegunda vegur 30%, þróun losunar vegur 50% og stefna stjórnvalda 20%. Það er eðlilegt að Ísland standi framarlega þegar kemur að losun á mann, enda er iðnvæðing hér tiltölulega lítil. Varðandi stefnu stjórnvalda virðumst við á svipuðu róli og mjög mörg önnur ríki hér og þar á listanum. Ég hef raunar grun um að þarna ráði miklu hvort búið er að setja eitthvað niður á blað eða ekki. Þróun undanfarin ár vegur hins vegar þyngst í þessari vísitölu. Útkoma Íslands þar bendir til þess að losun hafi aukist lítið á undanförnum árum. Spurningin er hins vegar sú hvað gerist þegar stóriðjuverin sem ýmist eru að hefja starfsemi nú, eða stendur til að taki til starfa fljótlega, koma inn. Þá er líklegt að við hröpum hratt á þessum ágæta lista. Og þá er spurningin: Hvort er betra að byrja á toppnum og falla svo niður í þriðju deild, eða byrja neðarlega en hafa svigrúm til að bæta sig?


mbl.is Ísland í fremstu röð í umhverfismálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hitt og þetta

Höfundur

Þorsteinn Siglaugsson
Þorsteinn Siglaugsson

Heimspekingur, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi og vonsvikinn frjálshyggjumaður.

Athugasemdir eru birtar, en aðeins ef þær eru kurteislegar að mati síðuhaldara. Dónalegum athugasemdum verður hafnað.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot 2023-03-02 at 21.37.26
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.11
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.23
  • Screenshot 2023-03-02 at 21.41.44

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 287300

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband