8.11.2017 | 23:09
Glæsileg horníbúð ...
... á jarðhæð, sem skagar svona skemmtilega út yfir helstu umferðaræð bæjarins. Þú færð umferðina beint í æð: Aðeins 100 milljónir.
![]() |
400-600 nýjar íbúðir á Kringlureit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.11.2017 | 22:28
Ólíku saman að jafna
Það er ólíku saman að jafna þegar horft er annars vegar til Reykjanesbæjar sem nú lækkar útsvarið og Reykjavíkurborgar sem stóreykur skuldir. Meðan innviðir drabbast niður og þjónusta versnar stækkar yfirbyggingin og silkihúfunum fjölgar.
Það er löngu kominn tími til að þessi vonlausi meirihluti fái frí. Vonandi eru kjósendur nægilega skynsamir til að gera sér grein fyrir því
![]() |
Maður skuldsetur sig ekki út úr fjárhagsvanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.11.2017 | 08:43
Skýrir ekki versnandi frammistöðu
Allt það sem hér er tínt kann vel að eiga við rök að styðjast. Það eru ekki meðmæli með íslensku skólakerfi ef kastað er til höndum við framkvæmd prófa. En það skýrir engan veginn versnandi frammistöðu og það er hún sem er megináhyggjuefnið.
![]() |
Mælivilla í niðurstöðum PISA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.11.2017 | 00:25
Sé guð yðar fjallaguð ...
Ólíkir flokkar, ólíkir guðir. Eða eins og Kristján Karlsson kemst að orði í endurminningum um gamla testamentið (Kvæði '87):
"Sé guð yðar fjallaguð freistið þá ekki að berjast
við fjendur yðar á sléttum, í dölum, á sjó né í fjörum.
En setjum þér búið í hæðunum niðri við hafið?
Eigið þér hús í hæðum úti við sjó
er hlutskipti yðar að efast hvern blessaðan morgun.
Eigið þér hús er hlutskipti yðar að efast:
fjallaguð, sléttuguð, andar í fjörum og ám
flýja unnvörpum fyrir Drottni sem hvergi á heima.
Áður en varir eigið þér hvergi heima.
..."
![]() |
Stjórnarmyndunarviðræðum slitið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2017 | 14:00
Leitt fyrir Katrínu
Maður getur ekki annað en haft samúð með Katrínu í þessu máli, jafnvel þótt ég sé nú ekki hrifinn af að fá vinstri stjórn.Ekki var annað að sjá en að hún hefði vandað til verka og einkennilegt að naumur meirihluti verði til að slíta viðræðunum nú því hann hafði legið fyrir allt frá byrjun.
![]() |
Mikil vonbrigði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.11.2017 | 00:30
Stórfrétt!
Það er auðvitað stórfrétt að Bretadrottning eigi aura á Cayman. Datt annars einhverjum í alvöru í hug að hún ætti enga aura þar?
![]() |
Drottningin með peninga á aflandseyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.11.2017 | 11:57
Skrítin skýring
Birgitta hafði sjálf lýst yfir því að þótt hún sæktist ekki eftir ráðherrastól kæmi alveg til greina að hún yrði ráðherra.
Það þarf eitthvað af efnum, frekar sterkum efnum held ég, til að fara að draga þá ályktun að heiðurssæti á framboðslista komi mögulegum ráðherradómi eitthvað við. Veit ekki til þess að nokkurn tíma hafi ráðherra valist af heiðurssæti framboðslista.
En skýringin gefur auðvitað góða innsýn í hugarheim þess sem telur Sjálfstæðisflokkinn bera ábyrgð á öllum vandamálum heimsins:
"Úps, það var brotist inn í bílinn minn. Hlýtur að vera sjálfstæðismaður"
"Fjandi er kalt úti! Bjarni Ben einhvers staðar nálægt?"
![]() |
Ýtt til hliðar vegna sjálfstæðismanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2017 | 11:37
Fyrst þeir gátu talað saman ...
... hlýtur nú að vera hægt að leysa Norður-Kóreu vandamálið, ekki satt?
![]() |
Sögulegt símtal Sigmundar og Sigurðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.11.2017 | 18:49
Óvinir Albaníu
Það er auðvitað ljóst að óvinir Albaníu hafa myndað leynilegt bandalag gegn hinum merka fulltrúa þessa falla kommúnistaveldis á Íslandi.
![]() |
Samantekin ráð gegn Alþýðufylkingunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.11.2017 | 15:13
Ekki sama vinstri og vinstri
Flokkur Ingu Sæland berst fyrir hagsmunum þess hóps sem kalla mætti fátæka alþýðu. Það gerðu líka Alþýðuflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn í gamla daga.
En hinir nýju vinstriflokkar, Samfylking og VG berjast ekki fyrir hagsmunum þessa fólks. Þeir berjast einungis fyrir hagsmunum opinberra starfsmanna. Því er öll áhersla þeirra á að stækka ríkisbáknið, hækka laun opinberra starfsmanna og auka réttindi þeirra á kostnað hinnar fátæku alþýðu fyrst og fremst.
Við fyrstu sýn er eðlilegt að Ingu lítist vel á að starfa með flokkum sem staðsetja sig til vinstri. En þegar til kastanna kemur kemst hún auðvitað að því að það er ekki sama vinstri og vinstri.
![]() |
Þátttaka í ríkisstjórn inni í myndinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hitt og þetta
Bloggvinir
-
agny
-
graenar-lausnir
-
bjarnijonsson
-
bjornalexandermikli
-
gattin
-
dofri
-
contact
-
fhg
-
gretaulfs
-
gudni-is
-
mosi
-
bofs
-
muggi69
-
gudrunmagnea
-
zeriaph
-
holi
-
haukurn
-
diva73
-
hlynurh
-
ingibs
-
ingolfursigurdsson
-
fun
-
jennystefania
-
johnnybravo
-
eyfeld
-
jonbergsteinsson
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kristjan9
-
loncexter
-
ludvikjuliusson
-
sleggjudomarinn
-
magnuss
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
otti
-
runaro
-
joklamus
-
sigurjons
-
stefanjul
-
summi
-
saemi7
-
samy
-
torfusamtokin
-
vestfirdir
-
thorsteinn
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.8.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 288149
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar